Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 49
Árið 1995 komu saman nokkrir félagar sem útskrifuðust úr Verzlunarskóla Íslands árin 1972/3 í þeim tilgangi að hittast reglulega og var skákborðið af- sökunin og ástæðan. Uppistaðan var gamla skáksveitin en nokkrir gæðingar bættust við og þar á meðal Lárus. Þessi félagsskapur hefur haldið hópinn allar götur síðan og vináttan eflst. Auk tafls- ins er tekin létt umræða um íþróttir og málefni líðandi stund- ar. Þá er tekinn golfhringur að sumarlagi ef veður leyfir. Hittast menn heima hver hjá öðrum og hafa notið góðra veit- inga á meðan skákin stendur yfir. Það er allt of snemmt, rétt í þann mund sem starfsævi er að ljúka, að þurfa að sjá á bak góðum fé- laga. Hann er örugglega búinn að tryggja sér „besta sætið“ þarna uppi og fylgist með heimsmeist- arakeppninni í fótbolta en hann var afreksmaður á þessu sviði á sínum yngri árum. Við vottum Hildigunni skólasystur okkar og börnunum Lilju Karítas, Dóru Maríu, Sigurði Agli og þeirra fjöl- skyldum okkar innilegustu sam- úð. Blessuð sé minning hans. Árni Þór, Einar, Guðjón Guðm., Guðjón Steingr., Gunnar Hall, Gunnar Helgi, Hans, Jafet, Jóhann og Kjartan Már. Að kvöldi 5. júní sl. bárust þær fréttir að okkar góði félagi Lárus Ögmundsson væri fallinn frá. Golfhópurinn Fálkarnir er fé- lagsskapur sem stofnaður var fyrir tíu árum og er að uppistöðu til skipaður gömlum keppnis- mönnum knattspyrnufélagsins Vals í knattspyrnu og handknatt- leik og einstaka spámönnum úr öðrum greinum. Lárus var eins og annarsstaðar, þar sem Vals- menn voru á ferð, boðinn og bú- inn til að sinna því félagsmála- stússi sem fylgir svona hóp. Golf er vinsælt áhugamál hjá keppnismönnum þegar ferlinum lýkur. Þar fá menn ágæta útrás fyrir hreyfiþörf sína og keppnis- skap. En þetta er líka krefjandi grein sem útheimtir góða tækni. Oft eru menn að rótast í sand- gryfjum eða kargaþýfi og auðvit- að allur gangur á því hvernig menn bregðast við lélegum högg- um og þau eru mörg. Hvað Lárus varðaði þá skipti hann aldrei skapi hvað sem á gekk. Hinn félagslegi og andlegi grundvöllur Valsmanna, að láta kappið ekki bera fegurðina ofur- liði, var leiðarljós hans. Hann hafði líka komið sér upp leikstíl sem var býsna árangursríkur – á okkar mælikvarða – persónuleiki hans, átakalaus, öruggur og ábyrgur. Fálkarnir hafa alveg frá byrj- un átt í sínum röðum hirðskáld eitt sem við ýmis tækifæri hefur getað kastað fram vísuparti, stöku og jafnvel heilum ljóða- bálki. Lárus var á svipaðri bylgjulengd; hann safnaði saman kveðskap ýmsum, fornum og nýj- um, og flutti við hátíðleg tæki- færi. Þetta áhugamál hafði hann frá föður sínum Ögmundi Guð- mundssyni og kenndi ýmissa grasa í safni þeirra feðga. Fyrir þremur árum kenndi Lárus sér þess meins sem hann glímdi við uppfrá því. Í hönd fór erfið og tvísýn barátta. Fyrir leiktímabilið 2016 var um skeið nokkur óvissa um það hvort hann yrði með. En við vissum líka hversu dýrmætar þær stundir voru honum að komast burt frá „reykmettuðum bakherbergjum stjórnsýslunnar,“ eins og hann orðaði það einhverju sinni, og ganga með vinum sínum alla þessa kílómetra innan um mó- fuglana í Grafarholtinu eða nær strönd- inni þar sem Korpa rennur til sjávar. Hann sneri aftur þetta sumar og í fyrra líka, varð efstur í mótaröðinni 2016 og með efstu mönnum í fyrra. Þessi misseri upplýsti hann okkur jafnharðan um gang baráttu sinnar. Við vor- um vongóðir í fyrstu en haustið 2017 var eins og drægi ský fyrir sólu og vonin dvínaði. Hann mætti til undirbúningsfundar í vor í hinu nýstandsetta Fjósi við Valsheimilið og það var í síðasta sinn sem flestir okkar hittu hann. Á kveðjustund viljum við fé- lagar hans í Fálkunum færa eig- inkonu hans Hildigunni Sigurð- ardóttur, börnum og fjölskyldu allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Helgi Ólafsson og Jón H. Karlsson. Að taka þátt í foreldrastarfi er gefandi á margan hátt. Ekki að- eins að vera til staðar fyrir börnin og fylgjast með árangri þeirra og þroska, heldur einnig að kynnast þeim fjölmörgu foreldrum sem eru að hjálpa til að ná settu marki. Eins og gengur eru sumir foreldrar eftirminnilegri en aðrir. Í hópi þeirra eftirminnilegri voru þau Lárus og Hildigunnur. Ég þekkti aðeins til Lalla áður en ég kynntist honum fyrir al- vöru, en Sverrir bróðir hans hafði þjálfað mig þegar ég var ungling- ur. Það var sannarlega skemmti- legt að kynnast Sverri sem býr yfir miklum mannkostum. Ég kynntist reyndar einnig lítillega Palla bróður þeirra og voru þau kynni jafnframt ánægjuleg. Ég hafði því fyrirfram töluverðar væntingar til Lalla. Það er skemmst frá því að segja að Lalli stóð undir öllum þeim vænting- um og vel það. Kímnigáfan á sín- um stað, mikið jafnaðargeð og lagni við að vinna fólk á sitt band á sinn hógværa og yfirvegaða hátt. Lalli hafði einstaklega góða nærveru og góð áhrif hvar sem hann kom. Hann átti auðvelt með að laða fólk að sér og lagði gott til allra mála. Þegar ég hafði samband við Lalla var barnastarf nokkuð laus- ara í reipunum en nú er. Ég hafði áhuga á því að safna saman barnahópi á leikskólaaldri og kenna þeim undirstöðuatriði i fótbolta sem ég taldi mig af ein- hverjum ástæðum vel fallinn til að gera. Lalli tók vel í þetta og bæði Siggi og Dóra María mættu til leiks. Það var fljótlega ljóst að það var lítið hægt að bæta leik Dóru sem sýndi strax ótvíræða hæfileika, en það var hægt að leiðbeina Sigga um ýmislegt og er jafnvel enn. Ég sendi Lalla kveðju þegar Siggi skoraði bæði mörkin í bik- arúrslitaleik um árið. Annað markið var sérstaklega glæsilegt og töluðu blöðin um svokallaðan Berbatov-snúning. Lalli svaraði kveðjunni á sinn skemmtilega hátt og sagist ekki skilja hvað verið væri að blanda Berbatov í þetta. Hann myndi ekki betur en ég hefði margsinnis sýnt þennan snúning á námskeið- inu forðum. Seinna tókum við Lalli þátt í foreldrastarfi hjá Víkingi þar sem störfuðu frábærir þjálfarar í vel skipulögðu barnastarfi. Þó að við hefðum yfir litlu að kvarta fannst okkur óneitanlega Vals- búningurinn fara Sigga betur. Siggi fetaði þar í fótspor Dóru Maríu sem hefur verið ein allra besta knattspyrnukona landsins undanfarin ár bæði með Val og landsliðinu. Þó svo að Lalli hafi glímt við erfiðan sjúkdóm um nokkurt skeið var alltaf til staðar von um að honum tækist að hafa betur. Hann bar sig vel og strangar meðferðir höfðu ekki mikil áhrif á ytra útlit sem jók á bjartsýnina. Því miður var það ekki raunin og að honum er mikil missir. Við Olla og fjölskylda sendum Hildigunni og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Helgi Sigurðsson.  Fleiri minningargreinar um Lárus Ögmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 ✝ Kristín Magn-úsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1. desember 1932. Hún andaðist 9. júní 2018 á hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð í Reykja- vík. Kristín ólst upp í Skerjafirði og bjó þar til ársins 1954. Foreldrar hennar voru Magnús Guðmundsson, sjómaður og bóndi, f. 20.9. 1870 í Lambadal í Dýrafirði, en bjó lengst af á Dvergasteini í Álfta- firði við Súðavík, d. 27.5. 1960, og Ingveldur Jóhannsdóttir, f. 4.10. 1891 á Efri-Arnarstöðum í Helgafellssveit, húsmóðir í Reykjavik, d. 3.10. 1986. Alsystir Kristínar er Fjóla Kristrún Magnúsdóttir, f. 1934. Systur Kristínar sammæðra voru þær Guðfinna Guðnadótt- ir, f. 1920, d. 2013, og Theódóra riksdóttir, f. 15.6. 2007, Alex- ander Rúnar Andrason, f. 1.9. 2010, og Ísabella Lena Andra- dóttir, f. 19.10. 2015. 2) Linda Lou Arthur, f. 28.10. 1956, maki Stefán Stefánsson, f. 27.8. 1953. Börn þeirra eru a) Kristinn Arnar, f. 10.2. 1974, d. 8.3. 2016. b) Telma Lind, f. 28.3. 1977. Barnabörn Lindu og Stefáns eru Nói Stefán Þorsteinsson, f. 16.9. 2014, og Sigurður Arnar Kristinsson, f. 28.2. 2016. Seinni maður Kristínar var Ingólfur Eggertsson, f. í Reykjavík 16.11. 1929, d. 9.5. 2001. Foreldrar hans voru Egg- ert Bjarnason, vélstjóri, f. 6. ágúst 1887 að Björgum á Skagaströnd í Austur-Húna- vatnssýslu, d. 2. október 1966, og kona hans Ólafía Þóra Jóns- dóttir, f. 21. október 1892 í Reykjavík, d. 9. október 1955. Sonur Kristínar og Ingólfs er Eggert Magnús, f. 5.12. 1970, maki Margrét Þuríður Sverr- isdóttir, f. 27.12. 1973. Börn Eggerts eru Hildur Högna, f. 25.9. 2002, og Sunneva Sól, f. 9.10. 2004. Útför Kristínar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 21. júní 2018, klukkan 15. Guðnadóttir, f. 1921, f. 2010. Sam- feðra voru systkini hennar Rögnvald- ína Hjaltlína Krist- ín Magnúsdóttir, f. 1900, f. 1924, Guð- munda Guðfinna Magnúsdóttir, f. 1902, f. 1974, Jón Valgeir Magnús- son, f. 1905, d. 1951, og Auðunn Magnússon, f. 1908, d. 1998. Kristín var tvígift. Fyrri maður hennar var Russell Mac Arthur, f. 1922, d. 1988. Þau skildu. Dætur þeirra eru: 1) Inga Barbara Arthur, f. 14.8. 1955, maki Gunnar Rúnar Odd- geirsson, f. 4.11. 1954. Börn þeirra eru: a) Diðrik Örn, f. 30.7. 1978. b) Andri Rúnar, f. 7.7. 1987. c) Viktoría Lind, f. 9.8. 1996. Barnabörn Ingu og Gunnars eru Ísak Leó Diðriks- son, f. 17.5. 2001, Emilía Dið- Kynni okkar Kristínar, eða Stínu eins og hún var yfirleitt kölluð, hófust 1972 þegar ég kynntist Lindu, dóttur hennar. Ég var ekki nema nítján ára en hún tók mér opnum örmum og mér leið strax eins og ég væri hluti af fjölskyldunni. Eggert, sonur þeirra, var þá tveggja ára og hann átti síðar eft- ir að verða góður vinur barna okkar Lindu, Kristins Arnars og Telmu Lindar. Stína og Ingólfur Eggertsson eiginmaður hennar bjuggu í Breiðholti eins og við og sam- gangur var mikill. Þeim þótti vænt um landið og náttúruna og nýttu hvert tækifæri til að ferðast, keyrðu þá um landið á Lada Sport-jeppanum sínum með tjaldvagn eða hjólhýsi í eft- irdragi. Börn okkar ferðuðust oft með þeim og nutu stundanna með ömmu og afa. Veiði var ástríða hjá Stínu og Ingólfi og sjaldan komu þau fisk- laus heim. Eggert og Kristinn Arnar lærðu ungir að bera sig að við veiðina, veiðiáhugi þeirra kviknaði í þessum ferðum og fylgdi þeim til fullorðinsára. Ein veiðiferðin var sérstaklega eftirminnileg. Vor eitt í Norðurá í Munaðarnesi óðu bæði Stína og Ingólfur yfir ána, full eftirvænt- ingar fyrir komandi veiði. Stína klifraði upp í hlíð og skyggndi ána á meðan Ingólfur renndi í. Skyndilega beit fiskur á og hann var stór. Stína varð spennt en gáði ekki að sér, féll við og fót- brotnaði. Þá voru góð ráð dýr, Ingólfur stóð úti í ánni með stöngina á meðan Stína lá kvalin á bakkanum. Hringt var á sjúkra- bíl og þegar sjúkraflutninga- mennirnir komu óðu þeir yfir ána til hennar. Þeir treystu sér hins vegar ekki til að vaða ána til baka með Stínu í börunum svo hringt var á þyrlu sem kom og flutti hana yfir bakkann að sjúkrabíln- um. Í öllum hamaganginum tókst Ingólfi einhvern veginn að landa laxinum. Fiskurinn var ekki vigt- aður uppi í veiðihúsi að þessu sinni en seinna frétti hann að þetta hefði verið stærsti flugu- veiðifiskur sumarsins og að hann ætti inni verðlaun. Laxinn tók víst rauðan Francis. Stína var alltaf andlega sterk og sá ýmislegt sem okkur hinum var hulið, hún las í bolla, spáði í spil og var berdreymin. Hún var næm á lífið og fólkið í kring. Stína var vel liðin af öllum sem kynnt- ust henni. Hún vann lengi hjá búningadeild Sjónvarpsins og í mötuneytinu hjá Reykjavíkur- höfn og var vinmörg og vinsæl enda einstök kona. Stína hafði yndi af ferðalögum og að heimsækja nýja staði og fórum við í margar eftirminnileg- ar ferðir saman. Stendur þar upp úr ferð okkar til Miami til að vera við útskrift Telmu Lindar. Fór- um við þá líka í siglingu til Bahamaeyja og þar naut hún sín vel, á siglingu undir hlýrri sólinni. Ingólfur lést árið 2001 eftir erfið veikindi. Heilsu hans fór að hraka um svipað og leyti og Stína hætti að vinna. Hún saknaði hans sárt, þau höfðu hlakkað til að ferðast saman nú þegar meiri tími gæfist til þess. Stína bjó síð- ustu árin á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, þar sem hún bjó sér hlýlegt heimili. Þar leið henni vel. Að lokum vil ég kveðja þig með þessum orðum, elsku Stína mín. Margs er að minnast og mikils að sakna. Stefán Stefánsson. Elsku amma mín, nú ert þú farin frá okkur. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum og þakka þér fyrir allan þann tíma sem við höfum átt saman. Það sem fær mig til þess að brosa mest er tíminn sem þú og Nói Stefán, sonur minn, áttuð saman. Þegar ég sagði honum að langamma væri farin þá sagði þessi elska: „Mamma, er langamma farin til tunglsins til Adda frænda, ég elska Adda og langömmu svo mikið, ég er leið- ur.“ Ég veit að Addi bróðir er að passa vel upp á þig núna enda mikill ömmustrákur en eitt vil ég biðja ykkur um. Verndið Nóa Stefán í hans erfiðu veikindum, sendið honum ljós og orku. Verið hans verndarenglar. Bless, elsku amma. Verndarengill Lítill engill á öxlinni Lítur yfir Og gætir þín Engin hætta Bara trúa Trúðu á mig Ég vaki Vertu sterk Haltu áfram Ekki gefast upp Þú kemur aftur Sterkari en áður (Rannveig Iðunn) Telma Lind Stefánsdóttir. Elsku amma Stína, það er sár tilfinning sem fylgir því að hugsa til þess að við munum ekki fá að sjá þig aftur. Er ég heimsótti ömmu nú í byrjun júní og heilsa hennar hafði versnað hratt á stuttum tíma var hún samt að spyrjast fyrir um hvernig lang- ömmubörnin hennar og móðir þeirra hefðu það. Það að hún var að spyrjast fyrir um fjölskyldu mína á sínum erfiðustu stundum sýnir hversu hugulsöm mann- eskja hún amma Stína var. Minnisstæð eru einnig nota- legu stundirnar sem við áttum saman er ég var lítill strákur að gista hjá ömmu. Amma var ávallt búin að útbúa uppáhaldið mitt sem var kakósúpan góða með bruðlum. Einnig sátum við oft klukkustundum saman við eld- húsborðið og amma lagði hvern kapalinn eftir annan og ég perlaði hvert perlulistaverkið eftir annað með hjálp hennar. Það var alltaf ævintýri að fara með ömmu Stínu í sumarbústað- inn þegar ég var lítil og þar leið henni vel. Margar veiðiferðirnar fórum við í og nutum þess að veiða í kyrrðinni enda var veiði í miklu dálæti hjá henni ömmu. Svo var spilað fram á kvöld er heim var komið í bústaðinn. Amma naut sín mjög úti í nátt- úrunni og er ég mjög þakklát fyr- ir stundirnar sem ég átti með henni þar. Munum við alltaf hugsa hlý- lega til hennar ömmu Stínu okkar og munu langömmubörnin henn- ar, sem voru við hlið hennar þeg- ar hún kvaddi þennan heim, fá að vita að þau áttu mjög ástríka og hlýlega langömmu. Erum við systkinin mjög þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman með ömmu Stínu og munu þær minningar lifa áfram í hjörtum okkar. Þeir segja mig látna, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá litlu hjarta berst lítil rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem mun ykkur gleðja. (Höf. óþ.) Andri Rúnar og Viktoría Lind. Kristín Magnúsdóttir Lokað Vegna útfarar LÁRUSAR ÖGMUNDSSONAR verða skrifstofur Ríkisendurskoðunar lokaðar í dag. Ríkisendurskoðandi Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS ANNA ÁSMUNDSDÓTTIR, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 12. júní. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ingibjörg Eyþórsdóttir Sæmundur Sigurðsson Árni Eyþórsson Sigríður Eyþórsdóttir Róbert Karlsson Ásdís Eyþórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, systir, mágkona, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 13. júní. Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 25. júní klukkan 11. Páll Magnússon Tumi Magnússon Ráðhildur Ingadóttir Pétur Magnússon Ásdís Thoroddsen Guttormur Magnússon Brit Sejersted Bødtker Anna Sigurveig Magnúsd. Gylfi Gunnarsson Sólborg Sumarliðadóttir börn og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR BALDVINSDÓTTIR meinatæknir, lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn 11. júní. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 22. júní kukkan 11.30. Sigríður Birna Guðjónsdóttir Björn Þórarinsson Guðborg Auður Guðjónsd. Hermann Kristjánsson Unnur Birna Björnsdóttir Dagný Halla Björnsdóttir Auður Brá Hermannsdóttir Annalísa Hermannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.