Morgunblaðið - 03.03.2018, Page 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Þorvaldur Ingi Jóns-son, þróunarstjórihjá Sjúkratrygg-
ingum Íslands, á 60 ára af-
mæli í dag, en hann er við-
skiptafræðingur að mennt
með meistarapróf í stjórn-
un og stefnumótun. „Við
eigum í samskiptum við
alla Íslendinga hjá Sjúkra-
tryggingum og erum á
hverri einustu nóttu að
uppreikna stöðu og rétt-
indi þeirra. Hvað og hve
mikið hver og einn á að
borga í komugjöld þegar
hann fer til sjúkraþjálfara,
sérfræðings eða inn á spít-
ala.
Stundum er ekki skiln-
ingur á að þetta þurfi að
kosta eitthvað, en við
leggjum okkur fram um að
vinna vel og ætlum að gera
betur. Í fyrra voru 310.000
Íslendingar sem áttu í við-
skiptum við apótek, sérfræðinga og aðra þjónustu sem fer í gegnum
Sjúkratryggingar og við reynum að þjóna þeim í rauntíma.
Til að hafa orku og úthald í þetta þá stunda ég Qigong, en í því er
lögð áhersla á að byggja upp innri styrk og bæta heilsuna til að vera
kærleiksrík og góð manneskja. Ég lærði Qigong-lífsorkuæfingarnar
fyrst hjá meistara Gunnari Eyjólfssyni leikara og hef síðan farið á
fjölda námskeiða með kínverskum meisturum.“ Þorvaldur heldur í
dag námskeið tengd Qigong-lífsorkunni, fyrir almenning og stjórn-
endur. „Ég er einnig mikill áhugamaður um jákvæða leiðtogastjórn-
un, golf og veiði, útivist og berjatínslu.“
Eiginkona Þorvaldar er Sigurborg Hrönn Sævaldsdóttir, kennari í
Hvaleyrarskóla, Þorvaldur á einn son, Inga Má, sex stjúpbörn og tíu
afa- og stjúpafabörn.
Þorvaldur er staddur úti í Verona ásamt eiginkonu, systrum sínum
tveimur og mökum og vinum, samtals tólf manns. „Það er íslenskt
veður hérna í Verona, smá slydda en allir kátir samt. Í dag ætlum við
út að borða á elsta veitingastað á Ítalíu, og jafnvel Evrópu, frá fyrri
hluta 17. aldar. Þannig að það stendur mikið til hér í borg Rómeós og
Júlíu. Ég skila góðri kveðju til Íslands og við hjónin ætlum síðan að
halda giftingarveislu á Íslandi í júní.“
Hjónin Þorvaldur og Sigurborg.
Staddur í borg
Rómeós og Júlíu
Þorvaldur Ingi Jónsson er sextugur í dag
Ó
mar Vignir Lúðvíksson
fæddist á Hellissandi
5.2. 1948, ólst þar upp og
hefur átt þar heima
lengst af. Hann var í
barna- og gagnfræðaskóla á Hellis-
sandi, stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík, lærði trésmíði hjá Smára,
bróður sínum, lauk sveinsprófi í þeirri
grein 1968, öðlaðist meistararéttindi
1972 og stundaði nám við Meist-
araskólann.
Ómar stundaði fiskvinnslu á Hellis-
sandi á unglingsárunum en hefur
stundað trésmíðar frá því hann lauk
sveinsprófinu, fyrst með bróður sín-
um en síðar lengst af á eigin vegum.
Þá var hann slökkviliðsstjóri á Hellis-
sandi í 17 ár.
Ómar var umsjónarmaður fast-
eigna í Snæfellsbæ á árunum 2007-
2016. Hann sat í hreppsnefnd Nes-
hrepps utan Ennis í 12 ár og var síð-
asti oddviti hreppsins fyrir sam-
Ómar Vignir Lúðvíksson, trésmíðameistari á Hellissandi – 70 ára
Við Hólmkelsá Ómar rennir fyrir lax í sumarblíðunni. Svöðufoss fyrir miðri mynd og Snæfellsjökull í baksýn.
Ræktar sumarblómin
sín og rennir fyrir fisk
Afastrákar Ómar með lítinn lax en Sigmar og Gunnar fylgjast grannt með.
Ásdís Helga
Agnarsdóttir og
Damian Daniel
Eisermann giftu
sig 7. janúar 2018
í Selfosskirkju.
Árnað heilla
Brúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Svampþvottastöð
Afkastamikil sjálfvirk
þvottastöð sem getur þvegið
allt að 50 bíla á klukkustund.
Opið virka daga kl. 8 -19
helgar kl. 10 – 18.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.