Morgunblaðið - 31.03.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 31.03.2018, Síða 20
BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Í okkar huga skal rétt vera rétt,“ segja þrjár konur sem sátu í stjórn Vísindasjóðs Félags fram- haldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) um nokkurra ára tímabil. Þær hafa síðustu ár átt í stappi við stjórn Kennarasambands Ís- lands (KÍ) vegna tuga milljóna sem þær segja að KÍ skuldi í Vís- indasjóðinn sem er endurmennt- unarsjóður framhaldsskólakenn- ara og stjórnenda í framhaldsskólum. Formenn FF hafa tekið slaginn fyrir stjórn KÍ gegn kjörnum fulltrúum sem gegna trúnaðarstörfum fyrir sjóð- inn, að þeirra sögn. Svo langt hef- ur deilan gengið að hún hefur bæði farið til sérstaks saksóknara og fyrir héraðsdóm. Linda Rós Michaelsdóttir og Þórey Hilmarsdóttir voru kosnar í stjórn Vísindasjóðs árið 2008 og Erla Elín Hansdóttir 2014 ásamt öðrum, þá var Þórey hætt í stjórninni og Linda varð varamað- ur. Erla Elín varð formaður sjóðs- ins og lítur svo á að hún sé það ennþá þó svo stjórn FF hafi bolað henni í burtu árið 2016 og kosið nýtt fólk í sjóðsstjórn á aukaað- alfundi. Sá fundur virðist hafa vera ólöglega boðaður og ný stjórn því ekki löglega kosin, eins og kom fram í dómsorði héraðs- dóms í nóvember. Deilan spannar mörg ár Forsagan er löng og spannar mörg ár en árið 2010, þegar Þórey hefur tekið við formennsku sjóðs- ins, biður endurskoðandi stjórn sjóðsins um að staðfesta tilurð samnings milli KÍ og sjóðsins um aðstöðugjald í KÍ húsi en sjóð- urinn var í þjónustu þar. Þá kem- ur í ljós að það hafði verið gerður munnlegur samningur um að- stöðugjaldið og svo virðist sem aldrei hafi verið samið um upp- hæðir. Þær leituðu ráða hjá Ríkisendurskoðanda sem sagði að munnlegur samningur gilti ekki. „Það var KÍ sem ákvað hver upphæðin var sem Vísindasjóður greiddi fyrir aðstöðuna og fór sjálft í sjóðinn og tók hana út. Sjóðsstjórnin fékk hvergi að koma nálægt því,“ segir Linda. „Við ákváðum að fá hreyfilista sjóðsins nokkra mánuði aftur í tímann í bankanum og okkur brá þegar við sáum að iðgjöld félagsmanna FF, sem komu inn í sjóðinn í kringum tíunda hvers mánaðar, voru tekin út samdægurs og færð inn á reikning KÍ. Við fengum þær skýringar frá KÍ að það þyrfti að gera þetta til að stemma af en það þarf ekki að millifæra peninga til að stemma reikninga í bókhaldi af. Upphæðin var svo borguð til baka í lok mánaðarins en aldrei neinir vextir og yfirleitt ekki sama tala og var tekin út. Við bárum þetta undir Ríkisendurskoðanda sem sagði þetta rýrnun á sjóðnum sem við yrðum að skoða. Þetta var árið 2011 og þegar við báðum um að fá að sjá bókhaldið til að finna skýr- ingu á þessu fengum við þau svör hjá KÍ að það kæmi ekki til greina. Eftir nokkrar árangurs- lausar tilraunir við að fá bókhaldið leitum við aftur til Ríkisend- urskoðenda sem sagði að það eina í stöðunni væri að leita aðstoðar lögfræðings. Við gerum það og lögfræðingurinn fór fram á bók- haldið og aðgang að bankareikn- ingnum. Hann fær útprentaða hreyfingalista úr bókhaldinu en við vildum fá frumgögnin, þ.e skilagreinar sem verða til hjá vinnuveitanda, til að bera saman frumgögn og bókhald. Það tók nokkur ár að fá þau,“ segja Linda og Þórey. Á sama tíma er gjaldkeri sjóða KÍ beðinn um að hætta að taka ið- gjöldin út úr Vísindasjóði og leggja inn á reikning KÍ, því hann hafði ekki heimild til þess. „Það er hundsað og við endum á að taka af honum prókúruna. Í kjölfarið ákveður stjórn KÍ að vísa okkur út úr húsnæðinu og allri þjónustu við sjóðinn,“ segir Linda. Áður hafði stjórn KÍ bókað á stjórnarfundi að vinnubrögð stjórnar Vísindasjóðs væru hörmuð vegna þess að sjóðs- stjórnin leitaði ráða utan KÍ húss- ins vegna bókhaldsins. Nokkur alvarleg atriði Í Félagi framhaldsskólakennara eru hátt á annað þúsund manns og í kringum 200 milljónir sem renna í gegnum Vísindasjóðinn á ári. Ár- ið 2014 verða stjórnarskipti í FF þegar Guðríður Arnardóttir er kosinn formaður. Á sama aðalfundi er skipt um fulltrúa í stjórn Vís- indasjóðs; Erla Elín Hansdóttir er kosin í stjórn ásamt öðrum og Linda er til vara. Stjórn Vísindasjóðs gefur sig ekki með að fá bókhald sjóðsins og 2014 er beiðni þess efnis tekin fyr- ir í sáttarferli hjá héraðsdómi. Fyrir tilstuðlan dómara afhendir KÍ bókhaldsgögnin. „Þá sáum við í fyrsta skipti hvernig farið hafði verið með fjármunina,“ segir Erla Elín. Þórey bætir við að fyr- irkomulagið á fjármálunum þarna sé frekar skrítið. „Það má ætla að það fari á fjórða milljarð í gegnum KÍ í iðgjöld á ári, það fer inn á miðlægan reikning og svo útdeila þeir. Ef þú hefur ekki skilagrein- arnar veistu ekkert hvað tilheyrir þínum sjóði eða þínu félagi.“ Þær voru heillengi að fara yfir þá pappíra sem þær fengu en komust fljótt að nokkrum atriðum. „Númer eitt höfðu vextirnir aldrei skilað sér af þeim upphæðum sem KÍ tók út úr Vísindasjóð inn á eig- in reikning. Númer tvö slumpaði gjaldkeri sjóða KÍ á útborganir KÍ til sjálfs sín úr sjóðnum. Einnig var iðgjöldum skilað í skil- greindum greiðslum og ósundurl- iðað, oft löngu eftir að greiðslur bárust KÍ frá vinnuveitendum. Á þessu fengum við þá munnlegu skýringu frá skrifstofustjóra KÍ að það væri verið að vinna hitt og þetta fyrir sjóðinn sem þyrfti að borga fyrir. Það er allt í lagi en við vildum sjá reikninginn fyrir því í bókhaldinu, ekki einhverjar óútskýrðar slumpgreiðslur. Í þriðja lagi sáum við að félagar í öðrum sjóðum KÍ, ekki í FF eða FS, voru að fá greitt úr Vís- indasjóði. Það fólk borgaði iðgjald í annan sjóð þannig að það átti engin réttindi hjá okkur. Í fjórða lagi vantaði 0,22% upp á skila- greinar frá einum stærsta fram- haldsskólanum yfir nokkurn tíma, eða um þrjár milljónir. Í fimmta lagi sáum við að starfsfólki KÍ-hússins hafði verið boðið út að borða með mökum og keyptar gjafir fyrir pening úr Vís- indasjóði án þess að þau útgjöld hefðu verið borin undir stjórn sjóðsins. Þegar við reiknuðum alla þessa liði saman voru þetta orðnar ansi margar milljónir sem vantaði í Vísindasjóð,“ telur Linda upp. Með aðstoð endurskoðenda er þetta allt tekið saman og farið með til sérstaks saksóknara til að fá úr því skorið hvort um lögreglu- mál væri að ræða. Í mars 2016 kemur málið þaðan og er kæru- liðunum vísað í einkamál. Þær segja að sérstakur saksóknari hafi séð eitthvað að vinnubrögðunum á meðan formaður FF túlkaði þetta sem svo að málinu hafi verið vísað frá. Stjórn FF boðar til auka- aðalfundar og gefur Guðríður for- maður til kynna á netinu að kjósa eigi nýja stjórn Vísindasjóðs. „Það er hvergi til bókstafur um auka-aðalfund í lögum FF. Það á að kjósa fulltrúa FF í stjórn vís- indasjóðs á reglulegum aðalfundi sem var síðast 2014 og er næst vorið 2018. Það var ágreiningur um lögmæti þessa auka-aðalfundar og stjórn Vísindasjóðs lagði fram tvö lögfræðiálit sem bæði gengu út á að fundurinn væri ólöglegur. Hann er samt haldinn í apríl 2016 og þar er sótt talsvert að okkur,“ segir Erla Elín en þær sitja áfram. Um haustið er haldinn fundur stjórnar Vísindasjóðs, FF og FS og þegar honum er form- lega lokið er Erla Elín þvinguð til áframhaldandi fundarsetu með stjórn FF þar sem er þrýst á hana að segja af sér með óhróðri og sví- virðingum. Hún stenst álagið enda taldi hún sig vera að sinna sínum skyldum af trúnaði og samvisku- semi. „Það gengur ekki nógu vel að bola mér úr formannsstólnum svo það er boðað til annars auka- aðalfundar í nóvember 2016 og þar sem eru kosnir tveir nýir menn í stjórn Vísindasjóðs. Við við- urkenndum ekki þennan fund enda var hann ólöglegur,“ segir Erla Elín. Dómur hafnar kröfu FF Eftir aukaaðalfundinn hafði for- maður FF samband við Íslands- banka, sem þjónustaði sjóðinn, og krafðist þess að prókúran yrði færð yfir til KÍ. „Íslandsbanki hafði áður sagt að ef tilkall um prókúru kæmu frá fleiri aðilum myndi bankinn loka reikningnum og ekki opna fyrr en fyrir lægi staðfesting á því hver ætti tikall til prókúrunnar. Það gerði bankinn ekki en afhenti prókúruna út á undirskrift umboðslauss aðila og bráðabirgðafundargerð aukaað- alfundar, sama fundar og héraðs- dómari úrskurðaði síðar að hefði ekki verið boðaður löglega,“ segir Linda. Erla Elín og Linda líta svo á að þær séu löglega kjörin stjórn Vís- indasjóðs og halda eftir fjárhags- bókhaldinu og öðrum eigum sjóðs- ins. Formaður FF krefur þær um gögnin og endar það mál hjá hér- aðsdómi síðastliðið vor. Niðurstaða kom í nóvember þar sem kröfu FF um að þær afhendi bókhald og eig- ur Vísindasjóðs er hafnað. Þá er FF gert að greiða allan máls- kostnað. „Dómstóllinn leit svo á að ekki hefði verið sýnt fram á það með óyggjandi hætti að rétt hafi verið boðað til auka-aðalfundarins þar sem ný stjórn Vísindasjóðs var kosin. Þeir töldu auka-aðalfundin ekki lögmætan,“ segir Linda. Staðan núna er sú að þær hafa rukkað mennina sem sitja nú á Vísindasjóði um öll gögn sjóðsins og ætla að halda áfram sem stjórn sjóðsins fram að næsta aðalfundi FF í apríl. „Stjórnir KÍ og FF lúta ekki dómi og líta ekki á Erlu Elínu sem formann. Hvers konar fordæmisgildi er það ef formaður í stéttarfélagi getur boðað til auka- aðalfundar utan laga til þess að losa sig við starfsmann eða trún- aðarmann félagsmanna, sem er kosinn réttilega á aðalfundi, af því að henni hugnast hann ekki,“ spyr Linda. Berjast fyrir betri vinnubrögðum  Þrjár konur sem setið hafa í stjórn endurmenntunarsjóðs FF og FS berjast fyrir því að bókhaldið sé rétt  Segja KÍ skulda sjóðnum tugi milljóna  Reynt var að bola þeim í burtu á auka-aðalfundi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vísindasjóður Þórey Hilmarsdóttir, Erla Elín Hansdóttir og Linda Rós Michaelsdóttir hafa staðið í baráttu við stjórn KÍ og stjórn FF til að fá útskýringar á ýmsu í bókhaldi Vísindasjóðs við slæmar undirtektir. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 Vantar þig rafvirkja? Þú finnur allt á FINNA.IS Spurðar hvað hinum almenna félagsmanni FF finnist um þetta mál svarar Linda að um leið og farið sé að tala um bókhald missi fólk áhug- ann, skipti engu þó fé- lagsmönnum sé bent á að þeir eigi inni margar millj- ónir hjá KÍ. „Það versta er að formað- ur FF tók sér leyfi til að af- skrifa þessar skuldir KÍ gagnvart Vísindasjóði, nokkra tugi milljóna frá fé- lagsmönnum FF. Áður en Guðríður fór í kosningabar- áttu til formanns KÍ nýverið hélt hún fund með stjórn KÍ þar sem hún sagði að þeir þyrftu ekkert að borga þetta, um leið viðurkenndu hún og stjórnin skuldirnar. Það hafa nokkrir orðið brjálaðir yfir þessu en hinn almenni fé- lagsmaður gefur sér ekki tíma til að setja sig inn í málið.“ Afskrifaði skuldirnar TUGIR MILLJÓNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.