Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Illuminate colour
Illuminate colour línan er byggð á lífrænni Acai olíu og hörfræ olíu.
Þessar nærandi olíur eru notaðar til að byggja upp mýkt
og hjálpar við viðgerð á hárinu.
Næringaríka olían er full af omega 3, omega 6 og
öðrum fjölbreyttum vítamínum. Eins og t.d. B1,B2, B3
og Vítamín C+D. Ávinningur þessara efna bjóða
upp á fullkomna blöndu af auknum gljáa og ljóma.
Modus Hár og Snyrtistofa - Smáralind | harvorur.is
REF Stockholm er 12 ára gamalt
Professional haircare merki
REF Stockholm er 100 % Vegan ,
sulfate, Paraben, glúten
og Cruelity free
Sjá nánar á harvorur.is
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Deila fjögurra arabaríkja annars
vegar, Sádi-Arabíu, Barein, Sam-
einuðu arabísku furstadæmanna og
Egyptalands, og Katar hins vegar,
sem staðið hefur í rúmt ár, stefnir
nú í enn furðulegri fléttu. Hyggjast
Sádi-Arabar grafa 60 kílómetra
langan og 200 metra breiðan skurð
um kílómetra frá landamærum sín
við Katar. Með þeirri aðgerð yrði
Katar að eyju, en ríkið stendur á
litlum skaga út frá Sádi-Arabíu.
Arabaríkin fjögur slitu í byrjun
júní í fyrra stjórnmála-, efnahags-
og ferðasamböndum við Katar
vegna meints stuðnings ríkisins við
öfgamenn og fjármögnun á hryðju-
verkahópum. Settu ríkin fjögur
fram lista með 13 kröfum sem Kat-
ar yrði að mæta, s.s. að hætta fjár-
mögnun öfgahópa og minnka tengsl
við Íran, svo aðhægt væri að end-
urvekja milliríkjasambönd.
Katar varð hins vegar ekki við
kröfunum og frekari sáttaumleitan-
ir í Samstarfsráði arabaríkjanna
við Persaflóa (GCC) hafa ekki borið
árangur sem erfiði. Lítur því út fyr-
ir að einangrun Katars verði ekki
einungis bundin við efnahag og
stjórnmál, heldur nú einnig land-
fræðileg.
Katar hefur þó náð að standast
áhlaupið með því að þróa viðskipta-
sambönd við Óman, Tyrkland og
Íran. Þá greindi Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn frá því í vor að bein
efnahagsleg og fjárhagsleg áhrif
deilunnar væru að „fjara út“.
Áform Sáda komu fyrst fram á
sjónarsviðið í apríl síðastliðnum en
hjólin eru nú farin að snúast af
meiri krafti. Stendur útboð fyrir
framkvæmdinni nú yfir, en því lýk-
ur næstkomandi mánudag og hafa
fimm alþjóðleg fyrirtæki sett fram
tilboð í verkið.
Áætlað er að sigurvegari útboðs-
ins verði tilkynntur eftir þrjá mán-
uði og er gert ráð fyrir að gerð
skurðarins taki einungis eitt ár í
framkvæmd. Kostnaður verksins er
áætlaður um 750 milljónir Banda-
ríkjadollara, eða sem um nemur
81,7 milljörðum íslenskra króna.
Lúxusstrendur og herstöð
Fjölmiðillinn Gulf News greinir
frá því að á meginlandshlið skurð-
arins sé áætlað að koma á fót ferða-
mannastöðum með einkaströndum
ásamt því að reisa hafnir. Sömu
sögu er ekki að segja af hinni hlið
skurðarins, en þar hyggjast Sádar
setja upp annars vegar herstöð og
hins vegar losunarsvæði fyrir
kjarnaúrgang, úrgang úr kjarna-
ofnum sem á þó ennþá eftir að
byggja.
Plön Sáda gera Katar að eyríki
Grafa á 60 kílómetra langan skurð rétt við landamæri Katar Liður í enn frekari einangrun Katar,
sem hefur þó staðist áhlaupið Fjölbreytt en skrautleg uppbygging beggja vegna við skurðinn
K ATA R
SÁDI-
ARABÍA
Heimild: Gulf News
Núverandi landa-
mæri Katar og
Sádi-Arabíu
Geislavirkur úrgang-
ur og herstöðvar
Sádi-Arabíu
„Salwa“-sk urð
uri
nn
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Kanadíska þingið hefur samþykkt lög
um lögleiðingu á neyslu kannabis í
landinu. Voru hin svokölluðu kanna-
bislög samþykkt í öldungadeild kan-
adíska þingsins með 52 atkvæðum á
móti 29. Lögin hafa verið rædd lengi
og tekið breytingum samhliða því, en
notkun á kannabis hefur verið lögleg í
læknisfræðilegum tilgangi í Kanada
frá 2001.
Úrúgvæ fyrst til að lögleiða
Kanada er annað landið til þess að
lögleiða kannabis í öðrum en læknis-
fræðilegum tilgangi. Úrúgvæ var
fyrsta landið til þess að leyfa almenna
notkun á kannabis árið 2013 og þá
hafa níu ríki í Bandaríkjunum gert
slíkt hið sama.
Lagasetningin uppfyllir kosninga-
loforð Justin Trudeau, forsætisráð-
herra Kanada, frá 2015. Trudeau
færði rök fyrir því að tæplega aldar-
gömul löggjöf sem refsaði kannabis-
neytendum væri gagnslaus í ljósi þess
að Kanadabúar væru einir mestu
kannabisneytendur á heimsvísu.
Reiknað er með því að lögin taki
gildi í september. Hver einstaklingur
sem hefur náð lögaldri mun þá mega
hafa allt að 30 grömm af kannabis í
fórum sínum. Einnig verður heimilt
að rækta allt að fjórar kannabis-
plöntur á hverju heimili. Ári 2015 var
áætlað að Kanadabúar eyddu að virði
um sex milljarða Kanadadollara í
kaup á kannabis, sem er nánast jafn-
mikið og þeir eyddu í vín, segir í frétt
BBC.
Kanada lögleið-
ir kannabisefni
Annað landið til þess að leyfa neyslu á
efninu Rækta má plöntur á heimilum
AFP
Löglegt Kanadískur kannabisunn-
andi fagnar án vafa nýrri löggjöf.
Ungverska þing-
ið hefur sam-
þykkt lög sem
gera það refsi-
vert að hjálpa
ólöglegum inn-
flytjendum að
sækja um hæli í
landinu. Frá
þessu er sagt á
vefsíðu The
Guardian. Lögin ganga undir nafn-
inu „Stöðvum Soros“ og er þar vís-
að til bandarísk-ungverska auð-
jöfursins George Soros, sem hefur
oft verið skotspónn Viktors Orbán,
forsætisráðherra Ungverjalands.
Orbán hefur sakað Soros um að
standa á bak við innflutning fjölda
manns til Evrópu í því skyni að
grafa undan stöðugleika álfunnar.
Lögunum sé ætlað að koma í veg
fyrir skipulagningu ólöglegs inn-
flutnings til landsins. Talið er að
um 3.555 flóttamenn búi í Ung-
verjalandi, sem telur alls um tíu
milljónir íbúa. 342 hælisleitendur
hafa verið skráðir á fyrstu fjórum
mánuðum ársins og 279 hafa hlotið
samþykki.
UNGVERJALAND
„Stöðvum Soros“-
lög samþykkt
Viktor Orbán
Talið er að um 190 manns hafi farist þegar ferja
sökk á Tobavatni í Indónesíu á mánudag. Sífellt
fleiri ættingjar hafa tilkynnt að ástvina þeirra sé
saknað. Ferjan sem sökk var einungis með leyfi
fyrir 60 manns, tæpan þriðjung þess fjölda sem
áætlaður var um borð. Óttast er að margir hafi
setið fastir inni í ferjunni þegar hún sökk, en
vatnið er afar djúpt. Átján eftirlifendum var
bjargað á fyrstu klukkutímunum eftir slysið.
AFP
Hátt í 200 manns taldir af eftir ferjuslys á Tobavatni