Morgunblaðið - 31.03.2018, Page 51

Morgunblaðið - 31.03.2018, Page 51
ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 sjónhverfingar koma inn í verkin og geta breyst eftir því hvernig litið er á þau. Ég er líka kominn út í að vinna oftast með hreina liti.“ Sigurður Þórir rekur bókaútgáf- una Odd ásamt Þór Stefánssyni og hafa þeir fyrst og fremst gefið út ljóðabækur, bæði frumsamin ljóð og ljóðaþýðingar. „Þetta er smá menn- ingarviðleitni og ég hef gaman af þessu og teikna kápurnar og hanna bækurnar. Ég hef alltaf haft gaman af ljóðum, gaf einu sinni út eigin ljóð þegar ég var ungur og mér finnst myndlistin og ljóðlistin tengjast. Sömuleiðis tónlist, sem ég hlusta mikið á og þá á alla tónlist. Ég er einnig í skákklúbbi þar sem við hitt- umst hálfsmánaðarlega yfir veturinn og svo er ég með sumarbústað á Vatnsnesi þar sem mér finnst gott að vera og ætla að vera þar yfir afmælið. Ég ætla ekki að gera neitt sérstakt í tilefni af þessu afmæli. Þegar ég varð fimmtugur gaf ég út bókina Úr hugarheimi sem fjallaði um ævi mína og list. Þegar ég varð síðan sextugur gaf ég út Tímann og vatnið þar sem ég myndskreytti hvert einasta erindi í ljóðabálki Steins Steinars, en þau eru 77, og skrifaði einnig mínar hug- leiðingar um ljóðabálkinn sem ég lít á sem ástarkvæði.“ Fjölskylda Sambýliskona Sigurðar Þóris er Jenný Árnadóttir, f. 23.7. 1951, verk- efnastjóri meðferðardeildar á Laug- arási. Fyrri kona Sigurðar Þóris var Sigrún Ágústsdóttir, f. 15.1. 1951, kennari og námsráðgjafi í Reykjavík. Þau skildu. Börn Sigurðar Þóris og Sigrúnar: 1) Geirmundur Orri, f. 17.9. 1971, líf- efnafræðingur í Stavanger í Noregi, í sambúð með Suban Sawers; 2) Arn- grímur, f. 19.8. 1974, d. 23.8. 1974; 3) Helga, f. 23.1. 1977, ljósmóðir, gift Braga Þorgrími Ólafssyni sagnfræð- ingi, búsett í Reykjavík. Börn þeirra eru Arngrímur Orri, f. 2003, og Ólaf- ur Bjarki, f. 2007. Dóttir Jennýjar er Katrín Ösp Bjarnadóttir, f. 26.9. 1970, starfsmaður í Jurtaapóteki, og er hennar dóttir Steinunn Jenný Karlsdóttir, f. 2005. Alsystkini Sigurðar Þóris: Helgi Bergmann, f. 31.12. 1949, hús- gagnasmiður og arkitekt í Reykjavík; Þórunn Ástrós, f. 3.12. 1951, d. 25.11. 2011, kaupkona á Húsavík; Ágúst, f. 8.8. 1954, búfræðingur og fram- kvæmdastjóri í Reykjavík; Guðjón, f. 28.9. 1957, matreiðslumaður í Nor- egi; Hilmar, f. 22.1. 1962, málari og framkvæmdastjóri í Reykjavík. Hálf- systir Sigurðar Þóris, sammæðra, er Elsa Smith Erlingsdóttir, f. 24.11. 1945, húsmóðir í Reykjavík. Hálf- systkini Sigurðar Þóris, samfeðra, eru Sveinn Erling, f. 26.1. 1946, við- skiptafræðingur í Gerði í Mos- fellsbæ; Anna Þórunn, f. 23.2. 1974, hjúkrunarfræðingur, bús. í Reykja- vík; Sveinbjörn, f. 23.2. 1974, deild- arstjóri hjá Össuri, bús. í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar Þóris: Sig- urður Sveinn Karlsson, f. 12.2. 1927, fyrrv. verkamaður í Reykjavík, og Aðalheiður Kristín Helgadóttir, f. 12.10. 1926, d. 7.11. 1987, húsmóðir í Reykjavík. Þau skildu. Sigurður Þórir Sigurðsson Kristín Jónsdóttir bústýra í Halakoti og Skálatanga á Akranesi, f. á Ytra-Hólmi Þórarinn Tómasson vinnum. og sjóm. í Kotvogi, Hafnarhr., f. á Hvalsnesi Ágústína Þórarinsdóttir húsfr. á Staðarhöfða Aðalheiður Kristín Helgadóttir húsfr. í Rvík Helgi Björnsson b. á Staðarhöfða á Akranesi Kristín Helgadóttir húsfr. á Staðarhöfða, f. á Kirkjubóli Gunnar Bernburg tónlistarmaður Ingunn Bernburg húsfr. í Rvík Friðrik Karlsson framkvstj. Domus Medica Eva Karlsdóttir b. á Brekku og Syðri-Brekku, A-Hún. Hulda Karen Ólafsdóttir sjúkraliði í Hafnarfirði Stefán Karl Stefánsson leikari í Rvík Magnús Ólafsson eikari, bús. Hafnarfirði l í Hörður Magnússon íþróttafréttam. Ólafur Karlsson prents- miðjustj. í Rvík Björn Ólafsson sjómaður, síðast bóndi á Staðarhöfða, f. á Krossi í Lundarreykjadal Bjarni Geir Alfreðsson (snæðingur) veitingamaður í Rvík Steinunn Bjarnadóttir leikkona og söngkona Hallsteinn Ólafsson b. í Skorholti í Melasveit Bjarni Hallsteinsson bóndi á Brimilsvöllum og Setbergi, Snæf., síðar á Akranesi Guðbjörg Gísladóttir ljósm. og húsfr. á Hámundarstöðum, f. á Hafursá Sveinbjörn Sveinsson bóndi á Hámundarstöðum í Vopnafirði, f. í Selási, V-Hún. Þórunn Sveinbjörnsdóttir ráðskona á Hvammstanga og víðar Karl Friðriksson brúarverkstj. og fulltrúi á Akureyri Ingunn Elísabet Jónsdóttir húsfr. í Bakkakoti, f. á Ytri- Kárastöðum Friðrik Björnsson bóndi í Bakkakoti í Víðidal, f. í Odda Úr frændgarði Sigurðar Þóris Sigurðssonar Sigurður Sveinn Karlsson fyrrv. verkamaður í Rvík Laugardagur 85 ára Hermann M. Sigurðsson Ingólfur Þórarinsson 80 ára Erla Sigurbjörnsdóttir Guðmundur Svafarsson Hrefna Guðbjörg Ásmundsdóttir Hulda Mogensen Guðmundsdóttir Pétur Guðmundsson Unnur Þórðardóttir 75 ára Bjarnhéðinn Gíslason Björg G. Einarsdóttir Hulda Ósk Jónsdóttir 70 ára Anna M. Björnsdóttir Anna Óskarsdóttir Bjarni Þór Einarsson Eyrún Hafsteinsdóttir Gerður Jóhannsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Guðrún Valtýsdóttir Halldóra Jónsdóttir Hólmfríður Elín Ebenesersdóttir Kristján J. Karlsson Kristján Júlíus Ágústsson Lárus Jón Karlsson Magnhildur Erla Halldórsdóttir María Þ. Haukdal Jónsdóttir Sigríður Ólafsdóttir Sigurður Þórir Sigurðsson 60 ára Björgvin V. Guðmundsson Czeslaw Jez Eiríkur Ólafsson Finnur Hrafn Jónsson Helga Haraldsdóttir Hörður Hafsteinsson Jens Jensson Kristleifur G. Torfason Kristóbert Óli Heiðarsson Magnús Snæbjörnsson Sigríður María Hreiðarsdóttir Víglundur Grétar Jónsson Vítor Manuel Carvalho Soares 50 ára Ásgerður Fríða Vigfúsdóttir Ásta Berglind Alfreðsdóttir Björk Reynisdóttir Brynjólfur J. Hermannsson Eggert Hörgdal Snorrason Hlynur Hjaltason Ingibjörg Gunnarsdóttir Jón Hólm Gunnarsson Kolbeinn Jón Blandon Magnús Már Sigurðsson Ríkharður Traustason Ryszard Miazga 40 ára Andrej Maesiar Ágúst Marinó Ágústsson Birgir Kristján Guðmundss. Elva Hrönn Eiríksdóttir Hlynur Heimisson Hreiðar Ingi Þorsteinsson Inga Jóna Grétarsdóttir Kristín Soffía Kristmarsd. Leiknir Kristjánsson Zbigniew Mariusz Lis 30 ára Camilla Hólm Jóhannsd. Dircelene Gomes Almeida Elín Anna Gísladóttir Eyrún Linda Gunnarsdóttir Guðmundur Hinriksson Jóhann Alexander Árnason Kristófer Dan Sigurðsson Martyna Wójcik Páll Gunnlaugsson Sigurður Atli Sigurðsson Skúli Hansen Sólveig Sigurðardóttir Sunna Ýr Guðnadóttir Páskadagur 95 ára Marta Sigurlilja Sæmundsdóttir 85 ára Anna Hjartardóttir 80 ára Arndís Guðmundsdóttir Guðrún Lúðvíksdóttir Hekla Tryggvadóttir Hreiðar Eyjólfsson Sara Karlsdóttir 75 ára Ásgeir Jón Ámundason Egill Ásgrímsson Eva Thorstensen Guðlaugur Jóhannsson Sigrún Erna Sigurjónsdóttir Sigurrós Berg Sigurðardóttir 70 ára Björg Freysdóttir Jóhannes Pétursson Kristín Sigmarsdóttir Ólafur Örn Kristjánsson Rögnvaldur S. Reynisson Sigrún Karlsdóttir Sigurður Pétursson Sigurgeir Bjarnason Þórunn Erna Jessen 60 ára Anna Björk Njálsdóttir Anna Lilja Filipsdóttir Björn Ingi Þorgrímsson Elín Vilborg Friðvinsdóttir Högni Guðnason Ingibjörg E. Ingimundard. Ingólfur Gíslason Konráð Jón Birgisson Þórður Arason 50 ára Eunice Quason Greta Matthíasdóttir Guðríður Brynja Hjaltad. Ísabella Björk Bjarkadóttir Kolbrún Hilmarsdóttir Ragnheiður Kristinsdóttir Rósa Björk Svavarsdóttir Sveinn Albert Sigfússon Thi Hong Hanh Phan Yucheng Jia Þórarinn Brynjar Ingvarss. Þórdís Helga Ingibergsd. 40 ára Brynja Ármannsdóttir Catherine P. Soleminio Erla Ýr Hansen Ingvi Þór Sigurðsson Katarína Marciníková Mikael Sören Frisberg Ólafur Örn Pétursson Pawel Socha Sigurjón Jónsson Sindri Már Finnbogason Wioleta Marzec Zainab Nabo 30 ára Bjarndís Helena Friðriksd. Egill Victorsson Elías Bjarnason Fannar Carlsson Freyja Lára Alexandersd. Hafþór Þórarinsson Halldór Óli Gunnarsson Karolina Wiacek Karólína Alma Jónsdóttir Kristján R. Guðmundsson Piotr Dariusz Woloszyn Richard Ponec Sonja Arnórsdóttir Ugne Rusvaltaite Vigdís Aradóttir Til hamingju með daginn Þórður Kristleifsson fæddist 31.mars 1893 á Uppsölum íHálsasveit. Foreldrar hans voru hjónin Kristleifur Þorsteinsson, f. 1861, d. 1952, bóndi og fræðimaður á Kroppi í Reykholtsdal, og Andrína Guðrún Einarsdóttir, f. 1859, d. 1899. Þórður ólst að mestu leyti upp á Stóra-Kroppi, en foreldrar hans fluttu þangað þegar hann var fjög- urra ára gamall. Hann var við nám í skóla sr. Ólafs í Hjarðarholti veturna 1913-1915 og við söngnám í Dresden í Þýskalandi 1921-1925, Mílanó 1925- 1927 og Berlín 1927. Þegar heim var komið hélt Þórður nokkra einsöngstónleika en fór síðan að kenna söng og hélt í ferð til Þýska- lands 1929 til að kynna sér söng- kennslu þar í tvo mánuði. Fyrst í stað kenndi Þórður í Reykjavík og var í kjölfarið skipaður af menntamálaráðherra til að kanna söngkennslu í skólum og kynna til- lögur til úrbóta. Hann átti þannig drjúgan þátt í að efla sönglistina meðal skólafólks og alþýðunnar, og eitt af afrekum hans á því sviði var að gefa út sönglagahefti undir nafninu Skólasöngvar árið 1930. Fleiri slík sambærileg hefti áttu eftir að koma út fyrir hans tilstuðlan, með alls um fjögur hundruð sönglögum. Þórður gerðist síðan kennari við nýstofnaðan Héraðsskóla á Laug- arvatni árið 1930, síðan við Mennta- skólann þar og kenndi aðallega söng og þýsku til 1963 þegar hann fluttist til Reykjavíkur. Eftir það kenndi hann söng við Menntaskólann í Reykjavík. Stjórnaði hann allt að fimm kórum á Laugarvatni. Þórður gaf út rit föður síns, sem nú eru meðal merkustu heimilda um líf og störf Borgfirðinga seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar tutt- ugustu. Þórður var kvæntur Guðrúnu Ey- þórsdóttur, f. 12.3. 1897, d. 25.5. 1983, kennara. Þau eignuðust stúlku 3.10. 1936, en hún lést sama dag. Þórður lést 24.6. 1997, 104 ára að aldri, og var þá elstur íslenskra karl- manna Merkir Íslendingar Þórður Kristleifsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.