Morgunblaðið - 05.04.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Aðsókn í sjúkraþjálfun hefur aukist
gríðarlega á síðustu misserum og
finna sjúkraþjálfarar fyrir auknu
álagi. Breyting á greiðsluþátttöku-
kerfi sjúklinga er talin vera helsti
valdurinn að þessu aukningu en 1.
maí 2017 var samið um aðkomu
Sjúkratrygginga Íslands að sjúkra-
þjálfun.
Unnur Pétursdóttir, formaður Fé-
lags sjúkraþjálfara, segir illa ganga
að fjölga sjúkraþjálfurunum á land-
inu og hafa stofur og stofnanir leitað
til útlanda til að brúa bilið. Þá bætir
gráu ofan á svart að í ár er fyrsta ár-
ið sem enginn sjúkraþjálfari mun út-
skrifast úr Háskóla Íslands þar sem
ákveðið var að lengja námið. Hún
telur hins vegar aukna aðsókn sýna
helst hversu mikil greiðslubyrði
sjúklinga var fyrir breytingar.
„Þetta segir okkur meira um hvað
greiðsluþátttakan var orðin gríðar-
lega íþyngjandi fyrir fólk. Við höfum
líka talað við fjölmarga lækna, sem
við erum í góðu samstarfi við, og þeir
segja að þeir séu í auknum mæli
núna að senda fólk í sjúkraþjálfun.
Þeir hafi ekki getað gert það með
sæmilega góðri samvisku vitandi að
þetta kostar augun úr,“ segir Unnur
og bætir við að sjúkraþjálfarar hafi
verið meðvitaðir um að aðsókn
myndi aukast með nýju greiðsluþátt-
tökukerfi.
„Við vorum búin að segja við vel-
ferðarráðuneytið og sér í lagi
Sjúkratryggingar Íslands að þetta
myndi auka aðsóknina. Við vorum
búin að taka eftir því að fólk var farið
að veigra sér við því að sækja þjón-
ustu okkar sökum kostnaðar. Þannig
að við vissum að þetta myndi aukast
allhressilega. En ég verð að viður-
kenna að ég held að það hafi komið
okkur öllum á óvart hversu mikil
aukning þetta var.“
Árið í ár dýrara en áætlað var
Hún segir sjúkraþjálfara þó al-
mennt ánægða með þetta breytta
fyrirkomulag og bendir á nauðsyn
þess að greiðsluþátttaka sé ekki það
sem stýri úrræðum fólks við kvillum.
Hún segir hins vegar ljóst að nið-
urgreiðsla Sjúkratrygginga fyrir
sjúkraþjálfun árið 2018 verði dýrari
en heimildir eru fyrir. Sjúkratrygg-
ingar íhuguðu fyrir stuttu að segja
upp samningum við sjúkraþjálfara
vegna aukins kostnaðar. „Þó svo að
við værum búin að segja að það yrði
aukning þá áttuðu þau sig heldur
ekki á því hvað hún væri mikil og
reiknuðu ekki fjárframlög í sam-
ræmi við það,“ segir Unnur en
ákveðið var að hætta við að slíta
samningum og því er fyrirkomulagið
óbreytt.
Yfirgefa spítalann fyrir stofur
Spurð um hvort stéttin ráði við
þetta aukna álag segir Unnur að
sjúkraþjálfarar séu í standandi
vandræðum, manneklan sé mest á
stofnunum. „,Það eru ekki til nægi-
lega margir sjúkraþjálfarar á land-
inu, bæði stofur og stofnanir eru
byrjaðar að leita fanga erlendis.
Vandamálið er m.a. á Landspítalan-
um. Þegar svona mikið er að gera þá
eru meiri tekjumöguleikar á stofun-
um. Það sem hefur gerst, og er alvar-
legast í þessu, er að Landspítalinn
hefur misst mikið af sjúkraþjálfur-
um,“ segir Unnur og bendir á að í
síðasta fréttabréfi sjúkraþjálfara
voru 18 atvinnuauglýsingar.
„Þar var Landspítalinn einn og sér
að óska eftir fimm sjúkraþjálfurum
en fimm stöðugildi á Landspítalan-
um eru 7,5% af öllum stöðugildum
sjúkraþjálfara á spítalanum.“
Sjúkraþjálfarar anna ekki eftirspurn
Nýtt greiðsluþátttökukerfi talið vera
helsta ástæða aukinnar aðsóknar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur Mikill fjöldi sækir sjúkraþjálfun um þessar
mundir og hafa stofur og stofnanir leitað til útlanda til að manna stöður.
Jóhann Helgason tónlistarmaður
hyggst stefna tónlistarútgáfunni
Universal Music, norska lagahöf-
undinum Rolf Løvland og fleiri
tengdum aðilum fyrir hugverka-
stuld í laginu „You Raise Me Up“.
Segir hann að um sé að ræða aug-
ljósan þjófnað á dægurlagaperlunni
„Söknuði“ en lagið samdi Jóhann
við texta Vilhjálms Vilhjálmssonar
sem söng það inn á hljómplötuna
„Hana nú“ árið 1977.
Jóhann boðaði til blaðamanna-
fundar í hljóðverinu Hljóðrita í
Hafnarfirði þar sem lagið var tekið
upp árið 1977. Á fundinum kom
meðal annars fram að lögmanns-
stofan TSPMH hafi sent kröfubréf
til Universal Music og borist svar
þar sem ávirðingum um hugverka-
stuld er vísað á bug. Blasa því mála-
ferli við og er áætlaður kostnaður
við þau um ein milljón breskra
punda, eða um 140 milljónir króna.
Jóhann höfðaði mál fyrir breskum
dómstólum fyrir tíu árum, en ákvað
að fresta málshöfðuninni þegar
ljóst var að Universal Music hygðist
taka til fullra varna, sökum kostn-
aðar, en nú verður málshöfðunin
fjármögnuð með fjármagni fjár-
festa sem hafa hlutdeild í fjárhags-
legum ávinningi vinnist málið fyrir
dómstólum. Kom fram á blaða-
mannafundinum að kröfur um höf-
undarlaunagreiðslur og skaðabæt-
ur muni hlaupa á milljörðum króna.
Þá var lagið Söknuður gefið út í
enskri útgáfu í gær til að undir-
byggja málsóknina.
Morgunblaðið/Eggert
Hugverkastuldur Jóhann Helgason
á blaðamannafundinum í Hljóðrita.
Í mál vegna
stuldar á
Söknuði
Kröfurnar hlaupa
á milljörðum króna
Útför Ingimundar Sigfússonar, fyrrverandi
sendiherra, fór fram frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík í gær, en hann lést 20. mars síðastliðinn, átt-
ræður að aldri.
Séra Hjálmar Jónsson jarðsöng og fór með
minningarorð. Organisti var Kári Þormar, Rut
Ingólfsdóttir lék á fiðlu, Inga Rós Ingólfsdóttir á
selló og Kammerkór Dómkirkjunnar söng við at-
höfnina.
Líkmenn frá vinstri á myndinni eru: Styrmir
Gunnarsson, Björn Bjarnason, Rannveig Anna
Guicharnaud, Davíð Oddsson, Þorsteinn Ingi
Sigfússon, Kjartan Gunnarsson, Guðrún Nordal
og Jóhannes Torfason. Til hægri á myndinni má
sjá syni Ingimundar, þá Val og Sigfús.
Morgunblaðið/Eggert
Ingimundur Sigfússon borinn til grafar frá Dómkirkjunni
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Það er engin sérstök dramatík
núna, þetta er bara ákvörðun sem
við tókum,“ segir Guðlaug Svala
Kristjánsdóttir í samtali við Morg-
unblaðið og vísar til úrsagnar sinnar
og Einars Birkis Einarssonar úr
Bjartri framtíð, en þau voru bæjar-
fulltrúar flokksins í Hafnarfirði.
Þau ætla hins vegar að starfa út
kjörtímabilið sem óháðir fulltrúar.
Björt framtíð er í meirihlutasam-
starfi með Sjálfstæðisflokknum í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar og Guð-
laug er forseti bæjarstjórnar.
Ástæðuna fyrir ákvörðuninni segir
Guðlaug vera samstarfsörðugleika
innbyrðis og kveðst hún auk þess
ekki styðja sameiginlegt framboð
Bjartrar framtíðar og Viðreisnar.
„Þetta átti sér nokkuð langan að-
draganda, við gengum ekki í takt í
hópnum,“ segir Einar Birkir, sem
sagði ákvörðunina sameiginlega.
Þá segir hann að gerð samstarfs-
sáttmála Bjartrar framtíðar við
Sjálfstæðisflokkinn hafi að mestu
verið í sínum höndum og Guðlaugar
og að þau vilji vera honum trú.
„Við höfum náð góðum árangri í
gegnum þennan sáttmála og teljum
að það skipti höfuðmáli. Okkur
langar að eyða orkunni í að standa
við hann frekar en að beina henni
inn á við,“ segir Einar Birkir.
Björt Ólafsdóttir, formaður
Bjartrar framtíðar, sagði við Morg-
unblaðið að úrsögnin kæmi sér ekki
á óvart. Fulltrúarnir hefðu áður lýst
því yfir að þau ætluðu ekki að gefa
kost á sér aftur. Guðlaug sé í veik-
indaleyfi og Einar Birkir fluttur úr
bænum.
„Það kemur mér þó á óvart að
þau ætli að verða óháðir bæjar-
fulltrúar. Ég veit ekki hvað það þýð-
ir. Ég er uggandi yfir að Sjálfstæð-
isflokkurinn verði nánast einráður í
Hafnarfirði, því þau eru ekki á
staðnum sem fulltrúar okkar.“
Spurð hvort varabæjarfulltrúar
Bjartrar framtíðar geti leyst þau af,
segist Björt ekki búin að kanna mál-
ið.
Báðir bæjarfulltrúarnir hættir
Guðlaug S. Kristjánsdóttir og Einar Birkir Einarsson yfirgefa Bjarta framtíð
Björt óttast eins konar einræði Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði út kjörtímabilið
Guðlaug Svala
Kristjánsdóttir
Einar Birkir
Einarsson