Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 Nú um áramótin hækkaði persónu- afsláttur um 988 krón- ur á mánuði eða 11.856 krónur á ári, það er ráðstöfunar tekjur allra hvort sem er há- eða lágtekjufólk. Auk þess voru tekjumörk hærra skattaþreps hækkuð úr 834.707 krónum á mánuði í 893.713. Séu áhrif þessara breytinga á ráðstöf- unartekjur einstakra hópa skoðuð kemur eftirfarandi í ljós, sjá töflu. (Ráðstöfunartekjur eru fengnar með lækkun tekna annars vegar um 4% vegna lífeyrisiðgjalds og reiknuðum skatti þegar búið er að taka tillit til heimildar frádráttar frá tekjum af nefndu iðgjaldi.) Niðurstaða er sú að ráðstöf- unartekjur á mánuði í lægsta hópnum hækka um 988 krónur eða 11.856 á ári. Í miðhópnum er mánaðarleg hækkun 6.575 og árleg 75.900 og í efsta hópnum 6.425 á mánuði og 77.100 á ári. Þessi útkoma ræðst af lögum um með hvaða hætti eigi breyta eigi, annars vegar persónu- afslætti (með hliðsjón af neyzlu- vísitölu) og hins vegar breytingu á skattþrepi með hliðsjón af launa- hækkunum Þessi hækkanir eru taldar vitni um að ráðist sé á garðinn þar sem hann er lægstur þegar kemur að skattheimtu (lækkun í umræddu tilviki) hins op- inbera. Líta má á þessi mál með ýmsum hætti. Gef- um okkur til dæmis að þjóðin samanstandi af þremur einstaklingum og tekjuskiptingin sé sú sem að framan greinir. Þá kemur ljós að heild- artekjur samfélagsins á mánuði eru 2.850.000 og skattar 905.903. Þessum skatttekjum er svo varið til samfélagslegra verk- efna og sé ekki farið í manngreinarálit við út- deilinguna, þá kæmu op- inber gæði að upphæð 301.991 í hlut hvers. Þannig að í þessu dæmi fær tekjulægsti hópurinn úr sameig- inlegum sjóðum meira en svoköll- uðum ráðstöfunartekjum sínum nem- ur og að mestu frá þeim tekjuhæstu. Ef við gefum okkur að tekjuskipt- ingin sé 20% með 350.000, 60% með 1.000.000 og 20% með 1.500.000 þá yrðu skatttekjur á einstakling og út- deild sameiginleg gæði á einstakling 303.951. Spurningin um sanngirni í skatt- heimtu er og verður alltaf álitamál þar sem sitt sýnist hverjum og allir fræðilegir mælikvarðar torsóttir til leiðsagnar, svo sem skattlagning í ljósi lækkandi jarðarnytja eftir því sem tekjur hækka. Sé litið á ofangreint dæmi þar sem milljón króna einstaklingurinn í nú- verandi kerfi greiðir um 307 þúsund krónur á mánuð og sá með eina og hálfa milljóna um 528 þúsund krónur á mánuði í skatta má spyrja hvort nefndar upphæðir séu ekki yfrið nóg- ar? Það er álitamál og ekkert óyggj- andi svar sem á hönd á er festandi. Í framhaldi ofangreindra vanga- veltna get ég ekki setið á strák mín- um og spurt góða fólkið, sem ber öðr- um fremur hag litla fólks fyrir brjósti og þiggur þar að auki laun sín fyrir, af hverju það sjái ekki til þess að laun þeirra lægst launuðu hækki næstu árin en þeir betur settu fái enga hækkun segjum næstu fimm árin. Við kjarasamninga hefur um langa hríð verið sunginn sá söngur að bæta eigi hlutfallslega laun þeirra verst settu en útkoman oftlega verið snaut- leg og hækkanir til þeirra lægst settu hríslast upp á við til þeirra sem hærri hafa tekjurnar og stundum gott bet- ur. Það er kominn tími til þess að for- ystan í samtökum launþega segi án nokkurra undantekninga að nú skuli semja um laun þeirra sem lægri hafa launin en þeir sem betur eru settir fái ekkert næstu fimm árin. Skurðpunkt- urinn gæti verið um 893.713 mán- aðarlaun, sem eru hæstu laun í lægra skattþrepi, skattaprósenta 36,94% og persónuafsláttur 53.895. þ.e. frí- tekjumark krónur 145.899. Hver yrði hækkunarprósentan upp eftir skal- anum yrði samkomulagsatriði milli launþegasamtakanna og atvinnurek- enda. Vilji forkólfar launþega ekki beita sér fyrir slíku samkomulagi er það vísbending um að þeir ganga er- inda annarra en lægra launuðu um- bjóðenda sinna og ættu að fá reisu- passann. Hættum öllum þykjustuleik, förum úr sandkassanum yfir í raun- veruleika þeirra sem komnir eru af blautu barnsbeini. Já, já og fussum svei Eftir Þorbjörn Guðjónsson Þorbjörn Guðjónsson » Þannig að í þessu dæmi fær tekju- lægsti hópurinn úr sam- eiginlegum sjóðum meira en svokölluðum ráðstöfunartekjum sín- um nemur og að mestu frá þeim tekjuhæstu. Höfundur er cand. oecon. Hópar Ráðst.tekjur Ráðst.tekjur Skattur Skattur Tekjur f. breytingu e. breytingu f. breytingu e. breytingu 350.000 264.789 265.777 71.211 70.233 1.000.000 646.531 653.106 313.369 306.894 1.500.000 904.679 911.104 535.321 528.846 Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? RAFVÖRUR ehf Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Sorpkvarnir í vaska rafvorur.is Tr ú l o f u n a r h r i n g i r G i f t i n ga r h r i n g i r D eman t s s k a r tg r i p i r Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is 14 kt. gull með demant. Verð: 130.384,- 14 kt. gull með demöntum, miðju- steinn 0,50 ct. Verð: 626.121,- 14 kt. gull með demöntum, miðju- steinn 0,30 ct. Verð: 298.757,- 14 kt. hvítagull með demöntum, miðjusteinn 0,30 ct. Verð: 437.577,- 14 kt. rósagull með demöntum. Verð: 337.847,- 14 kt. gull með demöntum. Verð: 298.386,- 14 kt. rauðagull og hvítagull með demöntum. Verð: 354.010,- 14 kt. hvítagull með demöntum, miðjusteinn 0,20 ct. Verð: 315.559,- 14 kt. gull með demöntum. Verð: 251.716,- 14 kt. gull með demöntum Verð: 150.909,- 14 kt. gull með 0,25 ct demant. Verð: 204.266,- 14 kt. gull með demöntum. Verð: 239.181,- Gullsmiðir Sérfræðingar í trúlofunar og giftingarhringum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.