Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018 Ársfundur 2018 fimmtudaginn 22. mars Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 2018 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura kl. 17:15. Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningur 2017 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs. 3. Kynning á fjárfestingarstefnu. 4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. 5. Kosning stjórnar. 6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags. 7. Ákvörðun um laun stjórnar. 8. Önnur mál. Vakin er athygli á því að framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út þann 15. mars 2018 kl. 24:00.Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is. Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur konum og þremur körlum. Á ársfundi lýkur kjörtímabili tveggja kvenna og því skal kjósa tvær konur í aðalstjórn. Að auki skal kjósa einn varastjórnarmann. Ársreikningur sjóðsins, nánari upplýsingar um ársfundinn og breytingar á samþykktum eru á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins. Nánar á nýjum vef www.almenni.is - Hæsta raunávöxtun 2017: 7,9% - Heildareignir: 209 milljarðar - 44 þúsund skráðir sjóðfélagar - 1/3 lágmarksiðgjalds í séreign - Sjö ávöxtunarleiðir í boði - Lífeyrissjóður ársins 2017 í Evrópu* *samkvæmt fagtímaritinu European Pensions Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Kostnaður vegna framkvæmda á veg- um norska Stórþingsins hefur farið 109% fram úr áætlun og veldur nú pólitískum usla í Noregi. Árið 2011 var ákveðið að fara í end- urbætur á byggingum þingsins og áttu þær að kosta um 70 milljónir norskra króna. Árið 2014 var fleiri framkvæmdum bætt við, meðal ann- ars nýju pósthúsi, nýrri vörumóttöku og 250 metra löngum bílagöngum. Með þessum breytingum var gert ráð fyrir að kostnaður yrði 1,1 milljarður norskra króna. Nýlega fréttist að heildarútgjöld til þessa eru 2,3 millj- arðar norskra króna (tæpir 30 millj- arðar íslenskra króna), sem er 1,2 milljarða norskra króna (15,5 millj- arðar íslenskra króna) fram úr upp- haflegri áætlun samkvæmt umfjöllun norska ríkisútvarpsins NRK. Olemic Thommessen, forseti Stór- þingsins, tilkynnti þinginu hinn 20. desember síðastliðinn að kostnaður- inn væri 1,8 milljarðar en gæti þurft að taka minniháttar breytingum. Um miðjan febrúar kom í ljós að heildar- útgjöld vegna framkvæmdanna stæðu í 2,3 milljörðum og í kjölfarið sagði framkvæmdastjóri þingsins, Ida Børresen, starfi sínu lausu. Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins, lýsti því yfir í gær að hann teldi að forseti þingsins ætti að segja af sér vegna málsins, en Støre ætlar ekki að leggja fram van- traust á Thomessen. „Segi hann ekki af sér verður meirihlutinn að finna annan til þess að sinna starfinu,“ sagði Støre við fjölmiðla. Þingmaður Hægriflokksins og for- maður fjárlaganefndar þingsins, Henrik Asheim, hefur hinsvegar talið ótímabært að ræða framtíð Thomes- sen þar sem greinargerð um málið verður lögð fram á þriðjudag. „Við þurfum fyrst að finna lausn í málinu með hag skattgreiðenda í huga og það verður að klára framkvæmdirnar sem fyrst,“ segir Asheim. Stefnt er að því að verkinu ljúki í haust, en það krefst frekari fjár- magns til þess að af því verði. Yfirlit um ýmsar greiðslur úr fram- kvæmdasjóði þingsins hefur verið birt og talsvert um þær fjallað í norskum fjölmiðlum. Þá hafa greiðslur til ráðgjafarfyrirtækisins Multiconsult þótt athyglisverðar, en Stórþingið stefndi fyrirtækinu í des- ember á síðasta ári þar sem þingið tel- ur fyrirtækið ábyrgt fyrir auknum kostnaði framkvæmdanna, krefst þingið 125 milljóna norskra króna í skaðabætur. Útgjöld 109% umfram áætlun  Framkvæmdir á vegum norska Stórþingsins eru 1,2 milljarðar norskra króna umfram áætlun  Verkamannaflokkurinn krefst þess að þingforsetinn segi af sér Ljósmynd/Stortinget Stórþingið Vegna breytinga á skrifstofubyggingu norska Stórþingsins hefur allt verið rifið að innan og er búið að grafa undir bygginguna, útveggir hússins eru varðir með 130 tonnum af stálgrindum. Áður óþekkt og blómlegt nýlendu- svæði adélie-mörgæsa hefur upp- götvast á afskekktum eyjaklasa við austanvert Suðurskautslandið. Þessi uppgötvun hefur komið vísinda- mönnum verulega á óvart þar sem þessi mörgæsategund hefur verið talin í mikilli hættu í vesturhluta suð- urskautsins vegna bráðnandi hafíss segir í frétt AFP. 750 þúsund pör Þegar fyrstu talningu lauk á Dan- ger-eyjum kom í ljós að þar eru yfir 750 þúsund pör adélie-mörgæsa, sem eru fleiri mörgæsir af þessari tegund en á Suðurskautsskaganum öllum. „Þetta kemur vissulega á óvart og mun hafa veruleg áhrif á það hvernig við munum stjórna svæðinu,“ er haft eftir Heather Lynch við Stony Brook-háskóla. Danger-eyjar, eða Hættu-eyjar, eru við enda Suðurskautsskaga, næst Suður-Ameríku, og eru sjaldan heimsóttar. Eyjarnar fundust ekki fyrr en 1842 af James Clark Ross, sem gaf eyjunum þetta nafn vegna þess að þær voru faldar bak við þykkan hafís og sáust ekki fyrr en skip hans hafði nánast strandað. „Það er ástæða fyrir því að þær eru kallaðar Danger-eyjar,“ er haft eftir Lynch. Þessar erfiðu aðstæður út- skýra hugsanlega hvers vegna þessi mörgæsanýlenda hefur ekki upp- götvast fyrr, en mörgæsirnar fund- ust með notkun gervihnatta. Með stærri mörgæsum Adélie-mörgæsir eru meðal stærstu núlifandi mörgæsa í heimi. Þær geta orðið 3-5 kg, 70 cm á hæð og þær geta lifað í allt að 20 ár. Varp- tími þeirra er frá desember til febr- úar og velja pörin ávallt sama hreið- urstað á hverju ári. Þessi tegund mörgæsa er kjötæta og getur ferðast allt að 300 km í leit að æti. gso@mbl.is 1000 km 1,5 milljónir fugla í mörgæsa- byggð Heimildir:AFP Photos, IUCN Weddell- haf Danger- eyjar Meginísinn 200 km Adélie-mörgæs Pygoscelis adeliae Suðurpóllinn Suðurskautslandið SUÐUR- ATLANTSHAF Síle Mörgæsabyggð kom á óvart  1,5 milljónir fugla á afskekktri eyju Kosið er til þings á Ítalíu á sunnudag og hefur Silvio Berslusconi, fyrrverandi for- sætisráðherra, snúið aftur á svið ítalskra stjórnmála. Þrátt fyrir að hafa átt litríkan stjórnmálaferil mælist kosningabandalag Berlus- conis með mest fylgi í könnunum, eða 37,5%. Matteo Renzi og mið-vinstra bandalagið hefur tapað talsverðu fylgi og mælist með 25,9%. Fimm- stjörnuhreyfingin, undir forystu hins 31 árs gamla Luigi Di Maio, mælist óvænt með 26,3%. Kjósa á í 630 þingsæti og 350 öld- ungadeildarsæti. ÍTALÍA Berlusconi efstur – stefnir í óvissu Silvio Berlusconi Í dag er haldinn fundur í ráð- gjafarráði kín- verska Komm- únistaflokksins. Í ráðinu sitja meðal annars yfir 150 auðkýf- ingar. Sam- kvæmt AFP er virði samanlagðra auðæfa þess- ara fulltrúa um 650 milljarðar bandaríkjadala, eða þrjátíu og tvisvar sinnum þjóðarframleiðsla Íslands. KÍNA Ríkir fulltrúar kommúnista
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.