Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Q7 e-tron
Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra
ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við.
5
ár
a
áb
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
íl
u
m
H
E
K
LU
að
u
p
p
fy
ll
tu
m
ák
væ
ð
u
m
áb
yr
g
ð
ar
sk
il
m
ál
a.
Þ
á
er
að
fi
n
n
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.i
s/
ab
yr
g
d
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is
10.420.000 kr.Verð frá
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Teknisk Ukeblad (TU) í Noregi
greindi frá því 15. júní að nota ætti
þyrlur sem enginn vildi fljúga með í
Noregi til björgunarstarfa á Íslandi.
Um er að ræða tvær Airbus H225
Super Puma-þyrlur sem verða af-
hentar Landhelgisgæslunni (LHG) í
lok ársins eða byrjun næsta árs.
TU hefur fjallað talsvert mikið
um H225 Super Puma eftir að ein
slík hrapaði við Turøy í Noregi 29.
apríl 2016. Með henni fórust 13
manns. Aðal spaðabúnaðurinn losn-
aði af þyrlunni á flugi og þeyttist
áfram á meðan hinn hluti þyrlunnar
féll til jarðar. Allar þyrlur af þessari
gerð voru kyrrsettar eftir slysið.
Norski olíu- og gasiðnaðurinn
undan ströndum (e. offshore) hætti
að nota þessa tilteknu þyrlutegund.
Svipaða sögu er að segja af breska
olíuiðnaðinum undan ströndum og
fleirum. Morgunblaðið hefur heim-
ildir fyrir því að olíuboranafélag
banni starfsmönnum sínum að
fljúga með SuperPuma. Komi slík
þyrla á borpall eða borskip til að
sækja starfsmenn neita þeir að fara
um borð og bíða á yfirvinnukaupi
eftir þyrlu sem viðurkennd er af fé-
laginu.
Flugbanninu var aflétt
Flugmálayfirvöld í Noregi og
Stóra-Bretlandi afléttu flugbanni á
H225/AS332L2 Super Puma í júlí í
fyrra. Bannið hafði þá staðið í 14
mánuði. Að sögn TU telur norski
olíuiðnaðurinn ekki tímabært að
taka þyrlurnar í notkun fyrr en
norsk rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa (SHT) hefur lokið rannsókn á
Turøy-slysinu og frumorsök þess er
fundin.
Talið er að slysið við Turøy og
fleiri slys Super Puma-þyrlna megi
rekja til bilunar í gírkassa. TU nefn-
ir í því sambandi slys sem varð úti
fyrir ströndum Skotlands sjö árum
fyrir Turøy-slysið og að tvær
EC225-þyrlur hafi nauðlent á Norð-
ursjó með bilaða gírkassa.
Leigusalinn bauð yngri þyrlur
Morgunblaðið sendi LHG fyrir-
spurn vegna málsins og fékk svar
frá Ásgeiri Erlendssyni upplýsinga-
fulltrúa. Þar kemur m.a. fram að í
kjölfar slyssins í Noregi hafi fram-
leiðandi þyrlanna, Airbus, ráðist í
umfangsmiklar endurbætur á þeim.
Auk þess hafi viðhaldskröfur tengd-
ar gírkassanum verið hertar veru-
lega. Þyrlurnar uppfylli strangar
kröfur sem gerðar eru af hálfu
Flugöryggisstofnunar Evrópu
(EASA) og Flugmálastjórnar
Bandaríkjanna. Báðar þessar stofn-
anir hafi staðfest öryggi vélanna.
„Landhelgisgæsla Íslands hefur
því enga ástæðu til annars en að
trúa því að þessar vélar séu í hópi
þeirra öruggustu í heiminum í dag.
Það leikur enginn vafi á að Airbus
H225 er ein fullkomnasta leitar- og
björgunarþyrla sem völ er á í heim-
inum en alls eru 270 slíkar þyrlur í
notkun í 30 löndum. Þegar vélarnar
verða teknar í notkun hjá Landhelg-
isgæslunni verður stigið stórt og
mikilvægt skref til framtíðar sem er
bæði stofnuninni og þjóðinni allri til
heilla,“ segir í svari LHG.
LHG hefur til umráða þrjár
Super Puma-þyrlur af gerðinni
AS332L1. LHG á TF-LIF og leigir
TF-GNA og TF-SYN af Knut Axel
Ugland Holding AS. Leiguþyrlurn-
ar voru smíðaðar 1992 og 2002.
Leigusalinn bauð LHG að skipta
gömlu leiguþyrlunum út fyrir nýrri
Airbus H225-þyrlur frá 2010. Skrif-
að var undir samning þess efnis í
byrjun mánaðarins. Leiguverð og
leigutími breytist ekki, þrátt fyrir
nýrri þyrlur. „Með nýju þyrlunum
nær Landhelgisgæslan að færa sig
að mestu leyti til nútímarekstrar,
bæði í viðhaldi og í flugi, sér í lagi
hvað varðar nýjar reglur um hæfni-
bundna leiðsögu (Performance
Based Navigation), blindflug og
samhæfingu,“ segir í svari LHG.
Þyrlukaup boðin út
Áform eru um að kaupa þrjár nýj-
ar þyrlur fyrir LHG. Leigusamning-
urinn breytir engu um þau áform.
Unnið er að undirbúningi útboðs á
nýju þyrlunum og er gert ráð fyrir
að það hefjist í byrjun næsta árs.
Áætlað er að LHG fái nýjar þyrlur
afhentar á árunum 2021-2023.
Super Puma umdeildar í Noregi
Olíuiðnaðurinn sneri baki við þyrlum sömu gerðar og LHG notar eftir slys Miklar endurbætur
gerðar á þyrlunum eftir slysið LHG fær yngri leiguþyrlur í stað tveggja eldri án þess að leigan hækki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Super Puma Von er á tveimur yngri leiguþyrlum í flota LHG. Gerðar voru endurbætur á gírkassa eftir slys.