Morgunblaðið - 05.04.2018, Síða 82
Wadada Leo
Smith kemur fram í
Mengi með íslensk-
um listamönnum
AF TÓNLIST
Örn Þórisson
orn@mbl.is
Wadada Leo Smith, frumkvöðull í
bandarískri djass- og nútímatónlist
og einn af helstu trompetleikurum
samtímans, heimsækir Ísland til tón-
leikahalds í Mengi nú 13. og 14. apríl,
í næstu viku. Wadada Leo Smith
hefur mörgum sinnum komið til
landsins til tónleikahalds undanfarin
35 ár. Fyrst kom hann í júlí 1982 á
vegum Jazzvakningar. Í september
1984 kom Wadada í annað sinn og
dvaldi þá í heilan mánuð við tónleika-
hald, fyrirlestra og kennslu á vegum
Gramm-útgáfunnar. Meðal annars
voru fluttir eftir hann strengjakvar-
tettar og kraftmikil fönktónlist með
ungum íslenskum tónlistarmönnum.
Wadada heimsótti Ísland síðast
í janúar 2017 og lék dúetttónleika
með píanóleikaranum Vijay Iyer í
Hörpu sem vöktu mikla athygli.
Wadada Leo Smith hefur bund-
ist mörgum íslenskum tónlist-
armönnum böndum. Framsæknir
tónlistarmenn á borð við Hilmar
Jensson, Matthías Hemstock, Pétur
Grétarsson, Þorstein Magnússon og
Skúla Sverrisson hafa mörgum sinn-
um notið samstarfs við Wadada,
leikið á tónleikum og inn á diska.
Margir aðrir hafa kynnst honum í
fyrirlestrum hans hjá FÍH og víðar.
Síðustu ár hafa verið einstak-
lega gjöful fyrir Wadada og staða
hans í skapandi tónlistargeiranum
er óumdeild. Má t.d. nefna að óður
hans til mannréttindabaráttu
svartra, fjögurra diska kassinn Ten
Freedom Summers, var tilnefndur
til Pulitzer-tónlistarverðlaunanna
2013. Hann var á forsíðu tímaritsins
DownBeat tvisvar á 12 mánaða tíma-
bili, í seinna skiptið þegar gagnrýn-
endur tímaritsins veittu honum ein-
hvers konar alslemmu
viðurkenninga og útnefndu Wadada
Leitast við að gera heiminn að betri stað
Leo Smith besta djasstónlistarmann
og trompetleikara ársins og útgáfan
America’s National Parks var valin
besta plata ársins 2017.
Hvetjandi fyrir alla
Undanfarin tvö ár hefur Wad-
ada Leo Smith skipulagt tónlistarhá-
tíðina CREATE Festival í Banda-
ríkjunum, tileinkaða hans eigin
tónsmíðum og flutningi þeirra. Nú í
fyrsta sinn í Evrópu verður tveggja
daga CREATE-hátíð haldin í Mengi
þar sem íslenskir tónlistarmenn
koma fram ásamt Wadada. Á sama
tíma gefur Mengi út íslenska þýð-
ingu Árna Óskarssonar af Notes: (8
pieces). A Source for Creative Mu-
sic, bók Wadada sem kom fyrst út
árið 1973 og inniheldur vangaveltur
hans um tónlist, hlutverk og stöðu
skapandi tónlistarmann. Á meðan
hátíðin stendur yfir munu myndræn
tónverk Wadada, Ankhrasmation,
prýða veggi Mengis.
Bókin Notes: (8 pieces). A
Source for Creative Music er merki-
legur gripur sem á rætur sínar í rót-
tæku umhverfi sjöunda áratugar síð-
ustu aldar þegar efnahagslegar og
félagslegar aðstæður svartra tónlist-
armanna í samvinnufélaginu AACM
í Chicago voru endurhugsaðar. Að
sumu leyti er þetta handbók frjálsa
djassins, varnarorð fyrir afrísk-
ameríska tónlist og hefðir. Bókin
veitir á einstakan hátt innsýn í nálg-
un Wadada á tónlistarsköpun, hvað
er að vera skapandi tónlistarmaður
og einstaklingur. Bókin er hvetjandi
fyrir alla, eins og segir á einum stað:
„Hinn skapandi listamaður leitast
við að gera heiminn að betri stað á
sinni ævi. Þessi leiðangur heldur
áfram í dag í þágu allra manna.
Skapandi tónlist og hinar fögru listir
eru handa öllum og sérstaklega
handa þeim sem geta og vilja hafa
fyrir því að mæta sjálfum sér í beinni
leit að sannleikanum. Vegna viðleitni
sinnar lifa þessar sömu manneskjur
ævintýralega í uppgötvunum sínum
á leyndarmálum lífsins.“
Notes komu fyrst út í Banda-
ríkjunum 1973 (endurútgefnar 2015)
og hafa einnig verið gefnar út á Ítal-
íu, Grikklandi og Japan.
Nýir möguleikar
Þrotlaus sköpunarþörf og ör-
læti Wadada hefur leitt af sér
CREATE Festival Reykjavík, þar
sem í tvo daga verður spiluð tónlist
hans í samstarfi við íslenskt tónlist-
arfólk. Þau sem koma fram eru auk
Wadada Skúli Sverrisson, Magnús
Trygvason Eliassen, Daníel Friðrik
Böðvarsson, Róbert Sturla Reyn-
isson, Gyða Valtýsdóttir og Kristín
Anna Valtýsdóttir. Verða ólíkar
samsetningar tónlistarfólks þessa
daga, sóló, dúettar og tríó. Sumir eru
að vinna með Wadada í fyrsta skipti,
en aðrir, eins og Skúli Sverrisson,
eiga langa samstarfssögu sem legið
hefur víðsvegar um heiminn.
Skúli var unglingur í tónlistar-
skóla FÍH þegar Wadada kom í skól-
ann til námskeiðshalds haustið 1984.
Skúli lýsir því svo að námskeiðið hafi
opnað fyrir honum dyr sem fram að
þeim tíma voru luktar, skyndilega
hafi opnast nýir möguleikar til tón-
listarsköpunar.
Síðan eru liðin mörg ár og Wa-
dada Leo Smith kominn á áttræð-
isaldur, þó ekki sjáist nein merki
þess að hann slaki á og dragi sig í
hlé. Á síðasta ári lauk hann upp-
tökum á tíu strengjakvartettum og
um haustið komu út tveir ólíkir
diskar sem vöktu talsverða athygli,
sérstaklega sóló trompet diskur, til-
einkaður Thelonius Monk, sem inni-
hélt frumsamin verk en einnig, út-
gáfur Wadada af frægum verkum
Monk, eins og „Ruby, My Dear“ og
„‘Round Midnight“.
Wadada Leo Smith er sann-
arlega risi í amerísku tónlistarlífi,
sumir þarlendir segja þjóð-
argersemi. Á sinn hátt hefur hann
líka haft áhrif á íslenskt tónlistarlíf
og það heldur áfram.
» Smith er sannar-lega risi í amerísku
tónlistarlífi, sumir þar-
lendir segja þjóðarger-
semi. Á sinn hátt hefur
hann líka haft áhrif á ís-
lenskt tónlistarlíf og það
heldur áfram.
Blásarinn Smith á tónleikum í Norðurljósasal Hörpu í fyrra. Hann hefur margoft leikið hér, fyrst árið 1982.
Ljósmynd/Snorri Björnsson
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
585
Strákú
á tann
verði
Garðkl a/Garðskófla
595
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
3.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar
með 100 kg burðarge
frá 995
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá 999
Laufsugur
9.985
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
Þáttaröðin Line of Duty hlýtur
flestar tilnefningar, fjórar alls, til
sjónvarpsverðlauna bresku kvik-
mynda- og sjónvarpsakademíunnar,
Bafta, í ár. Greint var frá tilnefning-
unum í gær og vekur breska rík-
isútvarpið, BBC, sérstaka athygli á
því á vef sínum að Ant McPartlin og
Declan Donnelly, eða Ant og Dec
eins og þeir eru jafnan kallaðir í
Bretlandi, eru tilnefndir í flokki
skemmtiþátta fyrir þáttinn Sat-
urday Night Takeaway en Dec hef-
ur séð einn um þáttinn eftir að vinur
hans Ant var ákærður fyrir ölv-
unarakstur. Í sama flokki er þátta-
röðin Britain’s Got Talent en Ant og
Dec eru líka í hlutverki kynna í
henni. Þeir félagar hafa hlotið 13
Bafta-verðlaun á löngum sjónvarps-
ferli sínum.
Næstflestar tilnefningar hljóta
þáttaraðirnar Three Girls, The
Crown og Black Mirror, þrjár hver.
Þáttaröðin Line of Duty er fram-
leidd af BBC og hlýtur m.a. tilnefn-
ingu fyrir bestu dramaþætti og bestu
leikkonu í aðalhlutverki, Thandie
Newton. Claire Foy er tilnefnd annað
árið í röð í sama flokki, fyrir túlkun
sína á Elísabetu II. Englandsdrottn-
ingu, og leikkonan Vanessa Kirby,
sem leikur Margréti prinsessu í sömu
þáttum, er meðal þeirra sem til-
nefndar eru fyrir bestan leik í auka-
hlutverki. Þá eru þættirnir tilnefndir
sem bestu dramaþættirnir. Heild-
arlista tilnefninga má finna á vef BBC.
Line of Duty hlaut
flestar tilnefningar
Tilnefnd Leikkonan Thandie Newton í Line of Duty, þáttaröð BBC.