Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 81
ingum sínum (á bláum vegg) nýtir
Flóki sér mýkt efnisins, einfaldar
myndflötinn og beitir „chiaroscuro“
í mótun forma og sköpun mynd-
dýptar í anda listar fyrri alda, og er
útkoman þar ekki síður mögnuð.
Tilvistarlínur
Tjáningargildi línunnar er í fyrir-
rúmi í grafíkverkum Jóhönnu Boga-
dóttur og Ástu Sigurðardóttur, en
með ólíkum hætti þó. Í handlituðum
litógrafíum sínum leysir Jóhanna
tjáningarkraft línunnar úr viðjum
skyggingartækni og sækist eftir
frjálsu flæði lausmótaðra forma og
ólgandi lína í óræðu myndrými. Í
sköpunarferlinu renna saman hug-
hrif og minningar sem tengjast per-
sónulegri reynslu og túlkun á knýj-
andi málefnum samtímans. Verk
hennar leiða hugann að verkum af-
strakt-expressjónista frá miðri 20.
öld, þar sem hugmyndir um ósjálf-
ráða og óhlutbundna tjáningu fóru
saman, og teikning og málverk birt-
ast sem einn og sami hluturinn.
Dúkristur Ástu byggjast á stíliser-
uðum formum sem mörkuð eru
skörpum útlínum. Verkin endur-
spegla áhrif frá svartlist þýskra ex-
pressjónista og tjáningu þeirra á til-
vistarangist og myrkum hliðum í
sálarlífi einstaklinga og samfélags. Í
sýningarborði liggja dúkristurnar
við hlið bókanna þar sem þær birt-
ust upphaflega, þ.á m. í smásagna-
safni Ástu, Sunnudagskvöld til
mánudagsmorguns frá 1961.
Dúkristurnar eru órjúfanlegur hluti
af heildartjáningu Ástu þar sem
fléttuðust saman myndmál og texti
svo eftir var tekið á sínum tíma. Hér
eru þær einnig sýndar sem sjálfstæð
verk á vegg í formi nýrra, fallegra
þrykkmynda á pappír. Myndum af
þjóðsagnaspilum sem Ásta teiknaði
1960-63 er brugðið upp á skjá og býr
túlkun hennar á ýmsum sagnaverum
yfir leikrænum tjáningarkrafti.
Samfelld teikning
Í vestursal Kjarvalsstaða stendur
yfir önnur og ekki síður athyglisverð
sýning þar sem teikningin gegnir
mikilvægu hlutverki. Um er að ræða
sýninguna Kjarval: Líðandin – la du-
rée þar sem brugðið er upp ferskum
sjónarhornum á listsköpun Jóhann-
esar S. Kjarvals. Túlkun Kjarvals á
kúbismanum setur svip á höfund-
arverk hans, og fyrir rúmum áratug
kom í leitirnar verkið „Hvítasunnu-
dagur“ sem renndi stoðum undir
snemmbæran áhuga Kjarvals á fút-
úrisma. Nýlegar listsögulegar rann-
sóknir hafa beinst að áhrifum kenn-
inga heimspekingsins Henris
Bergsons á verk Kjarvals, en þekkt
eru áhrif kenninganna á fútúrista,
kúbista og aðra framúrstefnu-
listamenn um og upp úr þarsíðustu
aldamótum samfara hræringum
módernismans í Evrópu. Sýningin
varpar ljósi á niðurstöður rann-
sóknar Aldísar Arnardóttur list-
fræðings og sýningarstjóra á slíkum
áhrifum. Þar hefur „kúbísku verk-
unum“ verið safnað sérstaklega
saman, þ.á m. mörgum sem hafa
ekki sést áður saman á sýningu, og
er hún því afar forvitnileg. Kenn-
ingar Bergsons ganga í stuttu máli
út á sálfræðilega innri skynjun
mannsins á tímanum andspænis
mælanlegum tíma, og einkennist sú
skynjun af samfellu í gagnvirku
samspili fortíðar og líðandi stundar,
eða eins konar sífelldri líðandi. Á
sýningunni er dregið fram hvernig
tilraunakennt og leitandi eðli Kjar-
vals birtist m.a. í endurteknum mót-
ífum – og um leið hvernig formræn
leit hans birtist í gegnum teikning-
una. Það á bæði við um hinar eigin-
legu teikningar á sýningunni – og
eru þær allmargar – og þá tilrauna-
smiðju sem málverkin eru, þar sem
saman fara formpælingar Kjarvals
og grúsk í eigin skynjun á umhverf-
inu, sögu og samtíð.
Sýningin Kjarval: líðandin – la du-
rée endurspeglar fráhvarf módern-
ismans frá list fyrri alda í þeim
skilningi að teikningin – suðupottur
sköpunarferlisins – brýtur sér leið
upp á yfirborðið. Á undanförnum ár-
um hefur teikningin verið skilgreind
sem samfellt, opið ferli. Teikningin
er þannig sífelld verðandi, eða sögn
eins og bandaríski listamaðurinn
Richard Serra orðaði það í viðtali
fyrir 40 árum. Sú hugmynd varpar
ljósi á það hvers vegna myndraðir
eru svo áberandi sem raun ber vitni
á sýningunum sem hér hafa verið til
umfjöllunar. Hver teikning felur í
sér svipi fortíðar og framtíðardrætti
– eins og gott Kjarvalsverk.
Ævintýri Sýningin á verkum Ásgríms Jónssonar í Listasafni Íslands hverfist
um merkt safn þjóðsagnamynda eftir Ásgrím sem varðveittar eru í safninu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Myrkraverk Á Kjarvalsstöðum. Verk eftir Kristin Pétursson til beggja
handa, Siggu Björgu fjær og Ástu Sigurðardóttir fyrir miðju.
„Ég hlakka til að setja á svið þessa
sögu af stelpu sem þróar með sér
ofurkrafta í baráttu sinni við ranglæt-
ið,“ segir Bergur Þór Ingólfsson sem
leikstýra mun söngleiknum Matt-
hildur (Matilda) eftir Tim Minchin og
Dennis Kelly, sem byggist á sam-
nefndri skáldsögu eftir Roald Dahl og
frumsýndur verður á Stóra sviði
Borgarleikhússins í mars 2019. „Tón-
list Tims Minchin er mjög flott, en
hann er sem tónskáld svolítið hrekkju-
svín sem kallast vel á við Roald Dahl,
sem er frekar grimmur höfundur
samtímis því sem hann býr yfir mikl-
um húmor,“ segir Bergur og tekur
fram að hann hafi lengi verið mikill
aðdáandi Dahl. „Hann treystir krökk-
um fyrir því að takast á við hræðileg
ævintýri.“
Bergur Þór er reynslumikill söng-
leikjaleikstjóri, en hann leikstýrði m.a.
Mary Poppins 2013, Billy Elliot 2015
og Bláa hnettinum 2016. „Mér finnst
mjög gaman að setja upp söngleiki,“
segir Bergur og tekur fram að það sé
ávallt krefjandi að fylla Stóra svið
Borgarleikhússins með söng, dansi og
leik. Honum til halds og trausts verða
danshöfundurinn Lee Proud, tónlist-
arstjórinn Agnar
Már Magnússon,
leikmyndahönnuð-
urinn Ilmur Stef-
ánsdóttir, búninga-
hönnuðurinn María
Th. Ólafsdóttir og
Þórður Orri Péturs-
son sem hannar
lýsingu, en íslensk
þýðing verksins er
í höndum Gísla Rúnars Jónssonar.
„Það er óhætt að segja að þetta sé
reynslumikið teymi þegar kemur að
svona umfangsmiklum sýningum.“
Hátt í tuttugu börn munu fara með
hlutverk í Matthildi og verður tekið
við skráningum í áheyrnarprufur fyrir
krakka fædda á árunum 2006-2011 hjá
Borgarleikhúsinu 11. apríl milli kl. 15
og 18. Þrjár stelpur munu skipta með
sér hlutverki Matthildar og 16 krakk-
ar skipta með sér átta öðrum hlut-
verkum. „Mér finnst mjög gaman að
vinna með krökkum. Þau eru miklum
gáfum prýdd og fljót að læra. Mér
finnst því ekki leiðinlegt að vinna með
framtíðinni.“
Söngleikurinn Matilda var frum-
sýndur hjá Royal Shakespeare Comp-
any 2010 og rataði í framhaldinu á
bæði West End og Broadway. Verkið
hefur hlotið hátt í hundrað verðlaun af
ýmsu tagi og 16 sinnum verið verð-
launaður sem besti söngleikurinn.
Samkvæmt upplýsingum frá Borg-
arleikhúsinu hafa stjórnendur leik-
hússins alltaf viljað hafa frjálsar hend-
ur varðandi sviðsetningar söngleikja
og leikrita frekar en að vinna eftir for-
skrift eins og stundum er gert á West
End, Broadway og víðar. „Listrænir
stjórnendur hafa ætíð haft frelsi í sínu
sköpunarferli. Það fer eftir ýmsu hve
auðvelt eða erfitt er að fá leyfi til
frjálsra sviðsetninga. Stundum þarf
að bíða nokkur ár. Í sumum tilfellum
eru breytingarnar frá upprunlegum
uppfærslum gerðar undir ströngu eft-
irliti rétthafa en samt þannig að list-
rænir stjórnendur sýningarinnar
setja fram sína útfærslu. Stundum eru
gerðar athugasemdir en langoftast
ekki,“ segir Kristín Eysteinsdóttir
borgarleikhússtjóri. Síðasta áratug
hefur Borgarleikhúsið sett á svið
Gosa, Söngvaseið, Galdrakarlinn í Oz,
Línu langsokk, Mary Poppins, Billy
Elliot, Mamma mia! og nú síðast
Rocky Horror. silja@mbl.is
Ofurkraftar gegn ranglæti
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir söngleiknum Matthildi
sem Borgarleikhúsið frumsýnir á Stóra sviðinu í mars 2019
Bergur Þór
Ingólfsson
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s
Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s
Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s
Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s
Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Þri 15/5 kl. 20:00 aukas.
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s
Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s
Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 15. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Fim 10/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 16. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn
Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn
Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn
Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn
Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn
Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Nýtt leikverk byggt á hrífandi skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur.
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Efi (Kassinn)
Fim 5/4 kl. 19:30 Síðustu Fös 6/4 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Faðirinn (Kassinn)
Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 32.sýn
Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 33.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Mán 9/4 kl. 11:00 Vík Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Þri 10/4 kl. 11:00
kirkjub.klaustur
Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss
Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 24/4 kl. 11:00
Hveragerði
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00
Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30
Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið)
Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og
úlfurinn
Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og
Siggi
Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og
Siggi
Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS