Morgunblaðið - 05.04.2018, Side 92
FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 95. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Eignaðist fjórða barnið 45 ára
2. „Ég fann aldrei fyrir neinni gleði“
3. Hundur drap mæðgin
4. Rut Kára hannaði glæsihús …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngkonan Rakel Pálsdóttir og
píanóleikarinn Birgir Þórisson flytja
Eurovisionlög, úr jafnt aðal- og und-
ankeppnum, eftir eigin höfði á
hádegistónleikum í Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag kl. 12. Tónleikarnir
eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum
nótum í Fríkirkjunni.
Eurovision í öðru ljósi
Eins og er nefn-
ist sýning sem
Steingrímur Gauti
opnar í SÍM-
salnum, Hafnar-
stræti 16, í dag kl.
17. Um er að ræða
fimmtu einkasýn-
ingu Steingríms,
en hann hefur ver-
ið virkur í sýningahaldi síðan hann
útskrifaðist úr Listaháskólanum
2015. Sýningin stendur til 21. apríl og
er opin á skrifstofutíma SÍM, virka
daga kl. 10-16.
Fimmta einkasýning
Steingríms Gauta
To Make Art Happen nefnist sýning
sem opnuð verður í Safe House 1 í
London á morgun. Þar sýna verk sín
þau Darri Lorenzen, Sara Björns-
dóttir, Þóroddur Bjarnason, Snorri
Ásmundsson, Libia Castro & Ólafur
Ólafsson, David Cotterrell, Sæmund-
ur Þór Helgason, Frederique Pisuisse,
Kevin Atherton og Hatty Lee. Á opn-
uninni fremja Þóroddur,
Snorri og Atherton
gjörninga. Lista-
menn taka þátt í
listamannaspjalli
þrisvar á sýning-
artímanum, sem
lýkur 15. apríl.
Hópur Íslendinga
sýnir í London
Á föstudag Hægur vindur og víða léttskýjað, en suðvestan 5-10
og dálítil él norðvestantil. Hiti að 5 stigum að deginum sunnan- og
vestanlands, annars frost um allt land.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða norðan- og norðaustanátt, allhvasst
suðaustantil. Él á Norðaustur- og Austurlandi, en víða bjartviðri í
öðrum landshlutum. Frost 0-7 stig víða, en hiti að 5 stigum syðra.
VEÐUR
„Við nálgumst þetta verk-
efni með það fyrir augum
að taka þrjú stig en við
verðum að mæta 100% í
leikinn. Þetta er alls ekki
gefið og við vitum af því að
Ísland tapaði hér árið 2007.
Stigin sem eru í boði eru
mikilvæg og við munum
spila okkar leik,“ segir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
um leik Slóveníu og Íslands
í undankeppni HM kvenna í
fótbolta. »4
Mikilvæg stig í
boði í Slóveníu
„Það sem ég vil fá út úr mótinu er
meðal annars að sjá hvernig við
stöndum að vígi um þessar mundir
með þetta unga lið í samanburði við
nokkur af sterkustu landsliðum Evr-
ópu,“ segir Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik karla, en í dag stýrir
Guðmundur íslenska landsliðinu í
fyrsta sinn í sex ár þegar fjögurra
þjóða alþjóðlegt mót hefst í Sotra
Arena í nágrenni Björg-
vinjar í Noregi. »1
Vil sjá hvernig við
stöndum að vígi
Í fjölmiðlum vestan hafs er mál manna
að sjaldan ef nokkurn tíma hafi snjöll-
ustu kylfingar heims mætt jafn vel
upplagðir til leiks og á Masters-mótið í
þetta skiptið. Mótið hefst í dag á hin-
um stórglæsilega Augusta National
venju samkvæmt. Myndavélahljóðin
verða með allra mesta móti nú þar
sem Tiger Woods er kominn á fætur
eftir fjórar bakaðgerðir. »4
Myndavélahljóðin verða
með mesta móti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ása Hulda Oddsdóttir, viðskipta-
fræðingur á lánadeild Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og keppandi í
fitness, lenti í kröppum dansi daginn
sem hún vann til silfurverðlauna á
Íslandsmótinu í módelfitness í +168
cm flokki í síðustu viku.
„Ég vaknaði þarna klukkan hálf-
fimm um morguninn og brunaði
beint í förðun – það er svona stíft
prógramm að gera sig tilbúna á
keppnisdegi. Ég sat í förðun afar ró-
leg, en svo þegar ég beygi mig fram
þá hryn ég bara niður úr förðunar-
stólnum og beint á andlitið og fékk í
kjölfarið gat á höfuðið. Þetta var
klukkan 6 um morguninn og við vor-
um búin með svona helming af förð-
uninni,“ segir Ása, en sauma þurfti
sjö spor á enni hennar fáeinum
klukkustundum fyrir keppni. Unn-
usti hennar, Hörður Þór Jóhanns-
son, var henni innan handar og fóru
þau í kjölfarið saman á slysadeild
Landspítalans.
„Ég sendi skilaboð á unnusta
minn og lét hann vita að ég hefði
dottið og fengið gat á höfuðið. En
vegna þess að ég var á bílnum þurfti
hann að taka leigubíl til mín. Síðan
brunuðum við beint á slysó,“ segir
hún.
Frá slysó í brúnkusprautun
Þegar búið var að sauma Ásu á
spítalanum var haldið aftur í Há-
skólabíó þar sem keppnin var haldin.
„Ég fór beint í brúnkusprautun.
Svo var hún Bára svo yndisleg að
koma upp í Háskólabíó og klára
förðunina,“ segir Ása, en Bára Jóns-
dóttir sá um förðunina á Ásu á
keppnisdaginn örlagaríka. Ása segir
höfuðmeiðslin hafa sett strik í reikn-
inginn, en hún er engu að síður
ánægð með árangurinn. „Ég var al-
veg ringluð eftir þetta fyrst. Þannig
að ég naut mín ekki alveg 100% um
morguninn þegar ég fór á sviðið –
bara nokkrum klukkutímum eftir
þetta. En þetta gekk alveg og ég
endaði í öðru sæti.“
Aðspurð segir Ása allan undirbún-
ing fyrir módelfitness-keppni mjög
strangan. Hún er í fullri vinnu hjá
LSR og þarf því að skipuleggja æf-
ingar sínar mjög vel. „Það getur al-
veg verið erfitt að púsla þessu öllu
saman. Það fer mikill tími í fitnessið.
Maður þarf að skipuleggja sig rosa
mikið, en þetta er búið að ganga
mjög vel og það er mikill stuðningur
frá vinnunni.“
Niðurskurður í þrjá mánuði
Þegar 12 vikur eru í mót hefst nið-
urskurðurinn hjá Ásu. „Þá eru æf-
ingar tvisvar á dag. Á morgunæfing-
unni er brennsla og síðan er lyft
seinni partinn.“ Spurð út í matar-
æðið segir hún það mestmegnis
byggjast á próteini.
„Þetta er mest prótein, aðeins
minna af kolvetni og minnst af fitu
sem maður er að borða. Svo síðasta
sólarhringinn þá minnkar maður
vatnið því maður er í vatnslosun og
byrjar að hlaða kolvetnum,“ segir
Ása sem fékk sér hamborgara og
kók daginn fyrir keppni. Hún gaf sér
lítinn tíma til að fagna silfrinu og
undirbýr sig nú af fullum krafti fyrir
keppni í Ósló nk. laugardag.
Sótti silfur með sjö spor
Fór á slysó eftir
slæmt fall stuttu
fyrir keppni
Ljósmynd/Mummi Lú
Annað sæti Ása hlaut annað sæti í 168 cm flokki á Íslandsmeistaramótinu í
módelfitness í síðustu viku. Hún mun keppa aftur á laugardaginn í Ósló.
Íslandsmótið í fitness fer alltaf
fram ár hvert um páska. Tvö
innanlandsmót í fitness eru á
árinu 2018 og er það seinna bik-
armótið í fitness sem fer fram
seint að hausti. Meðal keppnis-
flokka á Íslandsmótinu í síðustu
viku er fitness karla, sportfit-
ness og vaxtarrækt. Fitness
kvenna, ólympíufitness, well-
ness og módelfitness.
Fjölmargir keppnisflokkar eru
í fitness og skiptast þeir m.a.
niður eftir aldri og hæð. Til
dæmis er keppt í unglingaflokk-
um, fitness kvenna 35 ára og
eldri og fitness karla 40 ára og
eldri svo dæmi séu tekin. Þá
skiptist módelfitness í undir og
yfir 168 cm á hæð og keppti Ása
og hlaut verðlaun í yfir 168 cm.
Íslandsmótið
í fitness 2018
FJÖLBREYTTIR FLOKKAR