Morgunblaðið - 03.03.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
FJÁRMÁLAUMHVERFI
HEILBRIGÐIS-
ÞJÓNUSTUNNAR
Málþing á vegum Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu
mánudaginn 5. mars kl. 13.30
DAGSKRÁ
13.30 - 13.40 Setning málþings
Pétur Magnússon, formaður Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu og
forstjóri Hrafnistuheimilanna
13.40 - 13.55 Ávarp frá formanni fjárlaganefndar
Willum Þór Þórsson
13.55 - 14.10 Greiðslur og kröfur í heilbrigðisþjónustu
Eybjörg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
14.10 - 14.25 Barnið vex en brókin ekki - þróun
eftirspurnar og fjárveitinga
María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Landspítalans
14.25 - 14.40 Upplýsingar og stefnumótun
Ásgerður Th. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs SÁÁ
14.40 - 14.55 Sjúkratryggingar og nýju lögin um
opinber fjármál
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands
14.55 - 15.10 Erum við að mæta þörfum sjúklinga
með því að fjármagna stofnanir?
Svanbjörn Thoroddsen, stjórnarformaður
KPMG á Íslandi
Að framsögum loknum verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Erna Indriðadóttir, fjölmiðlakona
Málþingið verður haldið á Icelandair
hótel Reykjavík Natura, þingsal 2,
mánudaginn 5. mars nk. kl. 13.30-15.45.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Pétur Magnússon
Ásgerður Th.
Björnsdóttir
Willum Þór Þórsson
Steingrímur Ari
Arason
Eybjörg Hauksdóttir
Svanbjörn
Thoroddsen
María Heimisdóttir
Erna Indriðadóttir
Á grundvelli alþjóðareglna er
óheimilt að flytja hergögn um loft-
rými ríkis án heimildar viðkomandi
ríkis, samkvæmt minnisblaði sem
Samgöngustofa sendi frá sér í gær,
um leyfisveitingar til flutnings á
hergögnum.
Þar kemur fram að engin tilmæli
hafi borist Samgöngustofu um sér-
staka skoðun á ástandi í tilteknum
heimshlutum, í tengslum við leyf-
isveitingar til vopnaflutninga.
Þar kemur enn fremur fram að
samþykki þurfi frá ríkjum sem her-
gögn eru send frá og til auk þess
sem öll ríki sem flogið sé yfir þurfi
að veita heimild.
„Samgöngustofa veitir leyfi til
flutnings hergagna með borg-
aralegum loftförum. Forsendur
þeirra leyfisveitinga stofnunar-
innar er að stuðla að flugöryggi
með eftirliti skv. aþjóðlegum kröf-
um,“ segir orðrétt í minnisblaðinu.
Þar kemur fram að Sádi-Arabía
hafi ekki verið flokkuð sem við-
kvæmt átakasvæði svo Samgöngu-
stofu sé kunnugt um.
Vinna við endurskoðun reglu-
gerðar nr. 937/2005 hafi hafist í
árslok 2017 og standi yfir undir
stjórn samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðuneytisins.
Samtök hernaðarandstæðinga
lögðu í gær fram kæru á hendur
flugfélaginu Atlanta vegna þess
sem þau telja brot á lögum um eft-
irlit með þjónustu og hlutum sem
geta haft hernaðarlega þýðingu,
samkvæmt því sem segir í frétta-
tilkynningu frá samtökunum.
agnes@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Atlanta Þrjár breiðþotur Air Atlanta samtímis við Leifsstöð.
Endurskoða regl-
ur um flutningana
Kærðu flugfélagið Atlanta í gær
Johann Ólafsson
johann@mbl.is
Allir fimm fyrrverandi starfsmenn
Glitnis, sem ákærður voru í mark-
aðsmisnotkunarmáli Glitnis voru
fundnir sekir í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Þrír starfsmenn eigin
viðskipta bankans; Jónas Guð-
mundsson, Valgarð Már Valgarðs-
son og Pétur Jónasson, voru dæmdir
í skilorðsbundið fangelsi, Jónas í 12
mánuði, Valgarð níu mánuði og Pét-
ur sex mánuði.
Lárusi Welding, fyrrverandi
bankastjóri Glitnis, var ekki gerð
refsing, en hann hafði þegar hlotið
refsihámark vegna brota sem þess-
ara. Lárus var ákærður fyrir um-
boðssvik og markaðsmisnotkun.
Saksóknari fór hins vegar ekki fram
á frekari refsingu yfir Lárusi en
hann hefur þegar verið dæmdur í sex
ára fangelsi í öðrum hrunmálum,
sem er hámarksrefsing fyrir brot af
þessu tagi. Enginn hinna ákærðu var
viðstaddur dómsuppkvaðningu. Allir
verjendur kröfðust sýknu yfir sak-
borningum.
Ársfangelsi framkvæmdastjóra
Jóhannes Baldursson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta Glitnis, var dæmdur í 12 mán-
aða fangelsi, en hann hafði áður hlot-
ið 5 ára fangelsi í öðrum hrunmálum.
Saksóknari fór fram á eins árs
hegningarauka yfir Jóhannesi en við
aðalmeðferð sagði hann að ótvíætt
væri að brotin hefðu verið framin
með vitund og vilja Jóhannesar og
Lárusar. Þungir dómar hafa fallið í
markaðsmisnotkunarmálum Lands-
bankans og Kaupþings þar sem tek-
ist hefur verið á um viðskiptavakt
bankanna með eigin hlutabréf og
hvort starfsmenn hafi haldið verði
bréfanna uppi með því að kaupa þau
á markaði og svo selja þau til félaga í
eigu starfsmanna eða vildarvið-
skiptavina með lánveitingum frá
bönkunum, og þannig án áhættu fyr-
ir kaupendur.
Dóminum verður áfrýjað
Óttar Pálsson, lögmaður Lárusar
Welding, fyrrverandi bankastjóra
Glitnis, vildi ekkert segja eftir að
dómur var kveðinn upp. Reimar Pét-
ursson, lögmaður Jóhannesar Bald-
urssonar, sagðist munu áfrýja 12
mánaða fangelsisdómi yfir Jóhann-
esi. Að öðru leyti vildi Reimar ekkert
tjá sig um niðurrstöðu dómsins.
Allir sakfelldir í mark-
aðsmisnotkunarmáli
Glitnismenn dæmdir í héraði Jóhannes í ársfangelsi
Morgunblaðið/Hari
Verjendur Enginn sakborninga mætti í dómsal við dómsuppkvaðningu í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Allir verjendur höfðu krafist sýknu.
Fangelsisdómar
sakborninga
» Jónas Guðmundsson, 12
mánuðir skilorðsbundið.
» Valgarð Már Valgarðsson, 9
mánuðir skilorðsbundið.
» Pétur Jónasson, 6 mánuðir
skilorðsbundið.
» Jóhannes Baldursson, 12
mánuðir óskilorðsbundið.
Samgöngustofa
hefur frá árinu
2005 veitt undan-
þágur til flutnings
hergagna um ís-
lenskt yfir-
ráðasvæði og til
aðila sem óskuðu
eftir að flytja her-
gögn með íslensk-
um loftförum en
utan landsins.
Ekki var haft samráð við samgöngu-
og sveitarstjórnarráðuneytið fyrr en sl.
haust samkvæmt upplýsingum ráðu-
neytisins.
Frá síðasta hausti hefur ráðuneytið
fengið fjórar umsóknir um undan-
þágur vegna flutnings hergagna,
tveimur var hafnað. Veitt voru leyfi
fyrir flutningi hergagna til Sádi-Arabíu
og flutning fyrir NATO-ríki á öðrum
búnaði en vopnum. Í öllum tilvikum
var leitað umsagnar utanríkisráðu-
neytisins, áður en afstaða var tekin.
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra segir að frá sl. hausti
hafi það verklag verið viðhaft að leggja
umsóknir fyrir ráðuneytið sem leitar
umsagnar utanríkisráðuneytisins.
Hann segist ekki þekkja til umsókna
sem afgreiddar voru áður. Samgöngu-
og sveitarstjórnarráðuneytið er að
hans ögn að fara yfir farmskrár í flugi
sem fengið hafa leyfi íslenskra stjórn-
valda. Aðspurður segir ráðherra að
samkvæmt upplýsingum um þá flutn-
inga sem búið er að skoða sé allt ná-
kvæmlega eftir lögum og reglum um
gilda um slíka flutninga og al-
þjóðaskuldbindingar. Nú er verið að
fara yfir verklagið og verða ekki frek-
ari undanþágur veittar í bili.
Nýtt verk-
lag vegna
hergagna-
flutninga
Tveimur umsókn-
um hafnað í vetur
Sigurður Ingi
Jóhannsson