Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
VIÐTAL
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
„Ég er búin að ganga með þessa
hugmynd í maganum í nokkur ár,“
segir Herdís Erlendsdóttir á Sauða-
nesi við utanverðan Siglufjörð að
vestan, en á dögunum fékk hún loks
í hendur sérsmíðaðan hnakk sem
gerir hreyfihömluðum auðveldara að
stunda hestaíþróttina.
Herdís og eiginmaður hennar,
Jón, eiga þrjú börn og eru með
sauðfjárbú, hestaleigu og reið-
námskeið og hafa einnig verið fóst-
urforeldrar í rúm 12 ár. Á Sauða-
nesvita er að auki vitagæsla og
veðurathugunarstöð. Herdís er
austan frá Dalatanga, þar sem for-
eldrar hennar voru vitaverðir lengi,
en Jón er uppalinn á Sauðanesi. Í
fjárskiptunum 1992–1994 tóku þau
við búskap af foreldrum Jóns,
Huldu Jónsdóttur og Trausta
Magnússyni.
Hestaleigan, sem þau Herdís og
Jón eiga og reka, Fjallahestar, býð-
ur upp á styttri og lengri útsýnis-
og útivistarferðir, bæði fyrir vana
og óvana reiðmenn, börn jafnt sem
fullorðna. Hestarnir eru sérstaklega
þjálfaðir til reiðar í fjalllendi og eru
vel kunnugir Tröllaskaga. Sjá nánar
um það á vefslóðinni fjallahestar.is.
Hugmyndin kviknaði
„Hugmyndin kviknaði út af því að
ég var með hreyfihamlaðan ein-
stakling hjá mér á reiðnámskeiði í
hittifyrra og sá þá að ég þyrfti ein-
hvern betri útbúnað en venjulegan
hnakk, til að geta fest viðkomandi
almennilega, til að vera ekki á nál-
um um að hann eða einhver annar í
þessum sporum hallaðist eða þá
dytti af,“ segir Herdís. „Þá fór ég
aðeins að vinna í þessu, hugsa um
hvernig ég gæti útfært þetta. Svo
fór ég á dagsnámskeið í Mosfellsbæ
síðasta haust, en þar er einmitt
unnið með svona hnakk, og þá var
lausnin komin. Ég átti þó eftir að
finna hver gæti smíðað svona grip
en kona úr Hestamannafélaginu
Herði í Mosfellsbæ lóðsaði mig í
því og leiddi okkur saman, mig og
Brynjólf Guðmundsson, bónda og
söðlasmið, sem á og rekur Leður-
verkstæðið í Hlöðutúni í Stafholt-
stungum í Borgarfirði.“
Þess má geta að fyrir þremur ár-
um, nánar tiltekið á Handverkshá-
tíðinni á Hrafnagili í Eyjafirði í
ágúst 2015, fékk Brynjólfur við-
urkenningu fyrir sams konar
hnakk. Tók valnefndin sérstaklega
eftir því, að ekki var slegið af
fagurfræðilegum kröfum við gerð
hans.
Hnakkur fyrir hreyfihamlaða
hefur verið í notkun á Akureyri en
ekki annars staðar á Tröllaskaga,
eftir því sem Herdís veit best.
„Þetta er mjög vönduð smíð og
falleg,“ segir hún. Svo er þarna
reiði líka og fjórar gjarðir. Bakið er
síðan hægt að taka af og þá nota
hnakkinn á venjulegan hátt. Auk
fatlaðra einstaklinga nýtist hann
vel einhverfum börnum, sem oft
geta verið annars hugar, því hægt
er að festa þau niður í hnakkinn
með sérstökum böndum sem hon-
um fylgja. Á sumrin nýtist hann
fyrir litla krakka sem eru kannski
ekki alveg með jafnvægið í lagi,
þeir geta þá haldið sér framan í
hann. Og jafnvel bakveiku fólki
líka.
Fékk rausnarlega styrki
Herdís fékk afar rausnarlegan
styrk úr Samfélags- og menning-
arsjóði Siglufjarðar í fyrra, til að
standa straum af þessum kaupum,
en hann er í vörslu Arion banka, og
annan frá KEA.
„Það er hún Embla, tíu vetra
hryssa, sem fær þann heiður að
vera með hnakkinn. Hún er alveg
einstök þessi hryssa, róleg og yf-
irveguð. En ég er líka með fleiri
örugga hesta, ef á þarf að halda,“
segir Herdís.
Hún er með tvö hesthús í Siglu-
firði og í þeim alls 16 hesta. „Ég
get boðið upp á meira í vetur en
ella, því síðustu ár hef ég alltaf
þurft að ríða hingað inneftir einu
sinni í viku, frá Sauðanesi, og hef
tekið æfingar og allt með trompi,
en það hefur verið erfitt og ég hefði
ekki boðið í þetta núna eins og
veðrið er búið að vera. En við vor-
um líka með æfingar heima. Svo er
ég í Ólafsfirði líka á sumrin,“ segir
hún. Hún var að byrja námskeið
vegna hinnar árlegu sýningar Æsk-
an og hesturinn, hefur verið með
slík námskeið í mörg ár, en á næsta
hestanámskeiði verður hún með tvö
mjög fötluð börn og fjögur einhverf
og hún er spennt að sjá hvernig
hnakkurinn eigi eftir að reynast.
Hún kveðst reyndar treysta honum
100% og ekki síður henni Emblu.
Sá þörfina fyrir betri útbúnað
Lét sérsmíða hnakk fyrir hreyfihamlaða Embla, tíu vetra hryssa frá Sauðanesi, fær þann heiður
að vera með hnakkinn Auðveldar mörgum að stunda hestaíþróttina, jafnt börnum sem fullorðnum
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Sauðanes Hryssan Embla, sem aðallega kemur til með að vera með hnakkinn
góða, og eigandi hennar, Herdís Erlendsdóttir á Sauðanesi við Siglufjörð.
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bensín, beinskiptur, ekinn 1.000 km.
HYUNDAI i10 COMFORT
Dísil, beinskiptur, ekinn 0 km.
RENAULT CLIO ZEN
Dísil, beinskiptur, ekinn 0 km.
DACIA LOGAN MCV
Dísil, beinskiptur, ekinn 0 km.
NISSAN PULSAR VISIA
Listaverð: 1.990.000 kr. Listaverð: 2.550.000 kr. Listaverð: 2.590.000 kr. Listaverð: 2.850.000 kr.
Sérkjör: 1.690.000 kr. Sérkjör: 2.290.000 kr. Sérkjör: 2.290.000 kr. Sérkjör: 2.590.000 kr.
Nýir sýningar- og reynsluakstursbílar á sérkjörum
KJARABÍLAH
A
th
ug
ið
að
kj
ör
in
gi
ld
a
ei
ng
ön
gu
fy
rir
bí
la
se
m
til
er
u
á
la
ge
ro
g
er
u
au
gl
ýs
tir
á
sí
ðu
nn
io
g
ís
um
um
til
fe
llu
m
er
ei
nu
ng
is
um
að
ræ
ða
ei
nn
bí
l.