Morgunblaðið - 05.04.2018, Page 56
Marta María
mm@mbl.is
„Mér finnst gaman að hafa nám-
skeiðin hérna heima, ég er ótrúlega
heimakær! Finnst hluti af því að tala
um þessa sterku perónulegu nálgun í
innanhússhönnun vera þá að bjóða
fólki heim sem sækir námskeiðin. Þá
skapast öðruvísi tenging og meiri
nálgun. Fólk verður afslappaðra og
líður vonandi vel,“ segir Halla Bára
þegar hún er spurð út í það hvers
vegna námskeiðin séu haldin heima
hjá henni.
Þegar Halla Bára er spurð hvers
vegna hún sé að bjóða upp á nám-
skeið í innnahússhönnun segir hún að
þessi hugmynd hafi blundað í sér
lengi.
„Ég veit af áhuga fólks á innan-
hússhönnun og það er mjög auðvelt
að taka eftir honum úti um allt. En að
taka áhugann aðeins lengra hefur
ekki verið í boði fyrir fólk og ég ákvað
að gera eitthvað í því og setja saman
námskeið.“
Hvernig fer námskeiðið fram?
„Ég byggi námskeiðið upp á hug-
myndum mínum um að búa sér til
áhugavert og persónulegt umhverfi.
Það er ávallt útgangspunktur hjá
mér. Ég fer í gegnum ýmsa þætti til
að koma sköpunargáfunni af stað og
hvernig vinna má með eigin stíl. Ég
huga að heimilinu í heild og hvet til
sjálfstæðrar hugsunar. Fer yfir tíð-
arandann, tísku og stíl. Og svara
spurningum sem allar eru mikilvægt
skref í átt að aukinni færni og meira
öryggi í að vinna með rými sem vilji
er til að geisli af.
Ég vil ekki hafa hópana of fjöl-
menna til að nái að skapast skemmti-
legar samræður og fólk þori að
spyrja spurninga. Sömuleiðis vegna
þess að ég held þetta heima og vil að
það fari vel um alla.“
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson
Að taka
áhugann
skrefinu
lengra
Halla Bára Gestsdóttir innan-
hússhönnuður er farin af stað
með námskeið í innanhúss-
hönnun. Hún heldur þau heima
hjá sér og býður áhugasömum í
heimsókn í spjall um heiðarlegt
og persónulegt umhverfi. Halla
Bára er einn vinsælasti innan-
hússhönnuður landins.
SJÁ SÍÐU 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
T
Allt f
LA
uggann
S
yrir gl
Allt fyrir luggann
Allt fyrir gluggann…
Allt fyrir gluggann…
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
Allt fyrir gluggann…
Álnabær
SMARTLAND