Morgunblaðið - 03.03.2018, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Útboð nr. 20269
Blönduvirkjun
Gilsárstífla, endurnýjun ölduvarnar og
hreinsun úr setgildrum
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í verkið
„Blönduvirkjun, Gilsárstífla, endurnýjun
ölduvarnar og hreinsun úr setgildrum“ í
samræmi við útboðsgögn nr. 20269.
Verkið felst í að endurnýja ölduvarnarfyllingu
á Gilsárstíflu við inntakslón Blönduvirkjunar
ásamt hreinsun úr setgildrum í farvegi Gilsár
neðan stíflunnar.
Helstu magntölur eru:
Vinnsla og flutningur á
ölduvarnargrjóti: 10.000 m³
Fjarlæging ölduvarnargrjóts
úr stíflu: 10.000 m³
Frágangur á fláavörn: 16.000 m²
Endurröðun ölduvarnar-
fyllingar í stíflu: 20.000 m³
Framkvæmdatími er frá byrjun júlí 2018 og
skal verkinu að fullu lokið 1. desember 2018.
Yfirborð Gilsárlóns verður lækkað í áföngum
þegar unnið er við ölduvarnarfyllingu.
Vettvangsskoðun fer fram þann 14. mars
2018 í samræmi við útboðsgögn nr. 20269.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef
Landsvirkjunar, http://utbod.lv.is
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir klukkan
12:00 þriðjudaginn 27. mars 2018 þar sem
þau verða opnuð kl. 14:00 sama dag og lesin
upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Landsnet stuðlar að öflugu og öruggu flutningskerfi raforku um landið og ábyrgist þannig heilbrigt fjárfestingar-
umhverfi fyrir íslenskan raforkumarkað auk minni sóunar í raforkugeiranum í heild. Höfuðáhersla er lögð á
flutningsnetið í öllum ákvörðunum sem snúa að fjárfestingum og rekstri og ávallt er tekið mið af þjóðhagslegum
hagsmunum. Landsnet fer vel með þá fjármuni sem fyrirtækinu er treyst fyrir, sýnir ráðdeild, kostnaðarvitund og
hagsýni við uppbyggingu og rekstur flutningskerfa.
Landsnet hf. óskar eftir hæfum aðilum til að taka þátt í útboði rammasamnings um ráðgjafaþjónustu vegna
verkhönnunar, útboðshönnunar og framkvæmdaeftirlits. Forvalinu verður skipt í þrjá hluta:
1. Verkhönnun
2. Útboðshönnun
3. Eftirlit
Forvalsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Landsnets Delta e-sourcing, frá og með 7. mars næstkomandi,
nánari upplýsingar um hvernig hægt er að nálgast forvalsgögn má finna á www.utbodsvefur.is.
Kynningafundur vegna þessa forvals verður þann 14. mars kl. 14:30 hjá Landsneti,
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík. Óskað er eftir að þátttakendur tilkynni
mætingu í gegnum útboðsvef Landsnets. Umsóknum skal skila
rafrænt fyrir kl. 11:00 þann 23. mars 2018.
FORVAL VEGNA ÚTBOÐS
Á VERKFRÆÐIRÁÐGJÖF
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Tilkynningar
ÚTBOÐ
GATNAGERÐ
Glaðheimar
Yfirborðsfrágangur á götum og stígum
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í yfirborðsfrágang
á götum, stígum, gangstéttum, torgum og opnum
svæðum á Glaðheimasvæðinu. Götur sem um ræðir
eru Álalind og að hluta Glaðheimavegur og Bæjarlind.
Lokið er við að leggja allar lagnir og jarðvegsskipta
í götum og stígum og fellst í verkinu að fullgera
yfirborð gatna, stíga, gangstétta og opinna svæða
með annaðhvort malbiki, hellulögn, grasi eða steypu.
Helstu magntölur eru:
Malbikun 6.800 m²
Hellulögn 4.500 m²
Steypa 70 m³
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2018.
Útboðsgögn verð afhent rafrænt og skulu þeir, sem
óska eftir útboðsgögnum fyrir verk þetta, senda
tölvupóst á netfangið utbod@kopavogur.is, frá og með
þriðjudeginum 6. mars nk. Í tölvupósti skal koma fram
nafn tengiliðs vegna útboðsins, símanúmer, netfang og
nafn fyrirtækis.
Tilboð skulu hafa borist í þjónustuver Kópavogs,
Digranesvegi 1, 200 Kópavogur fyrir kl. 11:00
þriðjudaginn 20. mars 2018. Og verða þau þá opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.
Landsnet hefur í hyggju að endurnýja samninga við Landsvirkjun um kaup á reiðuafli. Annars vegar er fyrirhugað
að endurnýja fyrir 30. apríl nk. samning um reiðuafl í Fljótsdalsstöð. Hins vegar er fyrirhugað að endurnýja fyrir
31. desember nk. samning um reiðuafl á Þjórsársvæði. Um er að ræða 30 MW reiðuafl í Fljótsdalsstöð og önnur
30 MW á Þjórsársvæði. Nánar er fjallað um reiðuafl og kerfisþjónustu í reglugerð nr. 513/2003 um kerfisstjórnun í
raforkukerfinu og í Netmála C2: Skilmálar um kerfisþjónustu Landsnets hf. Jafnframt vísar Landsnet til skilgreininga
og tæknilegra krafna til aflvéla, sem fram koma í nýjasta samningi við Landsvirkjun um reiðuafl á Þjórsársvæði og
Blöndu, sem tók gildi 1. janúar 2017 og finna má á heimasíðu Landsnets.
Landsvirkjun er í dag eini aðilinn á Íslandi sem uppfyllir þær kröfur sem Landsnet gerir til tíðnistýrðs reiðuafls.
Landsnet metur það hins vegar svo að það sé æskilegt að til staðar séu fleiri aðilar á þessum markaði og hvetur því
markaðsaðila á raforkumarkaði að skoða hvort þeir séu viljugir og hæfir til þess að veita þessa mikilvægu þjónustu.
Landsnet áformar á árinu að auglýsa eftir þátttakendum í nýsköpunarsamstarf en þar mun aðilum gefast tækifæri til
að þróa þjónustu sína í samstarfi við Landsnet þannig að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til reiðuafls.
Hafi aðilar athugasemdir við endurnýjun samninga við Landsvirkjun
eru þeir hvattir til að koma þeim á framfæri við Landsnet
fyrir 22. mars 2018 á tölvupóstfangið landsnet@landsnet.is
með efnislínu merkta „Reiðuafl 2018, athugasemdir“.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
INNKAUP Á REIÐUAFLI
Fyrirhuguð endurnýjun samninga um innkaup á reiðuafli
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi