Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Full búð af
fallegum sundfötum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sögunarmylla Norwood í Syktyvk-
ar er í 20 þúsund fermetra iðn-
aðarbyggingu sem reist var undir
lok Sovéttímans á 9. áratugnum.
Hún var byggð utan um verk-
smiðju sem framleiddi einingar í
samsett hús. Þegar Norvik keypti
húsnæðið var komið að ýmsum
endurbótum. Meðal annars var
þakið endurbyggt. Frá þakinu er
ágætt útsýni yfir skóglendið um-
hverfis.
Norvik hóf umsvif í Komi-fylki
um aldamótin og keypti þá gamla
sögunarmyllu. Rúmum áratug síð-
ar var keyptur nýr búnaður og
þegar verksmiðjan var opnuð á ný
árið 2012 stórjókst framleiðsluget-
an.
Alexander Vladimirovich Panyo-
kov, framkvæmdastjóri Norwood í
Syktyvkar, leiddi endurbyggingu
verksmiðjunnar. Afkastagetan var
um 15 þúsund rúmmetrar á ári ár-
ið 2011. Nýr búnaður var tekinn í
notkun í nóvember 2012. Með hon-
um og bættum aðferðum var af-
kastagetan sjöfölduð í rúmlega 100
þúsund rúmmetra.
Gætu farið í 125 þúsund
Panyokov segir hægt að auka
framleiðsluna í 125 þúsund rúm-
metra ef nægt hráefni fæst. Verk-
smiðjan yrði þá á þremur og hálfri
vakt en tvær vaktir eru í sumar.
Til marks um aukna framleiðslu-
getu hafi sögunarmyllan í Sykt-
vykar áður afkastað 1.200 rúm-
metrum af timbri til afhendingar á
mánuði. Nú taki 3,5 daga að af-
greiða sama magn.
Panyokov segir ný viðhorf að
ryðja sér til rúms í rússnesku við-
skiptalífi. Yngri kynslóðir séu
opnar fyrir nýjum tækifærum í
viðskiptum.
Það er mikil upplifun að heim-
sækja starfsfólk sögunarmyll-
unnar. Trjábolir eru sóttir í fjall-
háar timburstæður og er þeim svo
raðað á færiband. Smám saman
breytast þeir í sagaða planka sem
eru gagnvarðir áður en þeim er
komið fyrir á lestarvögnum.
Eftirlit með vinnslunni Starfsmaður Norwood fylgist með sögunarferlinu.
Hafa sjöfaldað
afkastagetuna
Gætu gert meira með meira hráefni
Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri
Norvik, segir heildarmarkaðinn með
timbur í heiminum fara stækkandi.
„Síðustu misserin hefur fram-
boðið ekki aukist jafn mikið og eftir-
spurnin. Verð hefur því hækkað
töluvert. Heimurinn er orðinn að
einum markaði. Eftirspurnin frá
Kína hefur aukist stöðugt og líka
undanfarið frá Bandaríkjunum. Það
hefur ýtt undir verð í Evrópu en
eftirspurnin þar hefur einnig auk-
ist,“ segir Jón Helgi.
Högg fyrir Kanadamarkað
„Síðan er það framboðið. Það er
mjög takmarkað hvað hægt er að
auka framboðið. Það byggist á því að
hráefnið er takmarkað. Til dæmis
hefur stærsta útflutningsríki heims
á timbri, Kanada, átt undir högg að
sækja. Það hefur átt erfitt með að
sækja sér hráefni í sína skóga. Það
er vegna náttúruhamfara. Ákveðið
skordýr, furubjalla, hefur farið mjög
illa með marga skóga hjá þeim, risa-
stór svæði. Það hefur dregið úr
framboði þaðan. Evrópa hefur sára-
lítið aukið framleiðsluna. Hvað varð-
ar Eystrasaltsríkin hefur Eistland
eitthvað aukið framleiðsluna en
stöðnun er í skógarhöggi í Lettlandi.
Þar er ekki aukning í skógarhöggi.
Þótt þar sé höggvið minna en vex
vilja menn engu að síður fara var-
lega. Það eru geysilegar skógar-
höggsauðlindir í Rússlandi en að-
gengið er takmarkað og vegalengdir
miklar. Það þarf að leggja vegi um
alla þessa frumskóga ef menn ætla
að sækja í þá og það er mjög dýrt. Í
okkar skógarfyrirtæki erum við með
öll helstu tæki til vegagerðar – jarð-
ýtur, veghefla og önnur tæki til
vegagerðar – og þurfum að búa til
vegi og brýr til að komast inn í skóg-
ana og ná afurðum út. Það er hinn
takmarkandi þáttur hér um slóðir,“
segir Jón Helgi.
Á leið til markaða Stæður af plönkum bíða þess að verða fluttar með lestarvögnum. Stór hluti fer til Lettlands.
Heimurinn er orðinn einn
markaður í timbursölunni
Forstjóri Norvik segir timburmarkaðinn vera að stækka
Vinnsla Hér eru flokkaðir trjábolirnir að nálgast sögunarmylluna.
Óhætt er að segja að Alexander
Ignatov sé máttarstólpi í skógar-
höggsþorpinu Puzla. Hann er þar
bæjarstjóri og framkvæmdastjóri
Komiles business. Félagið er í senn
stærsti vinnuveitandinn og eig-
andi flestra fasteigna í þorpinu.
Um 400 manns búa í Puzla og
starfa um 80 hjá Komiles
business. Langflestir eru heima-
menn en einnig starfa þar að-
komumenn sem koma og fara.
Sumir koma frá nálægum þorpum.
Um 50 km eru í næsta þorp. Þykk-
ur skógur skilur þau að.
Veitingasala og lestarstöð
Ásamt því að bera uppi atvinnu-
líf í þorpinu kemur Komiles bus-
iness að rekstri veitingasölu, gisti-
staðar og matvöruverslunar. Þá er
fyrirtækið með lestarstöð fyrir
timburflutninga í skóginum og sér
um fólksflutninga til og frá svæð-
inu. Félagið Komiles business var
stofnað 1998. Norvik keypti
félagið 2004.
Samkeppnin að aukast
Alexander Ignatov hefur verið
framkvæmdastjóri Komiles
business frá upphafi.
Ignatov segir ný fyrirtæki vera
að ryðja sér til rúms í timburiðn-
aðinum í Komi-fylki. Með því auk-
ist samkeppnin. Hann segir að
eftirspurn eftir sumum trjáteg-
undum sé að aukast.
50 km í næsta þorp
BURÐARÁS Í BÆJARFÉLAGINU
Nafnar Alexander Panyokov (til vinstri) og Alexander Ignatov starfa saman.