Morgunblaðið - 03.03.2018, Qupperneq 52
900 9901 Fókus hópurinn flytur Battleline eftir Sigurjón
Örn, Rósu Björgu, Michael James Down og Primoz Poglajen.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Jæja, byrjum á því jákvæða.
Söngvakeppnin er æði. Hún er fyrst
og síðast skemmtileg. Spennandi.
Fjörug og skapandi. Gleði og
glaumur – afþreying númer eitt, tvö
og þrjú. En líka á stundum upplyft-
andi, gildiseflandi og uppspretta sí-
gildra, gullvægra dægurlaga. Þetta
er mín blýfasta trú og skoðun og ég
ætla að horfa með glennt augu og
eyru í kvöld.
Vindum okkur þá í hið nei-
kvæða. Hvernig sem við reynum að
líta á það, þá er þetta ár búið að
vera í slappara lagi hvað gæði varð-
ar. Já, ég sagði það. Og það er ekki
bara ég, það er orðið á götunni,
þessum götum sem verða tómar í
kvöld. Og ekkert óeðlilegt við það,
það eru feit ár og mögur í þessu
eins og öðru. En það segir sitthvað
að ekki þótti ástæða til að hleypa
sjöunda laginu áfram í ár, líkt og
gert var í fyrra. En er eitthvað sem
veldur þessu?
Himinhrópandi þunnildi
margra þeirra laga sem kepptu í ár
er slíkt að ég get ekki einu sinni
Lífið er lag
hugsað um það hvernig hin, tæp-
lega 200 lögin sem send voru inn,
hljóma. Spáið í það! Veit samt ekki
hvort ástæða sé til að endurskoða
fyrirkomulagið. Ráða vana höfunda
til að skila af sér lögum? Treysta á
reynsluna? Það heftir þó um leið
nýja og vonbjarta höfunda.
Þegar Áttan söng sig inn í úr-
slit héldu aðalsöngvararnir ekki
lagi. Það var voðalegt að hlusta á
þetta. Í Músíktilraunum tíðkaðist
það oft að heilu rúturnar með
stuðningsfólki komu til að kjósa sitt
fólk áfram. Í úrslitum voru því oft
hljómsveitir sem áttu ekki að vera
þar. Þetta var svipað með Áttuna í
ár. Það er lítill pönkari í mér sem
er samt dálítið skotinn í þessu
framtaki þeirra, einmitt af þessum
Í kvöld verður spurt að leikslokum í Söngvakeppninni. Förum aðeins yfir
stöðuna af því tilefni, endurmetum lögin og spáum aðeins í spilin.
900 9902 Egill Ploder og Sonja Valdin (Áttan)
flytja Here for you eftir Egill og Nökkva Fjalar.
900 9903 Ari Ólafsson flytur lagið Our choice eftir Þórunni Ernu Clausen.
Söngvakeppnin 2018
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudaginn 4. mars kl. 14: Barnaleiðsögn
Sunnudaginn 4. mars kl. 14-16: Áttu ljósmynd í fórum þínum?
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudaginn 4. mars: Tveir fyrir einn af aðgangseyri
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR 16.2. - 24.6.2018
KORRIRÓ OG DILLIDÓ 2.2. - 29.4.2018
- Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 - Valin verk úr safneign
ORKA 14.9. - 29.4.2018
Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 13.5.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 29.04.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mig hefur lengi langað til að prófa
að leika Bach með þessum hætti,“
segir Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari
sem ásamt kirkjukórum Breiðaból-
staðarprestakalls og Odda- og
Þykkvabæjarkirkna stendur fyrir
tónleikum í þremur kirkjum í Rang-
árþingum eystra og ytra næstu þrjá
miðvikudaga. Fyrstu tónleikarnir
verða í Oddakirkju á Rangárvöllum
7. mars kl. 20, en síðan í Krosskirkju
í Landeyjum 14. mars kl. 20 og í
Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð 21.
mars kl. 20.
Draga fram tengsl verkanna
Á tónleikunum leikur Rut Partítu
í d-moll fyrir einleiksfiðlu eftir
Johann Sebastian Bach á milli þess
sem kirkjukórarnir, með rúmlega 40
söngvurum, syngja þekkt sálmalög í
útsetningu Bachs undir stjórn org-
anistanna Kristínar Sigfúsdóttur og
Guðjóns Halldórs Óskarssonar.
„Sálmarnir sem sungnir verða
tengjast þessu meistaraverki Bachs
fyrir fiðluna Partítu í d-moll, en síð-
asti kafli þess er hin þekkta Ciac-
conna.“ Rut segir hugmyndina að
tónleikunum hafa kviknað út frá
geisladiskinum Morimur frá árinu
2001 þar sem unnið er út frá rann-
sóknum þýska tónlistarfræðingsins
Helgu Thoene.
„Helga Thoene lagði sig eftir að
tengja saman einleiksverk Bachs
fyrir fiðlu og útsetningar hans á
sálmalögum. Sagt er að Bach hafi
samið Ciacconnuna, sem er eitt
frægasta einleiksverk fyrir fiðlu, í
minningu Mariu Barböru, konu
sinnar, sem dó ung frá mörgum
börnum þeirra. Þetta eru sögusagn-
ir, en í fræðistörfum Helgu Thoene
er hægt að rekja í línur innan Ciac-
connunnar við línur úr vissum sálm-
um,“ segir Rut sem á tónleikunum
leikur Partítu í d-moll inn á milli
sálmaflutningsins auk þess að flytja
Ciacconnuna aftur í lokin við ein-
söng Aðalheiðar M. Gunnarsdóttur
sóprans, Sigríðar Aðalsteinsdóttur
alts og Bjarna Guðmundssonar barí-
tóns, sem öll eru menntaðir söngv-
arar. „Með þessum hættum drögum
við fram þessi tengsl verkanna. Þótt
Ciacconnan sé ef til vill samin sem
minningarljóð skín trúarvissa Bachs
í gegnum allt verkið. Hann lofsyng-
ur Guð eins og í svo mörgum verkum
sínum.“
Mæta velvilja og áhuga
Rut segir kirkjukórana hafa tekið
hugmynd hennar fagnandi, en verk-
efnið hefur verið í undirbúningi í
tæpt ár. „Þau þekktu marga sálm-
anna fyrir, en þurftu að læra þá í út-
setningum Bachs. Kórarnir þrír
hafa æft saman sem einn samein-
aður kór síðustu tvo mánuði,“ segir
Rut og tekur fram að áður hafi
þurfti að finna útsetningar Bachs og
íslenskar þýðingar sálmanna.
„Allir þátttakendur eru búsettir í
Rangárþingum,“ segir Rut, sem
sjálf er búsett á Kvoslæk þar sem
hún hefur ásamt eiginmanni sínum,
Birni Bjarnasyni, staðið fyrir menn-
ingarstarfi á síðustu árum. „Við höf-
um mætt miklum velvilja og áhuga
hér í sveitinni,“ segir Rut, en þess
má geta að tónleikarnir eru meðal
annars styrktir af Samtökum sunn-
lenskra sveitarfélaga (SASS).
„Ég hef haldið fleiri tugi tónleika í
kirkjum víða um landið og oftast
ferðast ein með fiðluna,“ segir Rut
og rifjar upp að á efnisskránni hafi
verið allt frá Bach til nútíma-
tónlistar. „Ég hef ekki haldið tón-
leika í kirkjunum á þessu svæði þar
sem ég á nú lögheimili og fannst
upplagt að fá heimafólk með mér í
samstarf,“ segir Rut og tekur fram
að aldrei sé að vita nema nýsamein-
aði kórinn ráðist í fleiri verkefni á
næstu misserum.
Þess má að lokum geta að tónleik-
arnir taka um klukkutíma í flutningi
og er aðgangur ókeypis.
Bach í þremur
kirkjum í mars
Þrír kirkjukórar í Rangárþingum
eystra og ytra sameina krafta sína
Ljósmynd/Jón Ragnar Björnsson
Tilhlökkunarefni Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari ásamt kórfélögum og organistum sem koma fram á tónleikunum.