Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mb.is
Landspítalinn hefur ákveðið að
skrifstofum spítalans við Eiríksgötu
5 verði breytt í þá veru að þar verði í
framtíðinni þjónusta við sjúklinga.
„Við viljum búa betur að göngu-
deildarstarfsemi og skapa svigrúm
fyrir ýmis klínísk verkefni sem er
vaxandi þörf fyrir, m.a. brjóstamið-
stöð, erfðaráðgjöf og sameiginlega
innskriftarmiðstöð svo eitthvað sé
nefnt,“ sagði Páll Matthíasson fram-
kvæmdastjóri í forstjórapistli.
Eiríksgata 5 er um 3.400 fermetr-
ar að stærð og fær Landspítalinn því
gott viðbótarrými til að sinna sjúk-
lingum. Húsnæði verður tekið á
leigu fyrir skrifstofur spítalans.
Húsið á sér merka sögu. Það var
byggt af Stórstúku Íslands og tekið í
notkun 1. febrúar 1968. Áður hafði
Stórstúkan verið með starfsemi í
Góðtemplarahúsinu við Templara-
sund. Þetta var einlyft timburhús
sem reist var árið 1887 og rifið 1968.
Þarna eru nú bílastæði alþingis-
manna.
Aðsetur æskulýðsins
Húsið Eiríksgata 5, sem í daglegu
tali var nefnt Templarahöllin, var á
fjórum hæðum, um 1.700 fermetrar
alls. Í kjallaranum var samkomu-
salur sem tók 250 gesti og þar voru
haldin böll og bingó, sem margir
eldri Reykvíkingar muna eflaust eft-
ir. Á fyrstu hæð var göngudeild
Landspítalans og á annarri hæð
voru samkomusalir og skrifstofur
Stórstúkunnar. Á þriðju hæð var svo
aðsetur barnablaðsins Æskunnar og
áfengisvarnaráðs.
Vígsludagurinn 1. febrúar var val-
inn vegna þess að hann var helgaður
bindindismálum um land allt. Fram
kom í frétt í Morgunblaðinu að stóri
salurinn yrði að miklu leyti helgaður
æskufólki höfuðstaðarins. Á þessum
tíma var öflugt stúkustarf meðal
barna og unglinga og ungtempl-
arafélagið Hrönn með blómlegt
starf. En nú eru breyttir tíma og
þessi starfsemi að mestu aflögð.
Fram kemur í Morgunblaðinu að
Hrönn hafi staðið fyrir spilakvöldum
á föstudögum, þar sem utanlands-
ferðir voru í vinning. Á laugar-
dagskvöldum voru gömlu dansarnir
fyrir fullorðna og á sunnudögum
voru tveir dansleikir fyrir unglinga.
Allar þessar skemmtanir voru
áfengislausar eins og nærri má geta.
Templarahöllin var auglýst til
sölu eftir áramótin 1997. Stórstúkan
ákvað að selja húsið, þar sem fyr-
irsjáanlegt var að fram undan væri
afar kostnaðarsamt viðhald. Snorri
Hjaltason byggingameistari gerði
Stórstúkunni tilboð í eignina og var
gengið að því af hennar hálfu í mars
1997. Samtímis því að kaupa húsið
byggði Snorri annað hús fyrir Stór-
stúkuna að Stangarhyl 4.
Snorri hófst handa við að endur-
byggja Eiríksgötu, innan sem utan.
Til viðbótar gagngerri endurnýjun á
gömlu Templarahöllinni var byggð
við hana viðbygging, þrjár hæðir og
um 1.700 fermetrar alls. Arkitekt-
arnir Björn Skaptason og Hildur
Bjarnadóttir hönnuðu nýju bygg-
inguna við Eiríksgötu og einnig all-
ar þær breytingar sem gerðar voru
á eldri byggingarhlutanum.
Landspítali (Ríkisspítalar) gerði
árið 1999 leigusamning við Snorra
um að leigja húsið. Það hefur skipt
um eigendur en er nú í eigu Reita og
leigir Landspítali húsið af Reitum.
Frá árinu 1999 hafa skrifstofur
Landspítala verið í húsinu. Búið er
að auglýsa eftir skrifstofuhúsnæði
fyrir spítalann og því liggur ekki
fyrir hvert sú starfsemi fer.
Sjúkum sinnt í Templarahöll
Landspítalinn ætlar að flytja skrifstofurnar úr Eiríksgötu 5 og nota húsnæðið
til að taka á móti sjúklingum Stórstúka Íslands reisti húsið og tók í notkun 1968
Ljósmynd/Landspítalinn
Eiríksgata 5 Íslenskir bindindismenn reistu húsið árið 1968 og Landspítali hefur leigt það frá 1999. Byggt hefur verið við húsið og því breytt í áranna rás.
Mikið stuð Það var mikið lagt í dansleiki fyrir unga fólkið. Vinsælasta
hljómsveit landsins, Hljómar, spilaði á tveimur dansleikjum 4. febrúar 1968.
Í tilefni Jóns-
messunætur mun
Borgarsögusafn
Reykjavíkur
bjóða upp á
menningar- og
náttúrugöngu
sem byrjar á Ár-
bæjarsafni nk.
laugardags-
kvöld, 23. júní,
kl. 22.30.
Gengið verður um Elliðaárdal,
staldrað við á völdum stöðum og
fjallað um íslenska þjóðtrú og sögu
svæðisins. Stefán Pálsson sagn-
fræðingur leiðir gönguna og kíkt
verður í heimsókn til Jóns Svein-
björnssonar prófessors, en sonur
hans, Halldór, mun leiða göngufólk
um þessa földu perlu í borgarland-
inu.
Þátttaka í göngunni er ókeypis
og allir eru velkomnir, að því er
fram kemur í tilkynningu frá Borg-
arbókasafni.
Jónsmessa
í Elliðaárdal
Stefán
Pálsson
Ráðherrar, þingmenn og samstarfs-
aðilar aðildarríkja Fríverslunar-
samtaka Evrópu, EFTA, koma sam-
an til árlegs sumarfundar á
mánudag, 25. júní. Fundurinn fer að
þessu sinni fram á Sauðárkróki.
Guðlaugur Þór Þórðarson stýrir
fundinum, en Ísland fer um þessar
mundir með formennsku í EFTA.
Efling EFTA-samstarfsins,
áframhaldandi þróun fríversl-
unarsamninga um allan heim og
samskiptin við Evrópusambandið
verða efst á baugi á fundinum á
Sauðárkróki.
Ráðherrarnir funda annars vegar
með þingmannanefnd EFTA og hins
vegar ráðgjafarnefndinni, segir í
fréttatilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu.
EFTA
fundar á
Króknum
Guðlaugur Þór
stýrir fundinum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fundur EFTA mun halda sumarfund
sinn á Sauðárkróki á mánudag.
Skógræktarfélag
Íslands stendur
fyrir útivistar- og
fjölskyldudegi í
skógum landsins
nk. laugardag
undir yfirskrift-
inni Líf í lundi.
Boðið verður upp
á fjölbreytta við-
burði í 18 skógum
um allt land.
Meðal viðburða má nefna fullveld-
isgróðursetningu í Sandahlíð, austan
Vífilsstaðavatns. Þar mun frú Vigdís
Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands,
mæta en fyrir um 30 árum hóf hún
gróðursetningu í Smalaholtinu í
næsta nágrenni við Sandahlíð. Í
Smalaholtinu má rekja upphaf verk-
efnisins Landgræðsluskógar frá
árinu 1990.
Nánari upplýsingar um dagskrána
á laugardag eru á skogargatt.is.
Líf í lundi
í 18 skógum
Frú Vigdís
Finnbogadóttir