Morgunblaðið - 05.04.2018, Síða 8
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
styrkur - ending - gæði
Eldhúsinnréttingar
hÁgÆÐa dansKar
OpiÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
úrVal innréttingaViÐ hönnum Og tEiKnum VönduÐ gÆÐaVaragOtt sKipulag
Borgarstjóri og meirihluti borg-arstjórnar Reykjavíkur vinna
að mörgum mikilvægum verk-
efnum í þágu borgarbúa sem seint
verða fullþökkuð.
Eitt þeirra verk-efna sem
standa upp úr á
þessu kjörtímabili –
og með því er ekki
ætlunin að gera lítið
úr glærusýningum
borgarstjóra um
fyrirhugaðar íbúðabyggingar – er
skipun starfshóps um „miðlæga
stefnumótun“.
Ekki er víst að allir borgarbúarátti sig á þýðingarmiklu hlut-
verki starfshópsins, en það er þetta,
eins og fram kemur í drögum að er-
indisbréfi hans:
„Hlutverk starfshópsins er að
vinna að umbótum og samræmdri
framkvæmd í stefnumótun og
stefnuframkvæmd, einkum í mið-
lægri stjórnsýslu og miðlægri
stefnumótun. Að fá bætta yfirsýn
yfir þær miðlægu stefnur og stefnu-
markandi skjöl sem eru fyrir hendi
og tengingu við undirstefnur og
áætlanir málaflokka. Jafnframt fá
yfirsýn yfir þær aðferðir sem not-
aðar eru við miðlæga stefnumótun.
Á grundvelli greiningarvinnu setji
starfshópur fram viðmið um bestu
framkvæmd við stefnumótun.“
Hér er því miður ekki rými til aðbirta útlistun á öllum helstu
verkefnum starfshópsins, en meðal
þeirra er að gera „greining-
arskapalón“, „kortlagning á mið-
lægum stefnum og stefnumarkandi
skjölum“ og að auki „greining á
miðlægum stefnum og stefnumark-
andi skjölum“ svo fátt eitt sé nefnt.
Víst er að eftir skipan slíksstarfshóps þurfa borgarbúar
ekki að óttast um trausta stjórn nú-
verandi meirihluta.
Dagur B.
Eggertsson
Miðlæg stefnumót-
un og undirstefnur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.4., kl. 18.00
Reykjavík 4 heiðskírt
Bolungarvík -2 snjókoma
Akureyri -1 snjókoma
Nuuk -1 alskýjað
Þórshöfn 2 léttskýjað
Ósló 3 þoka
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 5 þoka
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 11 léttskýjað
Brussel 13 léttskýjað
Dublin 5 skúrir
Glasgow 2 rigning
London 10 skúrir
París 11 rigning
Amsterdam 10 skúrir
Hamborg 14 rigning
Berlín 20 heiðskírt
Vín 18 heiðskírt
Moskva 6 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 19 heiðskírt
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 19 heiðskírt
Winnipeg -6 skýjað
Montreal 0 rigning
New York 9 þoka
Chicago -1 skýjað
Orlando 21 skýjað
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:31 20:31
ÍSAFJÖRÐUR 6:31 20:41
SIGLUFJÖRÐUR 6:13 20:24
DJÚPIVOGUR 5:59 20:02
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Engar breytingar verða á sambýli
sendiráða Bretlands og Þýskalands í
sameiginlegri byggingu sendiráðanna
við Laufásveg í Reykjavík eftir út-
göngu Breta úr Evrópusambandinu.
Auðunn Arnórsson, upplýsinga-
fulltrúi hjá breska sendiráðinu, stað-
festir þetta við Morgunblaðið. Sam-
eiginleg sendiráðsbygging Bretlands
og Þýskalands við Laufásveg var opn-
uð formlega 2. júní árið 1996. Malcolm
Rifkind, þáverandi utanríkisráðherra
Bretlands, og Werner Hoyer, þáver-
andi aðstoðarutanríkisráðherra
Þýskalands, komu til landsins af því
tilefni og opnuðu bygginguna form-
lega. Sögðu ráðherrarnir hana vera
táknrænt dæmi um vináttu og sam-
vinnu þjóðanna. Þó að rekstur sendi-
ráðanna hafi verið aðskilinn hafa þau
samnýtt ýmsa aðstöðu í húsinu. Mið-
hluti hússins er sameiginlegur, inn-
gangur og kaffistofa á fyrstu hæð og
fundarherbergi á annarri hæð, að
sögn Auðuns. Brexit mun heldur eng-
in áhrif hafa á hvernig flaggað verður
við sendiráðin því frá upphafi hefur
það verið þannig að Evrópufáninn
blaktir eingöngu við hliðina á þeim
þýska, ekki þeim breska. ,,Það þarf
því ekki að breyta neinu,“ segir hann.
Áfram undir sama þaki eftir Brexit
Evrópufáninn blaktir eingöngu við
hliðina á þeim þýska, ekki þeim breska
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laufásvegur 31 Sendiráð Breta og
Þjóðverja frá í júní 1996.
Karlmaður á sex-
tugsaldri var í
gær fundinn sek-
ur um blygðunar-
semisbrot, en
hann afklæddist í
gestamóttöku
Hótels Sögu við
Hagatorg í Vest-
urbæ Reykjavík-
ur og fróaði sér
yfir klámefni í
tölvu sem þar er staðsett. Gerðist
þetta í nóvember árið 2016.
Starfsmaður hótelsins, hótel-
gestur og lögreglumaður sem kom á
vettvang urðu vitni að lostugu at-
hæfi mannsins. Segir í dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur að maðurinn hafi
með háttsemi sinni sýnt af sér ósið-
legt og lostugt athæfi sem var til
þess fallið að særa blygðunarsemi
viðstaddra.
Maðurinn játaði brot sitt skýlaust
fyrir dómi. Hann var árið 2016
dæmdur í skilorðsbundna refsingu
vegna þjófnaðar og rauf hann því
skilorð með athæfi sínu. Taldi hér-
aðsdómur hæfilega refsingu vera
fimm mánaða skilorðsbundið fang-
elsi. Þá þarf maðurinn einnig að
greiða málsvarnarlaun verjanda
síns.
Dónaskapur At-
vikið var á Sögu.
Fróaði sér í
móttökunni
Rauf skilorð með
lostugu athæfi sínu