Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur hætt við þau
áform að byggja viðbyggingu norðan
við Perluna í Öskjuhlíð en hún átti að
hýsa stjörnuver. Eftir nánari skoðun
þótti heppilegra að breyta heita-
vatnstanki fyrir stjörnuver þar sem
Veitur ohf. hafa samþykkt að afhenda
annan vatnstank fyrr en áætlað var.
Borgarráð heimilaði í september
2017 að byggð yrði viðbygging við
Perluna sem gæti hýst hátækni-
stjörnuver og var áætlaður kostn-
aður Reykjavíkurborgar um 350
milljónir króna. Viðbyggingin átti að
vera 85 fermetrar.
Samkvæmt samkomulagi við Perlu
norðursins, leigutaka Perlunnar, á
Reykjavíkurborg að sjá um hönnun
og lagfæringar á húsnæðinu þannig
að leigutaki geti sett upp sýningar.
„Það er verulega vandkvæðum bund-
ið og kemur í veg fyrir eðlilega fram-
vindu og skapar aukakostnað að
breyta tanki fyrir uppsetningu á
stjörnuveri leigutaka nema að tekið
sé fullt tillit til útfærslu sýningar sem
vera á í umræddum tanki,“ segir í
greinargerð skrifstofu eigna og at-
vinnuþróunar hjá borginni.
Perla norðursins mun sjá um
hönnun og uppsetningu stjörnuvers-
ins í tanknum, segir í greinargerð-
inni.
Hringlaga sýningarloft
Meðal þess sem sett verður upp í
tankinum er um 350 fermetra hring-
laga sýningarloft og sýningarbún-
aður sem getur sýnt myndir í 8K.
Stjörnuverið mun taka um 155
manns í sæti. Um er að ræða flókna
framkvæmd sem ekki hefur verið
unnin hér á landi áður og verður
framkvæmd af erlendum aðilum á
vegum leigutaka.
Leigutaki mun einnig setja loft í
forrými stjörnuvers sem norðurljósa-
listaverk til að auka við hughrif gesta.
Bygging þessa listaverks, sem er á
vegum leigutaka, mun tengjast bygg-
ingu lofts í forrými stjörnuvers.
Kostnaður Reykjavíkurborgar verð-
ur 66 milljónir án vsk. fyrir utan
hönnun. Heildarkostnaður við gerð
stjörnuvers í tankinum er áætlaður
400 milljónir króna og lendir megnið
af kostnaðinum hjá leigutaka, Perlu
norðursins.
Í dag eru sex hitaveitutankar í
Perlunni en þeir tryggja nægt miðl-
unarrými hitaveitu í vesturborginni.
Tveir tankanna eru fullir af 35-40°C
heitu „retúrvatni“ en talið er ósætt-
anlegt að geyma vatnið áfram nærri
þeim mikla fólksfjölda sem heimsæk-
ir Perluna.
Því var farið að skoða mögulega
staðsetningu fyrir nýjan tank. Heppi-
legasti kosturinn var talinn sá að
reisa einn tank norðaustan við Perl-
una. Um er að ræða tank sem er um
33 metrar að þvermáli og allt að 10
metrar að hæð. Gert er ráð fyrir að
mögulega verði tankurinn að hluta til
neðanjarðar. Möguleiki er á að nýta
tankinn sem áningarstað fyrir útivist,
svo sem útsýnispalla eða til klifurs.
Æskilegt sé að hafa tankinn í lit sem
fellur vel að umhverfinu, t.d. sama lit
og sígræni gróðurinn í Öskjuhlíðinni.
Tölvuteikning/Landsmótun
Perlan Svona hugsuðu menn sér að viðbyggingin liti út. Stjörnuverið verður sett upp í einum af tönkunum.
Stjörnuverið verður
sett upp í vatnstanki
Reykjavíkurborg hefur hætt við að byggja við Perluna
AÐAL
FUNDUR
Félagið veitir ferða-
styrk til þeirra félags-
manna sem búa í meira
en 40 km fjarlægð frá
fundarstað.
Félags iðn- og
tæknigreina 2018
verður haldinn í Borgartúni 30,
6. hæð, laugardaginn 10 . mars
kl. 11.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu
starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu
og afgreiðslu.
3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
4. Kjöri stjórnar lýst.
5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna
reikninga, og uppstillinganefndar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem
FIT er aðili að.
8. Önnur mál.
Hádegismatur
í boði félagsins.
Stjórnin
„Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
gefur velferðarráðuneytinu upplýs-
ingar um verðbreytingar á ein-
stökum þjónustu- og vöruliðum, s.s
streptokokkarannsóknum og lykkj-
um, sem keyptar eru á hagstæðasta
verði á markaði. Vottorð hækka
vegna launahækkana lækna, sem fá
greitt sérstaklega fyrir útgáfu vott-
orðanna,“ segir m.a. í svari frá Jón-
asi Guðmundssyni, fjármálastjóra
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
(HH), til Morgunblaðsins.
Fram kom í blaðinu í gær að um
mánaðamótin hækkuðu ýmis þjón-
ustugjöld á heilsugæslustöðvum og
sjúkrahúsum. Þá tók gildi ný reglu-
gerð um greiðsluþátttöku sjúkra-
tryggðra í kostnaði vegna heilbrigð-
isþjónustu. Meðal þess sem hækkar
eru gjöld fyrir streptokokkarann-
sóknir, vottorð lækna og krabba-
meinsleit.
Jónas segir að almennt haldist
þessar verðbreytingar í hendur við
verð- og launabreytingar frá því að
reglugerðinni var síðast breytt.
Þá hækka námskeiðsgjöld fyrir
verðandi foreldra og foreldra barna
með ADHD. Að sögn Jónasar má
rekja þær hækkanir til þess að fag-
fólk telji nauðsynlegt að leggja
meira í námskeiðin en áður. „Kostn-
aðaráætlun fyrir námskeiðin lá að
baki tillögu HH um breytt þátttöku-
gjöld fyrir þau. Það er samt ekki svo
að námskeiðsgjöldin fjármagni allan
kostnað við námskeiðin.“
Eins og fram kom í frétt Morgun-
blaðsins í gær hefur HH það hlut-
verk að gera tillögur um breytingar
á reglugerðinni. Jónas segir að sum-
ar tillögur séu teknar til greina í
ráðuneytinu, en aðrar ekki.
„Það er svo rétt að undirstrika að
þau gjöld sem skipta almenning
langmestu máli og skila heilbrigðis-
stofnunum mestum tekjum, svo sem
komugjöld og rannsóknagjöld,
breytast ekki,“ segir ennfremur í
svari Jónasar.
Vottorð hækka
vegna launa lækna
Heilsugæslan svarar til um gjöldin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsugæslan Ýmis þjónustugjöld
fyrir sjúklinga hafa hækkað.