Morgunblaðið - 05.04.2018, Page 79
DÆGRADVÖL 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur náð góðu verklagi og átt
að kappkosta að halda því. Nú er rétti tím-
inn til þess að losa sig við efnislega hluti
sem trufla sálarró þína.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú leggur þig yfirleitt fram um að
halda friðinn en í dag er ómögulegt að
gera öllum til hæfis. Vertu bara þú sjálf/ur
og sinntu þínum störfum sem best þú get-
ur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að endurskoða líferni
þitt og taka meira mið af því sem er hollt
og heilsusamlegt. Vinur hjálpar til við að
rugla fyrirframgefnum hugmyndum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Treystu á sjálfan þig varðandi
framtíð þína. Framlag þitt til hópavinnu
mun vekja á þér athygli. Ekki reyna að
ganga í augun á röngum aðila.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur alltaf verið mjög frumlegur
hugsuður, það er augljóst þessa dagana.
Gerðu það sem til þarft að koma þér í
betra líkamlegt form. Gönguferðir eru góð-
ar fyrir sálina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú finnur löngun hjá þér til að gera
eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til
þess fyrr en síðar. Forðastu tilboð sem eru
of góð til að vera sönn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Óvenjulegt fólk höfðar sterkt til þín.
Þér líkar ekki við hvernig nágrannar haga
sér, ræddu málin, ekki stinga höfðinu bara
í sandinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sumum finnst þeir þurfa að
fegra hlutina en það á ekki við um þig.
Hreinskilni þín fellur oft í grýttan jarðveg
en hvað um það?
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hristu af þér slenið og gakktu
glaður til starfa á nýjum degi. Þér hættir
til að dæma fólk of hart og við fyrstu sýn.
Gefðu öðrum tækifæri til að sanna sig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er engin ástæða til að láta
minniháttar rifrildi komast upp á milli vina.
Ef þú hefur ekki efni á hlutnum bíddu þá
með að kaupa hann.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fjárhagurinn gæti vænkast á
næstu vikum ef rétt er á málum haldið.
Þér hættir til að vaka of lengi fram eftir.
Góður svefn er gulli betri.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert kraftmikil/l og svolítið eirð-
arlaus í dag. Stundum krefst ástin þess að
þú berjist og stundum að þú gefist upp.
Nú eru öll helstu stórmenni mann-kynssögunar horfin á braut, og
sjálfur er Víkverji hálfslappur, eins
og segir í eldgömlum brandara. Vík-
verji eyddi mestallri páskahelginni í
veikindi og flutninga, og hafði hið
fyrra skiljanlega áhrif á hið síðar-
nefnda, þegar slappleikanum fylgdi
sá „kostur“ að Víkverja varð óglatt
við of mikla áreynslu. Tókst þó á
endanum að flytja allt sem þurfti að
flytja, en mikið skelfing hefði Vík-
verji viljað hvíla sig frekar.
x x x
Víkverja bíða nefnilega nýir tímarframundan, og veit hann ekki al-
veg hvað framtíðin muni bera í
skauti sér. Hann veit þó ekki hvort
það er góðs viti eður ei að skrifstofur
þess stjórnmálaafls sem Víkverji
hefur síst samsamað sig með á síð-
ustu árum eru beint fyrir framan
hinar nýju vistarverur hans. „Æ,
nei,“ tautaði Víkverji fyrir munni
sér, áður en hann mundi það að nú
erum „við“ víst öll í sama liðinu, alla-
vega fram til næstu kosninga.
x x x
Honum hefur jafnframt verið hug-leikið síðustu daga lag Bítlanna,
sem Paul McCartney samdi, „You
Never Give Me Your Money“, sem
fjallar að miklu leyti um þá óvissu
sem var uppi á síðustu árum hljóm-
sveitarinnar, þegar lagakrókar og
peningamál fóru að skyggja á tón-
listina, sem hefði átt að vera í fyrsta
sæti. Er nánast ótrúlegt að hugsa til
þess hversu miklar flækjur sköp-
uðust við það að fjórmenningarnir
frá Liverpool fóru hver í sína áttina,
og tók mörg ár áður en botn fékkst í
þau mál.
x x x
Dróst endanlegt samkomulag álanginn, því að þegar undirrita
átti alla pappíra um „skilnaðinn“ ár-
ið 1974, vildi John ekki koma, þar
sem „óheillatungl“ væri á lofti. Mun
George Harrison hafa sagt John að
hypja sig af stað, svo ekki sé fastar
að orði kveðið og ljúka þessu af.
John hreyfði sig þó hvergi, og und-
irritaði pappírana síðar, þegar hann
var í Disney World-skemmtigarð-
inum. Þvílíkur endir fyrir stærstu
hljómsveit allra tíma. vikverji@mbl.is
Víkverji
Innan skamms mun heimurinn ekki
sjá mig framar. Þér munuð sjá mig
því ég lifi og þér munuð lifa.
(Jóh: 14.19)
U
Fallegu vorvörurnar
frá Gommaire
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Helgi R. Einarsson leit út umgluggann að morgni annars í
páskum – þá varð þessi limra til og
nýyrðið vorbrigði:
Í morgun varð um og ó
því ekkert ég leit nema snjó.
Í gærkveldi glaður
grandalaus maður.
Í brjósti mér vorið þá bjó.
Steinunn P. Hafstað segir frá því
á Boðnarmiði að með eftirfarandi
ljóði fylgi texti á heimasíðu sinni –
en engu að síður sé hér á ferð
ádeila á alla, sem leyfa sér að henda
frá sér alls kyns rusli á göngu um
náttúruna:
Í hendi sinni heldur kerling á
hræðilegum leifum, sem að stinga
hunda, sem að blóðið fossar frá
í ferð, sem breytir þeim í vesalinga.
Ungamamma í angist liggur hjá,
ofan í sig kyngdi tyggjóklessu.
Sting í hjartans hreiðri ungar fá,
því hana sjá þeir dauðvona úr þessu.
Sígarettustubbar staldra við
og stinga í augu fólks, sem gengur hjá.
Ódaunn þeirra veldur velgju í kvið
og vanlíðan, sem blómálfana hrjá.
Páll Imsland heilsar leirliði á há-
tíðinni – segir að þessi limra sé nú
ekki sérlega hátíðleg en notast þó
við eitt hátíðlegt rímorð:
Háma þeir helling í Jemen
af heilsumat, grautum og kúmen.
Svo ropa þeir lágt
og ræskja sig hátt
og upphrópa hátíðlegt amen.
Á laugardag talaði Ingólfur Óm-
ar um batnandi tíð: „Veðrið hefur
verið afskaplega gott undanfarið
og það leynir sér ekki að það er vor
í lofti hvað svo sem verður en mað-
ur vonar það besta enda er gróður
farinn að taka við sér.
Hlýnar tíðin brosa ból
blóm og víðir gróa.
Geislum blíðum baðar sól
brekkur, hlíð og móa.
Sigmundur Benediktsson tók
undir og orti:
Geislar binda gleðióð
gefur sindrið páskaglóð
hlýleg vindaveröld hljóð
vefur yndi land og þjóð.
Geislum alin fósturfold
frjóum svalar lagin.
Rumskar kalin rót í mold,
rjúfa dvala fræin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorbrigði og
af rusli og veðrinu
„ÞÚ ÁTT ALLTAF RÉTT Á ÖÐRU ÁLITI.
BARA PANTAÐU ANNAN TÍMA Í NÆSTU
VIKU.“
„MÉR ER SAMA ÞÓ VIÐ HÖFUM VERIÐ
GIFT Í 15 ÁR, ÉG ÆTLA EKKI AÐ KAUPA
BURSTA AF ÞÉR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þau láta þér
líða eins og þú sért
sérstök.
LOKSINS ER
HÚSIÐ HREINT!
VIÐ HEFÐUM ÁTT
AÐ GERA ÞETTA
FYRIR LÖNGU
VIÐ HEFÐUM ÁTT
AÐ GERA ÞETTA
FYRIR LÖNGU
TVEIR GULLPENINGAR ER FREKAR
MIKIÐ FYRIR BJÓR!
JÁ, EN SÝNINGIN ER INNIFALIN!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann