Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Svavar Pétur Eysteinssoner löngu orðinn þekkturfyrir lög sín og texta, enhann hefur gefið út tónlist
með hljómsveitunum Skakkaman-
age og Prins Póló. Í Skakkaman-
age hefur gjarn-
an mátt heyra
ljóðrænni texta
og angurværari
melódíur, en í
Prins Póló hefur
meira verið um
húllumhæ sem
óneitanlega hefur kætt landsmenn.
Á Þriðja kryddinu má samt eig-
inlega segja að þessu tvennu sé
blandað saman á nýstárlegan hátt.
Nýja platan er fimmta útgáfa
sveitarinnar ef smáskífan Einn
heima frá árinu 2009 er talin með.
Þetta er samt þriðja hljómplata
Prins Póló í fullri lengd og þaðan
er nafnið komið, ásamt auðvitað
dularfullu bragðinu sem afskap-
lega erfitt er að henda fullkomlega
reiður á. Svavar Pétur semur lög
og texta og spilar á allt, en nýtur
bakraddasöngs Benna Hemm
Hemm og Berglindar Häsler hvors
í sínu laginu, ásamt því sem Axel
Flex Árnason leikur á trommur.
Lögin ellefu á Þriðja kryddinu
eru margslungin. Tæplega helm-
ingur þeirra er hress og í dúr og
rúmlega helmingur sorglegur og í
moll. Öll lögin eru svo annaðhvort
með mjög sorglega texta sem eru
að þykjast vera hressir eða mjög
hressa texta sem eru að þykjast
vera sorglegir. Líklega er það
hlustandinn, og hvernig hann er
stemmdur, sem ræður úrslitum
um hvort platan er að taka sig al-
varlega en þykist ekki gera það
eða hvort hún er bara að gera grín
en þykist samt vera smá alvarleg.
Er þessi plata kannski bara að
plata okkur?
Svavar Pétur hefur, sem texta-
höfundur, náð ótrúlegri tækni í að
koma skilaboðum áleiðis en láta
samt eins og hann sé ekki að segja
nokkurn skapaðan hlut. Margir
textar hans virðast vera bull-
textar, en þegar betur er að gáð
og í þá er rýnt er þar að finna
sjálfsgagnrýni, þjóðfélagsádeilu og
umfjöllun um viðkvæm málefni.
Textar þessarar plötu eru margir
hverjir einhvers konar uppgjör
miðaldra manneskju sem horfir
með eftirsjá á liðna tíð, þegar allt
virtist einfaldara og lífsgæðakapp-
hlaupið var ekki hafið, ábyrgðin
var minni og heilsan betri. Margir
hlustendur Prins Póló ættu alveg
að geta tengt við þessar pælingar,
og Svavar er samur við sig í að
matreiða texta sína þannig að um
varir læðist lítið glott af og til. Öll
lög plötunnar eru með slíka texta.
Þegar kemur að lagasmíðunum
eru þær hins vegar, eins og fyrr
segir, mismunandi og eins og tví-
skipting eigi sér stað. Léttu og
hressu lögin eru í anda þess sem
Prins Póló hefur verið að gera og
smáskífurnar „Læda slæda“ og
„Líf ertu að grínast“ eru dæmi um
það. Hægu og dramatísku lögin
minna mun meira á Skakkaman-
age, eins og til dæmis „Abbadís“
og „Sandalar“, sem eru að mínu
mati mun áræðnari og áhugaverð-
ari lög. Það skal reyndar tekið
fram að ég er gamall Skakkaman-
age-aðdáandi og því gæti ég verið
að heyra eitthvað sem byggist á
þeirri hlustun og enginn annar
nennir að vera að hugsa um. Það
er samt allt í lagi, og auðvitað er
ekkert hægt að segja hvaða lög
eru skemmtilegri en einhver önnur
lög. Mín uppáhaldslög á plötum
eru einmitt oft ekki fyrstu smá-
skífurnar, heldur vel geymdu lögin
sem grípa mann eftir margar
hlustanir.
Í heildina er þessi plata undar-
leg blanda af keleríis-tónlist ní-
unda áratugarins (það gera
trommuheilarnir) og epísku
þungarokki í anda Kiss. Svo er
smá sletta af Adda í Sólstöfum í
bakröddunum víðsvegar á plötunni
og loks er hellt vel yfir þetta allt
saman úr kaldhæðnissósuflöskunni
sem Svavar virðist alltaf eiga nóg
í. Útkoman er eitthvað sem maður
heldur að maður skilji, en skilur
samt ekki, því maður veit ekki
hverju maður á að trúa. Að því
sögðu eru sum lög plötunnar bestu
lög sem maður hefur heyrt, en
önnur aðeins minna skemmtileg.
Öll eru þau samt frábærlega sam-
in, flutt, upptekin og hljómurinn
er stórfenglegur. Svavar Pétur er
svo auðvitað snillingur, og það er
einmitt þess vegna sem ég skil
stundum ekkert í honum. Ég elska
það.
Ertu að grínast?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Plat „Líklega er það hlustandinn, og hvernig hann er stemmdur, sem ræður úrslitum um hvort platan er að taka sig alvarlega en þykist ekki gera það eða
hvort hún er bara að gera grín en þykist samt vera smá alvarleg. Er þessi plata kannski bara að plata okkur?“ segir í rýni um nýjustu plötu Prins Póló.
Hljómplata/Geisladiskur
Prins Póló – Þriðja kryddiðbbbbn
Nýjasta verk Prins Póló heitir Þriðja
kryddið og er þriðja hljómplatan í fullri
lengd. Þar má finna ellefu lög og texta
eftir Svavar Pétur Eysteinsson.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Grínleikarinn
Will Ferrell mun
leika í kvikmynd
sem fjallar um
Eurovision-
söngkeppnina.
Samkvæmt frétt
The Guardian
mun hann einnig
skrifa myndina
ásamt Andrew
Steele sem hann hefur áður unnið
handritin að Casa de mi Padre og A
Deadly Adoption með.
Sást til leikarans á Eurovision í
Lissabon í maí, en hann segist vera
mikill aðdáandi keppninnar síðan
sænsk eiginkona hans kynnti honum
hana árið 1999. Eurovision hefur
notið sívaxandi vinsælda síðan hún
hófst árið 1956 og einar 186 milljónir
manna horfðu á útsendingu hennar í
maí sl.
Næst mun Ferrell sjást á hvíta
tjaldinu í hutverki Sherlocks í grín-
myndinni Holmes and Watson. John
C. Reilly leikur Watson, Ralph Fien-
nes illmennið Moriarty og Hugh
Laurie er bróðir hans, Mycroft.
Ferrell í
Eurovision
Will Ferrell
Samkvæmt nýrri breskri rannsókn
sem frá segir á BBC verða 43% tón-
listarhátíðargesta undir 40 ára fyrir
kynferðislegri áreitni eða ofbeldi.
22% allra gesta upplifa það og þar af
30% allra kvenna. Í 70% tilvika er
gerandinn ókunnugur fórnar-
lambinu.
YouGov framkvæmdi rannsókn-
ina að beiðni Press Association og í
ljós kom að konur tilkynna einungis
1% slíkra uppákoma til hátíðar-
starfsfólks, en karlar 19%.
Ýmis félagasamtök sem berjast
gegn kynferðisofbeldi hafa tjáð sig
um sláandi niðurstöður rannsókn-
arinnar. Flestum komu þær ekki á
óvart og augljóst þykir að skipu-
leggjendur hátíðanna verði að koma
á öruggari gæslu og hertu eftirliti.
Grípa þurfi í taumana strax svo slík
hegðun verði ekki eðlilegur hluti há-
tíðarhaldanna.
Kynferðis-
ofbeldi á tón-
listarhátíðum
AFP