Morgunblaðið - 03.03.2018, Side 39
Kveðja frá
Íþrótta- og ól-
ympíusambandi Íslands
Jóhannes Sigmundsson, fyrr-
verandi bóndi og kennari í
Syðra-Langholti 3 í Hruna-
mannahreppi og heiðursfélagi
ÍSÍ, er látinn, 86 ára að aldri.
Heiðursfélagi ÍSÍ er æðsta við-
urkenning innan vébanda ÍSÍ og
hana hljóta þeir sem helgað hafa
líf sitt íþróttum.
Jóhannes stundaði íþróttir
alla tíð og tók þátt í félagsmálum
frá unga aldri. Hann var m.a. í
stjórn Ungmennafélags Hruna-
manna, í varastjórn Ungmenna-
félags Íslands og formaður Hér-
aðssambandsins Skarphéðins í
tíu ár. Hann átti einnig sæti í
mörgum nefndum og ráðum inn-
an vébanda HSK og var kjörinn
heiðursformaður sambandsins á
árinu 2011. Hann var einnig for-
maður Kennarafélags Suður-
lands og Ferðamálasamtaka
Suðurlands og sat í Ferðamála-
ráði Íslands fyrir ferðaþjón-
ustuna á Suðurlandi.
Jóhannes var kjörinn heiðurs-
félagi ÍSÍ á 60. Íþróttaþingi ÍSÍ
árið 1990 og var alla tíð afar
áhugasamur um starfsemi og
verkefni ÍSÍ. Hann sótti flesta
viðburði sem heiðursfélögum ÍSÍ
er boðið til og var ötull talsmað-
ur og stuðningsmaður íþrótta.
Verður hans sárt saknað, ekki
síst af félögum hans í hópi heið-
ursfélaga ÍSÍ.
Stjórn og starfsfólk Íþrótta-
og ólympíusambands Íslands
sendir eftirlifandi konu hans og
afkomendum öllum dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ.
Jóhannesi Sigmundssyni frá
Syðra-Langholti í Hrunamanna-
hreppi kynntist ég fyrst er leiðir
okkar lágu saman í Héraðsskól-
anum á Laugarvatni haustið
1948. Við hófum þá nám í eldri
deild skólans en svo var 2. bekk-
ur kallaður. Kom brátt í ljós að
Jóhannes var afburða námsmað-
ur og mikill félagsmálamaður.
Hann var valinn formaður nem-
endafélagsins er við settumst í
landsprófdeild haustið eftir. Á
þessum árum störfuðu fram-
haldsdeildir við Héraðsskólann.
Bjarni Bjarnason skólastjóri og
kennarar hans stefndu mark-
visst að því að menntaskóla í
sveit tæki til starfa á Laugar-
vatni. Varð sá draumur að veru-
leika 12. mars 1953 er Mennta-
skólinn að Laugarvatni var
stofnaður. Eftir landspróf, vorið
1950, héldu allmargir nemendur
Héraðsskólans áfram námi á
Laugarvatni og ýmsir fleiri
bættust í hópinn úr öðrum skól-
um. Bekkjarbræður Jóhannesar
í stærðfræðideild voru þeir Árni
Ólafsson frá Syðstu-Mörk undir
Eyjafjöllum, Óskar H. Ólafsson
frá Fagradal í Mýrdal, Sveinn
Sveinsson frá Selfossi og
Tryggvi Sigurbjarnarson frá
Ytri-Njarðvík. Þeir luku allir
námi frá ML vorið 1954 ásamt
þeim bræðrum Árna og Herði
Bergmann úr Keflavík, Unnari
Stefánssyni frá Hveragerði, Víg-
lundi Þorsteinssyni frá Vest-
mannaeyjum og Þórði Kr. Jó-
hannssyni frá Neskaupstað, sem
voru í máladeild. Þetta voru því
10 fyrstu stúdentarnir sem út-
skrifuðust úr Menntaskólanum
Jóhannes
Sigmundsson
✝ Jóhannes Sig-mundsson
fæddist 18. nóv-
ember 1931. Hann
lést 19. febrúar
2018.
Útför Jóhann-
esar fór fram 2.
mars 2018.
að Laugarvatni.
Eftir stúdentsprófið
dreifðist hópurinn,
allmargir hófu nám
við Háskóla Íslands
og héldu þar vel
hópinn. Þeir sem
hafa verið saman í
heimavistarskóla
4-6 ár bindast ævi-
löngum vináttu-
böndum. Við fé-
lagarnir höfum
alltaf hist á 10 ára fresti við
skólaslit á Laugarvatni.
Á Laugarvatni kynntist Jó-
hannes eftirlifandi konu sinni,
Hrafnhildi Jónsdóttur frá Sauð-
árkróki. Hún var þá við nám við
Húsmæðraskóla Suðurlands á
staðnum. Eftir Laugarvatnsárin
hófu þau hjónin búskap að
Syðra-Langholti og Jóhannes
var jafnframt kennari við Grunn-
skólann á Flúðum. Einnig voru
þau hjón um margra ára skeið
með ferðaþjónustu að Syðra-
Langholti. Eins og áður kom
fram var Jóhannes mikill félags-
málamaður. Hann var m.a. for-
maður Skarphéðins í áratug. Jó-
hannes var ágætur íþróttamaður
og náði afburða árangri í stang-
arstökki. Á seinni árum stundaði
hann golf af miklum áhuga. Mér
er minnisstætt þegar við fé-
lagarnir héldum upp á 50 ára
stúdentsafmælið 2004 og fórum í
ferð um Snæfellsnes og gistum í
Langaholti. Þegar við komum í
morgunverð komu Jóhannes og
Sveinn Sveinsson í hús, höfðu
verið að spila golf frá því kl. 6
um morguninn.
Þau Jóhannes og Hrafnhildur
eignuðust sjö börn og er afkom-
endahópurinn orðinn býsna stór
og glæsilegur. Við Margrét
sendum Hrafnhildi og börnunum
innilegar samúðarkveðjur.
Óskar H. Ólafsson.
Nú er skarð fyrir skildi innan
HSK. Í dag kveðjum við Jóhann-
es Sigmundsson, góðan vin og
samstarfsmann í gegnum árin.
Jóhannes var afar ljúfur, hlýr,
ákveðinn og röskur í allri fram-
göngu. Það var gott að vera í ná-
vist hans, mikill húmoristi, þægi-
leg persóna að umgangast. Hann
var heiðarlegur og heill í störfum
sínum fyrir HSK.
Lífið er fjölbreytt og litskrúð-
ugt af því að við erum ólíkir ein-
staklingar. Í samfylgd okkar er-
um við sífellt að miðla, gefa og
þiggja. Jóhannes kunni vel þetta
mikilvæga samspil. Hann var
góðum gáfum gæddur og hæfi-
leikar hans komu fram í látlausu
og hógværu lífi.
HSK á að baki rúmlega 100
ára sögu. Jóhannes á þar stóran
kafla, en sögusvið hans spannar
yfir 60 ár. Guðríður naut góðs af
þegar hún tók við formennsku í
HSK að geta leitað í smiðju til
Jóhannesar. Hann var ávallt
reiðubúinn að fræða og aðstoða
og var ávallt til staðar þegar
hjálpar var þörf. Við kunnum vel
að meta störf hans og leiðsögn
og við bárum virðingu fyrir
framlagi hans í þágu Skarphéð-
ins.
Störf sjálfboðaliðanna er
helsti drifkraftur okkar í íþrótta-
starfinu. Árið 2017 ákvað Jó-
hannes að láta staðar numið að
sinni í nefndarsetu á vegum
sambandsins eftir rösklega 60
ára setu í stjórn eða nefndum
hjá HSK.
Jóhannes var mikill íþrótta-
maður og vann oft til verðlauna á
íþróttamótum. Ungur að árum
var hann liðtækur frjálsíþrótta-
maður. Þá var hann árum saman
leikmaður í körfuboltaliði
Hrunamanna og einnig HSK.
Hin síðari ár áttu bridds og golf
hug hans allan. Jóhannes keppti
samfleytt á héraðsmótum HSK í
meira en hálfa öld. Jóhannes var
einstakur maður og er sjálfsagt
afar fátítt að fyrrverandi for-
maður, sem hætti sem slíkur fyr-
ir 35 árum, taki svo virkan þátt í
starfinu sem raun bar vitni.
Stjórn HSK samþykkti einróma
á fundi sínum árið 2011 að gera
Jóhannes að heiðursformanni
HSK á 80 ára afmælisári sínu og
má segja að hann hafi verið vel
að því kominn.
Lán okkar HSK-félaga er sá
kærleikur og umhyggja sem Jó-
hannes sýndi sambandinu alla
tíð. Án hans framlags hefði sam-
bandið ekki staðið jafn traustum
fótum og raun ber vitni. Við vit-
um að héraðsþingið okkar í
næstu viku verður fábrotnara nú
þegar Jóhannes er fallinn frá.
Við söknum góðs vinar í stað og
kveðjum góðan, hlýjan og traust-
an félaga. Um öll hans góðu störf
fyrir Héraðssambandið Skarp-
héðin mætti hafa mörg orð og
enginn vafi er á að orðstír hans á
því sviði mun lengi vera í hugum
okkar.
Við HSK félagar þökkum vini
okkar, Jóhannesi Sigmundssyni,
samfylgdina sem hefur verið
okkur ómetanleg og sannarlega
sett mark sitt á Héraðssamband-
ið Skarphéðin. Hann var sann-
arlega góður vinur, sannur vin-
ur, vinur vina sinna. Einlægur í
öllu því sem hann tók sér fyrir
hendur, sannur ungmennafélagi.
Stjórn HSK vottar ástvinum
Jóhannesar okkar dýpstu sam-
úð.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Guðríður Aadnegard,
formaður HSK,
Engilbert Olgeirsson,
framkvæmdastjóri HSK.
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför okkar ástkæra
JÓNS ÞORBERGS EGGERTSSONAR,
fyrverandi skólastjóra.
Ólafur Ólafsson Alda Konráðsdóttir
Svala Haukdal Jónsdóttir Kjartan Oddur Þorbergsson
Þórdís Elva Jónsdóttir Hafsteinn Ágústsson
Guðríður Erna Jónsdóttir Ólafur Ágúst Gíslason
Jórunn Linda Jónsdóttir
og fjölskyldur
Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR KRISTVARÐSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fyrir alúð og umhyggju fær
starfsfólk á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Agnar Erlingsson Elín Erlingsson
Þorkell Erlingsson Margrét Hrefna Sæmundsd.
Ólafur Erlingsson Anna Arnbjarnardóttir
Kristinn Ágúst Erlingsson Sølvi Aasgaard
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
GUÐJÓNS EMILSSONAR,
Laxárhlíð,
Hrunamannahreppi.
Sigríður Guðmundsdóttir
Emil Guðjónsson Alma Guðmundsdóttir
Eyrún Guðjónsdóttir
Guðmundur Guðjónsson Berglind Bára Hansdóttir
Steinar Guðjónsson Hrönn Erlingsdóttir
og afabörnin öll
Elsku mamma, tengdamamma, amma
og langamma,
INGUNN SIGHVATSDÓTTIR
frá Túnprýði, Stokkseyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
miðvikudaginn 21. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegt þakklæti sendum við starfsfólki á hjúkrunarheimilunum
Kumbaravogi, Stokkseyri og Ási, Hveragerði.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
FALLEGIR LEGSTEINAR
til 15.mars
af öllum legsteinum
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Afsláttur
Hjartans þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
PÉTURS SIGURÐSSONAR
efnafræðings,
Funafold 48.
Jóhanna Ólafsdóttir
Helgi Pétursson Guðný Unnur Jökulsdóttir
Tryggvi Pétursson Kristín Hrönn Guðmundsdóttir
Þorkell Pétursson
barnabörn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og
amma okkar,
SIGRÍÐUR KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Borgarspítalanum laugardaginn
10. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Eyrún Olsen Jensdóttir Hjörtur Þórarinsson
Ásberg Ástþórsson
Auðunn Ástþórsson
Ástkær frændi okkar og vinur,
FRIÐRIK ÁRNASON,
Fiddi,
Njarðarvöllum 2, Njarðvík,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum, mánudaginn
19. febrúar. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir sérstaklega góða
umönnun og hlýju.
Aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN ÞORKELSSON,
Lyngholti 9, Akureyri,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð 28. febrúar.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 9. mars klukkan 10.30.
Oddný Óskarsdóttir
Þorkell Björnsson Elísabet Sveinsdóttir
Sigrún Ósk Björnsdóttir Pétur Ægir Hreiðarsson
Björn Óskar Björnsson Ásta Einarsdóttir
Ingvi Þór Björnsson Jónína Freydís Jóhannesdóttir
Eidís Anna Björnsdóttir Jóhann Elvar Tryggvason
afa- og langafabörn
Elskuleg móðir okkar,
ERLA SIGRÍÐUR HANSDÓTTIR,
Akranesi,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða
23. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 9. mars klukkan 13.
Ólafía Guðrún Ársælsdóttir
Ellert Ársælsson
Edda Björk Ársælsdóttir
Gunnar Ársæll Ársælsson