Morgunblaðið - 03.03.2018, Qupperneq 12
TENERIFE
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
s
iðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
5. mars í 9 nætur Frá kr.
89.995
Bókaðu sól
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef haft áhuga á aðskrifa frá því ég var lítilstelpa. Ég byrjaði aðskrifa sögur þegar ég var
um sjö ára og hef gert það allar götur
síðan, ég á margar bækur og word-
skjöl með þeim afrakstri. En hug-
myndin að því að stofna fréttavef fyr-
ir ungt fólk kviknaði þegar ég var í
ritstjórn framhaldsskólablaðsins
2016 til 2017. Þá var ekki hægt að
birta margar af greinunum mínum,
svo ég hugsaði með mér: Af hverju
stofna ég ekki bara mitt eigið blað,
þar sem ég get birt það sem ég vil,“
segir Sólrún Freyja Sen, sem lét
verkin tala, en hún er ritstýra nýs
fréttavefjar, babl.is, sem hleypt var
formlega af stokkunum fyrir rúmri
viku. Babl.is er fréttavefur hugsaður
fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára.
„Það hefur alveg vantað í nokk-
ur ár miðil fyrir ungt fólk, enginn
slíkur hefur verið frá því Monitor-
blaðið á Mogganum var og hét. Slík
blöð eru mjög vinsæl hjá ungu fólki
og ég vildi bregðast við þessari eftir-
spurn. Upphaflega planið var að vera
bæði blað og netmiðill, en það er svo
dýrt að prenta að við gerum það ekki
fyrr en kannski seinna, þegar við er-
um komin með meira fjármagn. Upp-
haflega stóð til að kalla miðilinn
Blabla, en það lén var frátekið, svo
næsti bær við var babl, sem mér
finnst núna flottara.“
Mikil vinna en skemmtileg
Sólrún er með þrjá stráka með
sér í ritstjórn, Kristin Ingvarsson,
Guðmund Hauksson og Kristján
Erni Hölluson, og hún segir þau
fjögur hafa unnið að vefmiðlinum
allt frá því í fyrrasumar.
„Þetta hefur verið mikil vinna,
endalaus fundahöld til að marka
stefnu og ákveða hvað á að birta og
hvernig þetta eigi allt að líta út,
safna fólki með okkur í lið og skrifa
efnið og setja upp síðuna. Og stofna
fyrirtæki, sem kostar pening. En
þetta hafðist og það var virkilega
gaman að opna vefinn með pomp og
prakt að allri þessari vinnu lokinni
og fá góð viðbrögð frá fólki.
Það skiptir líka máli að miðill-
inn sé sjónrænt flottur, en Aron Már
Stefánsson sá um útlitshönnun
bablsins. “
Á babl.is eru fréttir, pistlar og
stutt grínmyndbönd, „sketch“, þar
sem þrír félagar fara á kostum undir
heitinu Kaupa dót. Sólúlfur er einnig
með innlegg í formi myndbanda þar
sem hann mun fjalla um andleg mál-
efni.
„Við erum að þróa innslög í
tengslum við skyndibita á Íslandi.
Og pælingin er að vera með hlað-
varp. Bablið er því enn í mótun og
þróun.“
Djammraunveruleikinn og
hættulega lyfið Xanax
Babl.is er upplýsingamiðill um
það sem er á döfinni fyrir ungt fólk,
tónleika, leiksýningar, ræðukeppnir
og ýmislegt fleira, en líka fréttatengt
efni, til dæmis má þar finna fræðandi
grein um Xanax, lyf í flokki benzódía-
zepína sem virkar á miðtaugakerfið
og hefur verið hluti af djamminu hjá
mörgu ungu fólki allt niður í 16 ára
og valdið dauðsföllum.
„Þetta er umfjöllunarefni sem
snertir kannski aðra hópa í samfélag-
inu ekki eins mikið og ungt fólk, for-
eldrar mínir vissu til dæmis ekki að
þetta væri vandamál. Pælingin er
sem sagt að þótt babl.is sé skemmti-
legur og léttur miðill þá tökum við
líka fyrir erfiðari mál, og verðum
með beitta pistla. Það er ekkert mál
að blanda því saman að vera miðill
með skemmtanagildi en á sama tíma
alvarlegur. Á babl.is er hægt að lesa
um það sem ungt fólk er að gera en
þetta er líka vettvangur fyrir ungt
fólk til að koma fram og birta sínar
skoðanir. Við sem erum að vinna að
þessu erum 18 til 20 ára og svo bróðir
minn Daníel sem á babl.is með mér,
en hann er 24 ára,“ segir Sólrún og
bætir við að allir sem séu með henni í
bablinu séu mjög áhugasamir og
komi með sínar eigin góðu hug-
myndir fyrir verkefnið.
„Páfagaukurinn minn, hún
Bella, er oft með á ritstjórnarfundum
en hún hermir eftir mannsröddum og
talar bullumál. En hún kann að segja
halló og mjá, það er hennar innlegg á
ritstjórn. Hún getur verið skaðræði,
hún beit einn ritstjórnarmeðlim illi-
lega í nefið á einum fundinum,“ segir
Sólrún sem mun útskrifast frá MS í
vor og stefnir á nám í hagfræði eða
stjórnmálafræði, jafnvel lögfræði. En
hún ætlar líka að einbeita sér að því
að halda áfram að bæta bablið, gera
það flottara og flottara.
Bæði skemmtilegt og alvarlegt
Hún gerði sér lítið fyrir og
stofnaði sjálf vefmiðil fyrir
ungt fólk, þegar henni
fannst vanta slíkan. Sól-
rún Freyja ritstýrir ba-
bl.is, en páfagaukurinn
hennar fær að sitja á rit-
stjórnarfundum.
Morgunblaðið/Hanna
Ritstýran og strákarnir Sólrún og félagar hennar sem eru með henni í ritstjórn, Guðmundur Hauksson, Kristinn Ingvarsson og Kristján Ernir Hölluson.
Vinir Páfagaukurinn Bella situr rit-
stjórnarfundi. Hér á öxl Sólrúnar.
Nú þegar birtan minnir á komandi
sumar er um að gera að leggja drög
að gönguferðum. Ferðafélag Íslands
býður upp á ferðakynningarkvöld þar
sem fararstjórar kynna nokkrar af
fjölmörgum ferðum félagsins næsta
sumar, fara yfir skipulag ferða og
sýna myndir. Nk. mánudag, 5. mars,
verða nokkrar ferðir á Austurlandi
kynntar: Lónsöræfi, Víknaslóðir, Fjall-
göngur í Lóni og umhverfis Langasjó.
Kynning hefst kl. 20 í húsnæði FÍ,
Mörkinni 6, Reykjavík. Allir velkomnir.
Endilega …
… kynnið ykkur
ferðaúrvalið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölskylduvænt Gönguferðir eru
fyrir fólk á öllum aldri. Góð samvera.
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Flot fyrir fagmenn
Weber 4150
Fine Flow
Alhliða flot sem hentar á flest gólf
Fullþurrt eftir 1-3 vikur
Þykktarsvið: 4-30mm
Þrýstiþol: 30MPa
Þyngd: 25kg
Verð:2.290 kr.
Weber 4160
Rapid Fine Flow
Hraðþornandi flot með auknum styrk
Fullþurrt innan 24 klst
Þykktarsvið: 2-30mm
Þrýstiþol: 35MPa
Þyngd: 25kg
Verð:2.990 kr.