Morgunblaðið - 31.03.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 31.03.2018, Síða 27
FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is vor í lofti Eigum á lager mikið úrval varahluta í jarðvinnslutæki af eftirtöldum gerðum: Pöttinger, Vogel & Noot, Kverneland, Howard, o.fl ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN eru viðurkenning, veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. ÓSKAÐ ER EFTIR ÁBENDINGUM frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum um safn eða einstök verkefni á starfssviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Söfnum er jafnframt heimilt að senda inn kyn- ningar á eigin verkefnum. Til greina koma sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi svo sem rannsóknir og varðveisla. Valnefnd tilnefnir þrjú söfn eða verkefni sem tilkynnt verða á Alþjóðlega safnadeginum á Íslandi, 18. maí og hlýtur eitt þeirra viðurkenninguna. Safnaverðlaunin verða veitt í ellefta sinn 5. júní 2018 á Bessastöðum. Ábendingum skal skilað í síðasta lagi 16. apríl 2018. Sendist: Safnaverdlaun@icom.is eða Safnaverðlaunin 2018 – Íslandsdeild ICOM – pósthólf 1513 – 121 Reykjavík Íslandsdeild alþjóðaráðs safna – ICOM og FÍSOS – Félag íslenskra safna og safn- manna standa saman að verðlaununum. ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Tyrkir gefa lítið fyrir tillögu Frakka um að Frakkland gerist milliliður Tyrkja í friðarviðræðum við skæru- liða á landamærum Sýrlands og Tyrklands. Frá þessu er sagt á fréttavef AFP. Emmanuel Macron forseti Frakklands stakk upp á því á fimmtudag að Tyrkir hæfu „samtal“ við Lýðræðissveitir Sýrlands með milligöngu Frakka. Tyrkir ráku hóp- inn út úr Afrin-héraði í nýlegu hern- aðaráhlaupi sínu yfir landamæri Sýrlands og Tyrklands. Lýðræðissveitir Sýrlands eru undir stjórn kúrdísku Lýðvarn- arsveitanna (YPG), sem ríkisstjórn Tyrklands skilgreinir sem und- irdeild kúrdíska Verkamannaflokks- ins (PKK). Kúrdíski Verka- mannaflokkurinn hefur staðið í skæruhernaði gegn tyrkneskum yf- irvöldum frá árinu 1984 og er skil- greindur af Tyrk- landi og vestrænum bandamönnum þeirra sem hryðjuverkahóp- ur. Kúrdísku lýð- varnarsveitirnar hafa þó notið stuðnings Banda- ríkjamanna og annarra NATO- ríkja í baráttunni gegn íslamska rík- ið í Sýrlandi. Recep Tayyip Erdogan Tyrk- landsforseti sagðist „mjög hryggur“ yfir því að Frakkar hefðu tekið „ranga afstöðu“ í málinu og bætti við: „Við þurfum enga milligöngu… síðan hvenær hefur Tyrkland þurft að setjast til borðs með hryðjuverka- samtökum?“ Tyrkneskum ráða- mönnum kemur saman um að stuðn- ingur við kúrdísku samtökin jafngildi stuðningi við hryðjuverk. Tyrkir hafna frið- artillögum Frakka Recep Tayyip Erdogan  Erdogan gagnrýnir tillögu Macrons Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Talsmenn Vatíkansins hafa átt fullt í fangi með að útskýra umdeild um- mæli sem Frans páfa voru nýlega lögð í munn í viðtali sem birtist í blaðinu La Repubblica. Frá þessu er sagt á fréttavef The Guardian. Í viðtalinu er páfinn sagður neita því að helvíti sé til. Þessi túlkun væri á öndverðum meiði við kenningar kaþólsku kirkjunnar og við ummæli forvera Frans á páfastóli. Viðtalið var eftir Eugenio Scalf- ari, stofnanda La Repubblica, sem er trúleysingi og hefur áður verið sakaður um að rangtúlka ummæli páfans, meðal annars um að páfinn hefði fellt niður syndir. Engu að síð- ur eru þeir Frans vinir og funda saman öðru hverju. Talsmenn Vatíkansins viðurkenna að Scalfari hafi hitt páfann stuttu fyrir páska en neita því að um eiginlegt viðtal hafi verið að ræða. Scalfari er þekktur fyrir að taka viðtöl án þess að skrifa þau niður jafn- óðum og tals- menn Vatikans- ins segja því að ummælin umdeildu séu ekki orðrétt höfð eftir páfanum heldur byggð á misminni eða mis- skilningi á orðum hans. Í viðtalinu er Frans spurður hvert „vondar sál- ir“ fari eftir dauðann og svarar: „Þeim er ekki refsað. Þeir sem iðr- ast hljóta náð Guðs og öðlast sess meðal þeirra sem hugsa um hann, en þeir sem iðrast ekki og geta ekki hlotið náð hverfa. Helvíti er ekki til, heldur hverfa sálir þeirra sem syndga.“ Fara vondar sálir ekki til helvítis?  Páfinn sagður neita tilvist helvítis Frans páfi Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið vændur um nýtt spillingarmál, aðeins átta dög- um eftir að hann sætti yfirheyrslu vegna ásakana um að hafa þegið ólöglegan fjárstyrk frá einræðis- herranum Muammar Gaddafi í for- setakosningunum árið 2007. Frá þessu er sagt á fréttavef Huffing- ton Post. Þrír dómarar hafa fyrirskipað að Sarkozy verði sóttur til saka fyrir spillingu og fyrir að selja áhrifa- stöður. Lögfræðingar Sarkozy hafa lýst því yfir að Sarkozy muni áfrýja þessari ákvörðun og því er ekki fullvíst að réttað verði yfir honum. „Nicolas Sarkozy mun nýta sér réttindi sín með því að höfða til áfrýjunardómstólsins og bíða róleg- ur eftir svari við beiðni hans um ógildingu ákvörðunarinnar,“ skrif- uðu lögfræðingarnir Pierre Haïk og Jacqueline Laffont. „Hann efast ekki um að sannleikurinn sigri að lokum.“ Sarkozy er sakaður um að hafa, undir dulnefninu Paul Bismuth, reynt að múta dómara til að veita sér trúnaðarupplýsingar í skiptum fyrir stöðuhækkun. Ef Sarkozy verður dæmdur fyrir þetta gæti hann þurft að afplána tíu ára fang- elsisvist og greiða andvirði rúmra átján milljóna íslenskra króna í skaðabætur. Þrengt að Sarkozy  Fleiri spillingarmál borin gegn Sarkozy  „Hann efast ekki um að sannleikurinn sigri að lokum,“ segir lögfræðingur AFP Spilling Nicolas Sarkozy var forseti Frakklands frá 2007 til 2012. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.