Morgunblaðið - 03.03.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 03.03.2018, Síða 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018 Núna í vetur hafa umferðarmálin á höf- uðborgarsvæðinu ver- ið í brennidepli vegna aukinnar bíla- umferðar og meiri umferðartafa á ann- atíma. Þótt umferð- artafir teljist í raun ekki miklar í sam- anburði við margar aðrar borgir vestan hafs og austan finnst mörgum ástandið óviðunandi. Margir vilja að ráðist verði í umfangsmiklar framkvæmdir við stofnbrautir til að leysa úr þessum umferð- arteppum. Á sama tíma er verið að breyta svæðisskipulagi höf- uðborgarsvæðisins til að koma fyrir Borgarlínu. Borgarlína er hágæðakerfi almennings- samgangna sem er einskonar strætó á „sterum“ sem keyrir í sínu eigin rými og verður fyrir litlum töfum í umferðinni og er hægt að aðlaga stærð vagna að eftirspurn yfir daginn. Skipulags- verkefnið um Borgarlínu er líka áætlun um þéttingu byggðar næst fyrirhugaðri legu línunnar sem gerir aðra samgöngumáta meira aðlaðandi á þeim svæðum, færir almenningssamgöngur nær fólki og skapar blandaða byggð með nærþjónustu í göngufæri. Raun- hæft er að gera ráð fyrir að hafist verði handa við fyrsta áfanga Borgarlínu eftir um 2-4 ár og að lokið verði við fyrsta áfanga eftir um 10 ár. Gera má ráð fyrir að seinni áfangar verði kláraðir eftir um 20 ár. Nauðsynlegt er að ráðast í ýms- ar aðgerðir til að draga úr töfum í umferðinni og greiða fyrir samgöngum allra ferðamáta. Borgarlína mun þeg- ar hún kemur verða álitlegur kostur. Strætó hefur þegar brugðist við með því að auka tíðni á lyk- illeiðum og keyrir á meiri tíðni á ann- atíma og mikil aukn- ing hefur orðið í fjölda farþega þótt hlutdeild ferða með strætó hafi ekki aukist í sama hlutfalli vegna aukins ferðafjölda á höfuðborg- arsvæðinu. Margir horfa von- araugum til sjálfkeyrandi bila og samnýtingar þeirra en líkur benda til þess að þeir komi kannski eftir um 20-30 ár. Hvað er þá til ráða meðan við bíðum eftir langtíma lausnum? Úrbætur á stofnbrautakerfinu Hugsanlega er hægt að ráðast í úrbætur á stofnbrautakerfinu sem gæti dregið úr umferðartöfum. Það kostar í flestum tilvikum háar fjárhæðir því vandinn þar er að við búum nú þegar við ofvaxið umferðarkerfi miðað við umferð yfir daginn. Til að vinna á töfum á annatíma þurfum við að byggja enn tröllvaxnara umferðarkerfi til að hindra tafir sem eiga sér stað tvisvar á dag í stuttan tíma í einu. Hvaða aðgerðir þar eru lík- legastar til að skila mestum ár- angri með minni töfum og auknu umferðaröryggi læt ég þó um- ferðarsérfræðingum eftir að sinni. Forgangsakreinar strætó Fleiri og lengri forgangsak- reinar strætó gætu dregið úr um- ferðartöfum og fengið fleiri til að velja almenningssamgöngur. Ef forgangsakreinar nýtast Borg- arlínunni er það borðleggjandi að við ættum að ráðast sem fyrst í lagningu fleiri forgangsakreina. Jafnvel í þeim hverfum þar sem Borgarlínan er ekki fyrirhuguð munu forgangsakreinar nýtast strætó í framtíðinni. Samnýting bíla Meðalfjöldi í bíl er kannski um 1,2 á annatíma og er ljóst að bílar geta flutt miklu fleiri en þeir gera. Ef 2 sitja í hverjum bíl frekar en 1,2 mundi umferð bíla t.d. minnka um 40% en það sem máli skiptir, samgöngur og fólks- flutningar væru þeir sömu. Um- ferðartafir eru vegna þess að lítið hlutfall bætist ofan á fjöldann sem fyrir er þannig að minnkun umferðar um örfá % getur komið í veg fyrir nær allar umferð- artafir. Ef meðalfjöldi ein- staklinga í bíl ykist í 1,3 ein- staklinga í bíl úr 1,2 mundi umferð geta minnkað um 8% og umferðartafir heyra sögunni til að mestu sbr. meðfylgjandi súlu- rit. Hvaða skynsemi er í að bíða í 20-30 ár eftir sjálfkeyrandi bílum áður en við aukum samnýtingu bíla? Hvar er deilihagkerfið og „öppin“ sem gera fólki í úthverf- unum kleift að samnýta bíla á leið í vinnu og skóla? Eru hugmyndir um samnýtingu sjálfkeyrandi bíla kannski óraunhæfar? Gjaldskyld bílastæði Það er ótvírætt að frí bílastæði hvetja til aksturs og auka umferð. Sennilegt er að margar stuttar bílferðir væru aldrei farnar ef ekki væri frítt bílastæði í enda ferðar. Það er líka slæmt að elds- neytiseyðsla og mengun er mest í stuttum bílferðum þegar bílar eru ræstir kaldir. Líklegt er að lengri bílferðir yrðu einnig færri eða að fleiri mundu samnýta bíla ef bíla- stæði í enda ferðar mundu kosta notandann. Það væri ódýr og ár- angursrík leið til að draga úr um- ferðartöfum að fjölga gjald- skyldum bílastæðum í borgarumhverfi. Ef gjaldskylda væri t.d. á öllum bílastæðum í há- skólum, framhaldsskólum, í Borg- artúni, við verslanamiðstöðvar og í miðlægum hverfum er líklegt að umferð mundi minnka um þó nokkur prósent og að umferð- artafir myndu minnka eða hverfa. Með gjaldskyldu á bílastæðum gætum við sparað okkur umtals- verð útlát við umferðarmannvirki. Gjaldskylda á bílastæðum ætti alltaf að vera fyrsti valkostur sem yfirvöld ættu að skoða áður en hugað er að nýjum vegafram- kvæmdum í þéttbýli. Hversvegna að eyða 10 milljörðum í mislæg gatnamót ef gjaldskylda í bíla- stæðum gerir sama eða meira gagn? Minni umferðartafir Eftir Árna Davíðsson »Hversvegna að eyða 10 milljörðum í mislæg gatnamót ef gjaldskylda í bíla- stæðum gerir sama eða meira gagn? Árni Davíðsson Höfundur er líffræðingur. arnid65@gmail.com Allt um sjávarútveg Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Karlakórinn Heimir heldur tónleika á Akranesi föstudaginn 9. mars kl. 20.30 í Tónbergi og í Reykjavík laugardaginn 10. mars kl. 14.00 í Langholtskirkju Æringjarnir Óskar Pétursson, Birgir Björnsson og Valmar Väljaots koma fram með kórnum. Stjórnandi: Stefán R Gíslason Undirleikari: Thomas R Higgerson. . . . www.heimir.is Miðar seldir við innganginn, verð: kr. 4.000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.