Morgunblaðið - 31.03.2018, Page 22

Morgunblaðið - 31.03.2018, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Til að gera langa sögu stutta er óhætt að segja að við höfum orðið vitni að kraftaverki nánast hvern einasta dag. Bati íbúanna var mjög skjótur. Í rauninni hófst hann með tækifærinu til að hafa áhrif á eigið líf, hafa áhrif á þjón- ustuna og hafa valkosti,“ segir Jóna Jóhanna Sveinsdóttir, deild- arstjóri og starfandi forstöðumað- ur í búsetuþjónustu geðfatlaðra að Sléttuvegi 9. Hún lýsir breyting- unni sem varð fyrir sautján árum þegar íbúðakjarninn var stofnsett- ur og íbúarnir fluttu af Kleppi þar sem þeir höfðu búið árum saman þótt meðferð væri lokið. Átján íbúðakjarnar í borginni Íbúðakjarninn á Sléttuvegi er fyrsta íbúðasambýlið fyrir geðfatl- aða í Reykjavík og var rekið á vegum svæðisskrifstofu um mál- efni fatlaðra. Það var stofnað vegna þrýstings frá hagsmuna- samtökum og aðstandendum. Ákveðið var að útskrifa fólkið af Kleppi og skapa ný úrræði þar sem það gæti lifað sjálfstæðu lífi utan spítala, með stuðningi og þjónustu. Reynslan er svo góð að haldið var áfram á þessari braut og núna eru átján slíkir íbúðakjarnar á vegum velferðarsviðs Reykjavík- urborgar. Lifa sjálfstætt með stuðningi Sex íbúðir fyrir átta íbúa eru í búsetukjarnanum auk starfs- mannaíbúðar þar sem þjónustan er veitt og þar er auk þess sam- komustaður íbúanna. Jóna segir að starfið hafi falist í því að þjálfa íbúana til að lifa sjálfstæðu lífi utan spítalans og valdefla þá. Þrátt fyrir að fólkið hafi lokið allri meðferð sem spít- alinn bauð upp á voru margir illa settir eftir áratuga búsetu á spít- ala og báru þess merki. „Dæmi voru um einstaklinga sem höfðu aldrei komið nálægt matseld eða þrifum heimilis, kunnu ekki að taka strætó eða kaupa inn til heimilis og sumir höfðu aldrei tekið fjárhagslega ábyrgð,“ segir Jóna og nefnir sem dæmi að eitt af því sem þurfti að gera var að kenna íbúunum að fara á kaffihús og borga með greiðslukorti. Hún segir að því yngri sem ein- staklingur veikist af geðklofa þeim mun minna hafi hann til- einkað sér slíka hluti sem flestir læra án þess að taka eftir því og telja eðlilegan hluta af daglegu lífi. Jóna segir að íbúunum sé veitt- ur stuðningur á þeirra forsendum. Fylgst sé vel með lyfjagjöf og þeir aðstoðaðir við fjármál og inn- kaup, eftir þörfum. „Áherslan er á styrkleika íbúanna frekar en sjúk- dómseinkenni, að þeir geti verið í bata þrátt fyrir sjúkdóm eða fötl- un,“ segir Jóna. Ekkert bakslag Tveir af þeim átta íbúum sem fluttu inn á Sléttuveg fyrir sautján árum búa þar enn. Tveir eru látnir en hinir hafa flutt í aðra kjarna. Í staðinn hafa komið nýir íbúar og misjafnt er hversu lengi þeir dvelja. Þeir sem vilja geta átt þar heima til æviloka. Íbúarnir stunda vinnu og skóla, sjá um eigið heimilishald, iðka íþróttir og taka þátt í tómstunda- starfi, ferðast innanlands og utan, og rækta samband við ættingja og vini. Ótti var meðal fagfólks um að bakslag kynni að verða hjá fólk- inu, þegar það hefði ekki aðhald hjá stofnunum. Jóna segir að það hafi ekki orðið hjá íbúunum á Sléttuvegi. Það heyrir til und- antekninga að íbúar séu lagðir inn á geðdeild. Áhugavert og gefandi Gefandi er fyrir starfsfólkið að sjá breytingarnar. Jóna og Guð- rún Einarsdóttir forstöðumaður hafa til dæmis unnið á Sléttuvegi 9 frá upphafi og segir Jóna að þær hafi verið heppnar með starfsfólk alla tíð. „Ég hefði ekki verið hérna í sautján ár nema þetta hefði verið áhugavert og gefandi starf,“ segir Jóna Jóhanna Sveinsdóttir. Kraftaverk á hverjum degi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sjálfstæði Jóna Jóhanna Sveinsdóttir, starfandi forstöðumaður, og Óskar Theódórsson á heimili Óskars í búsetu- kjarnanum á Sléttuvegi. Lögð er áhersla á sjálfstætt líf íbúanna sem lið í bataferli þeirra.  Bati íbúa í búsetuþjónustu geðfatlaðra á Sléttuvegi hófst með tækifærinu til að ráða eigin lífi  Íbúarnir fá stuðning eftir þörfum, taka þátt í heimilishaldi og sækja vinnu og tómstundir úti í bæ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Hér eru gerðar meiri kröfur og við tökum meiri ábyrgð. Maður þarf að hugsa um eigið heimili. Þetta er öðruvísi en á sambýlinu. Þar borðaði maður, tók lyfin og svo var allt gert fyrir mann,“ segir Óskar Theódórs- son sem verið hefur ellefu ár í búsetu- þjónustunni á Sléttuvegi 9. Óskari líð- ur vel þar og lifir innihaldsríku lífi, stundar meðal annars myndlist af kappi. Óskar er 56 ára gamall. Hann veiktist um tvítugt af geðsjúkdómi og hefur það sett mark á líf hans. Hann sækir námskeið í gegnum Fjölmennt sem er símenntunar- og þekkingarmiðstöð, meðal annars í frönsku, spænsku, myndlist og jóga. Hann hefur ekki látið þar staðar numið heldur hefur sótt námskeið í Háskóla Íslands í jarðfræði, forn- leifafræði og heimspeki. Segist hafa fengið leyfi til þess þótt hann hafi ekki stúdentspróf. „Þetta bætir mig. Ég veit til dæmis miklu meira um jarðfræði en áður. Ég leit alltaf upp til fólks með háskólamenntun. Þegar ég kynntist því sjálfur sá ég að þetta er venjulegt fólk og félagsskapur þess er góður,“ segir Óskar. Hann segist alltaf vera velkominn í háskól- ann. „Fimmtíu og sex ára er enginn aldur. Ég ætla að reyna að mennta mig meira,“ segir hann. Íbúarnir fara reglulega í utan- landsferðir með starfsfólkinu og tek- ur Óskar þátt í þeim öllum. Segir að það sé mjög skemmtilegt og gefandi. Þau hafa farið víða um heim. Hann hlakkar til þess að fara til Rómar nú um páskana. Óskar málar mikið og hefur oft sýnt afrakstur vinnu sinnar. Hann selur myndir – eða gefur ef aðstæður þess sem hefur áhuga eru erfiðar. Óskar færði nýlega forstjóra Landspítalans málverk sem komið er fyrir á geðdeildinni og gerði það í virðingarskyni fyrir góða þjónustu. „Mér fannst að spítalinn ætti að eiga mynd eftir mig. Myndin er af geð- fatlaði konu. Það þarf líka að sýna það,“ segir Óskar. Hann vill sýna að fólk með geðfötlun getur notið gæða lífsins og að með góðum stuðningi geti það náð bata. Taka meiri þátt í samfélaginu Búsetukjarninn er vel í sveit sett- ur, stutt í strætó og stutt niður í bæ og er Óskar mikið á ferðinni. Fer á kaffihús, er reglulegur gestur á tón- leikum í Hörpu og víðar, sækir nám- skeið í Hlutverkasetri og heimsækir fjölskyldu og vini. Hann sinnir einnig heimilinu og gætir þess að taka það rólega á milli. „Það er enginn sem ýt- ir á mann að gera það sem maður vill ekki. Hér er bara gott fólk. Þeir sem búa á stöðum eins og þessum taka miklu meiri þátt í samfélaginu. Þeir bæta alla,“ segir hann. Verið er að innleiða hugmynda- fræðina um sjálfstætt líf og fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Óskar er annar af tveimur íbúum sem taka þátt í inn- leiðingunni og eru ásamt starfs- mönnum í innleiðingarteymi kjarn- ans. Þeir taka við ábendingum íbúa og koma á framfæri á fundum í teyminu. Óskar segir að fulltrúar íbúanna hafi meðal annars lagt til að haft verði sameiginlegt kaffi á laug- ardögum og farið í ferðalög innan- lands, allt til að lífga upp á mann- skapinn. Þessir staðir bæta alla  Óskar Theódórsson er í myndlist, sækir tónleika og stundar háskólanám FERMINGARGJÖFIN í ár? arc-tic Retro VERÐ FRá: 29.900,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.