Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 ✝ Guðbjörn Ax-elsson vélstjóri fæddist 12. febr- úar 1934 á Hjalt- eyri við Eyjafjörð. Hann andaðist 14. júni 2018 á Borg- arspítalanum. Hann var kvæntur Önnu Lísu Kristjáns- dóttur, f. í Vam- drup á Austur-Jót- landi 16. maí 1935, d. 17. október 2016. Foreldrar hans voru Axel Sæmann Sigurbjörnsson sjó- maður og Guðmunda Karen Guðjónsdóttir húsfreyja. Anna Lísa og Guðbjörn eign- uðust tvö börn. Þau eru 1) El- ísabet, f. 2.6. 1956, lögmaður, maki Björn Jónasson útgefandi. Börn þeirra eru a) Anna Lísa, maki Ásmundur Tryggvason, börn Örlygur (lést í fæðingu), Björn og Áslaug Dagmar, b) Ingibjörg, c) Jónas Bergmann, maki Brittany Solar Björnsson. 2) Axel Sæmann, f. 19.2. 1960, umsjónar- maður fasteigna, maki Ólöf Stefáns- dóttir, löggiltur bókari. Fyrri kona Axels var Elín Rósa Guðmundsdóttir, börn þeirra eru: a) Óskar Sæmann, maki Inga Hrund Arnardóttir, börn Sólborg (með fyrri sambýliskonu), Óliver Sæ- mann og Brynar Tumi, b) Guð- björn, maki Matthildur Fanney Jónsdóttir, börn Axel Máni og Aron Kári. Matthildur á tvö börn, Flemming Jón og Selmu Karen, c) (uppeldisdóttir) María Kristinsdóttir, maki Daníel Jakobsson, börn Anita Nótt (Sigurgeirsdóttir) og Ólöf Emelía. Útför Guðbjörns fer fram frá Langholtskirkju í dag, 21. júní 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Guðbjörn Axelsson vélstjóri, tengdafaðir minn, er borinn til grafar í dag. Hann fæddist og ólst upp á Hjalteyri við Eyjafjörð. Sem ungur drengur ólst hann upp við sjómennsku og var hún honum í blóð borin. Hann undi sér hvergi betur en úti á sjó, úti á firði, við veiðar, í náttúrunni. Ég átti þess kost að fá að upplifa manninn Guð- björn Axelsson á sjó, í sínu ele- menti. Það var sjórinn, fuglinn, veðrið, klókindin við að stýra bátnum en ekki síst þekkingin á því hvar fiskinn var að finna. Hann var til sjós sem ungur maður og sigldi til Danmerkur, þar sem hann kynnist konu sinni Önnu Lísu. Þar kviknaði ást sem sigraði allar fjarlægðir, og kom hún til Íslands, þar sem þau giftu sig og stofnuðu fjölskyldu. Guð- björn og Anna Lísa voru samhent í sínu lífi og fannst öllum þau vera einsog einn maður. Eitt sinn bauð Guðbjörn okkur föður mínum, Jónasi B. Jónssyni, embættismanni úr Reykjavík, norður í Eyjafjörðinn í ufsa. Þá var nýbúið að færa einkarétt á þorskinum til ólígarka framtíðar- innar, útá ótraust vísindi. Við pabbi keyrðum norður á vit æv- intýra, enda við báðir þurrskóa landkrabbar sem engan þekktum sjóinn. En við vorum viljugir há- setar. Sváfum á gólfinu í gamla Knútshúsinu á Hjalteyri, og vor- um vaktir klukkan fjögur af Guð- birni, sem hafði þá þegar eldað hafragrautinn. Og það var kalt þótt sumar héti og gufaði úr munninum þegar við vöknuðum. Og það var spenningur í loftinu þegar Guðbjörn leysti landfestar og sigldi með okkur útá Eyjafjörð- inn. Ufsaveiðarnar fóru þannig fram að lögð var út lína með fjölda króka. Síðan var skimað eftir fugli og þar sem var ger, var síld eða annar smáfiskur og í kjölfarið kom ufsinn. Þá var gefið allt í botn og sveigt fyrir ufsann, þannig að lín- an lenti í miðri torfunni. Þetta bragð útfærði Guðbjörn snilldar- lega og við hásetarnir höfðum ekki við að draga inn línuna og slægja í kjölfarið. Faðir minn var bóndasonur úr Húnavatnssýslu, fæddur í torfbæ og tengdafaðir minn sjómanns- sonur úr Eyjafirði, báðir þessir menn þekktu lífsbaráttu íslensku þjóðarinnar. Menn fárra orða, dugnaðar og æðruleysis. Það er mér heilög minning að hafa séð þessa tvo menn, sem komu úr ólíkri átt, vinna saman sem einn maður. Guðbjörn var einstaklega vinnusamur og atorkumikill. Eftir að hafa verið vélstjóri á togurum settist hann í helgan stein, sem fólst í því að hann keypti sér trillu og gerði hana út. Þá var vaknað fyrir allar aldir og stímt á miðin og verið að fram eftir degi, alla daga sem fært var. En einsog þetta væri ekki nóg, þáákváðu þau hjónin að byggja kaffihús á Hjalteyri. Þá var hann að nálgast sjötugt. Þegar það var fullbyggt, ráku þau hjónin Kaffi Lísu í tíu ár. Guðbjörn var tengdur systkin- um sínum sterkum vináttubönd- um sem héldust alla tíð. Hann var hlýr maður og kærleiksríkur og var ávallt reiðubúinn að taka und- ir horn með öðrum þegar á þurfti að halda. Hann ávann sér virðingu og traust allra sem komust í snert- ingu við hann og er sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Björn Jónasson. Afi minn var sterkasti maður í heimi. Hann var eins og pabbi Línu og Stjáni blái í einum manni. Afi var með einstaklega hlýja nærveru. Hann var mikið á sjó þegar ég var barn, en nærvera hans var samt áþreifanleg á heim- ili þeirra ömmu þar sem ég dvaldi stundum sem barn. Á sumrin fór- um við norður á Hjalteyri þar sem við afi og amma áttum okkar ann- að heimili og hamingjan fólst í pönnukökum, nýveiddum fiski, að dorga á bryggjunni eða fara út á trillunni hans afa. Dýr og börn hændust að honum, stundum um of. Fræg var gæsin sem var orðin svo hænd að honum að hún hleypti ekki ömmu út á pall á Kaffi Lísu. Á fullorðinsárunum kynntist ég afa betur og fékk að heyra sögu- brot úr lífi hans. Hann var ósér- hlífinn vinnuþjarkur og þegar í land var komið var ekki slegið slöku við. Hann kunni margar stórbrotnar sögur frá sjómennsk- unni sem ég fékk stundum að heyra brot úr. Hann var alltaf sterkur og ég man vel þegar hann var á spítalanum að jafna sig eftir heilablóðfall, þá hjálpaði hann sjúkraliðanum að ýta niður ann- arri hliðinni á rúminu sem var orð- in stíf. Afi var líka tónelskur, spil- aði á harmonikku fyrir barnabörnin sín og var stoltur af þeim. Afi var hlýr og vinmargur, var elskaður og elskaði sitt fólk. Það er óraunverulegt að eiga hann ekki lengur að. Skömmu fyrir and- látið minnti hann mig á hve marg- ar fallegar minningar við ættum saman. Þær eru nú dýrmætar minningar. Ég veit að amma tekur vel á móti honum í sumarlandinu. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn, rósin mín. Er kristalstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað, yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson.) Anna Lísa Björnsdóttir. Mig langar að minnast föður- bróður míns með nokkrum orðum. Guðbjörn Axelsson ólst upp í Knútshúsi á Hjalteyri við Eyja- fjörð með sjö systkinum. Faðir hans var sjómaður á Hjalteyri og gerðist Guðbjörn einnig sjómaður. Hann var vélstjóri á nokkrum tog- urum í gegnum ævina. Í einni af siglingum sínum til Esbjerg í Danmörku kynntist hann danskri konu og „sjanghæjaði“ hana með sér til Íslands, hún hét Anna Lísa Pedersen og varð eiginkona Guð- björns. Anna Lísa lést 17. október 2016. Ég var í pössun hjá Guðbirni og Önnu Lísu þegar ég var barn og þegar hann kom úr siglingu að utan þá fékk ég gjafir eins og hans börn. Einnig er ríkt í minningunni að Anna Lísa var oft að spila danska dægurlagamúsík á grammófón. Á níunda áratugnum byggðu foreldrar mínir og Guð- björn og Anna Lísa sumarbústaði hlið við hlið á Hjalteyri og man ég eftir einstaklega skemmtilegum tíma þegar ég var að hjálpa til við að byggja sumarbústaðina í 22 stiga hita og glampandi sól. Anna Lísa ætlaði þá að vera verulega góð við eiginmann sinn og bakaði handa honum kleinur og kom með þær til hans en heldur brá henni þegar Guðbjörn hvessti sig og sagði: „Kemurðu með kleinur, hvar er vatnið!“ Enda vorum við allir orðnir mjög þyrstir af að hamast við smíðina í hitanum og sólinni og pabbi fór í næsta hús og náði í vatn handa okkur en klein- urnar voru góðar. Annars var Guðbjörn mikill húmoristi og þeg- ar pabbi var með óstöðvandi hlát- ur í símanum heima þá spurði ég mömmu eitt sinn hvort hann væri að tala við Guðbjörn. Guðbjörn var alla tíð orkumikill maður og yfirleitt lítil lognmolla í kringum hann. Haustið 2003 þegar Guð- björn er að nálgast sjötugt þá opna hann og Anna Lísa kaffihús á Hjalteyri sem þau skíra Kaffi Lísa. Þegar ég kom á Hjalteyri á sumrin eftir það þá var það eitt af mínum fyrstu verkum að kíkja á Kaffi Lísu og heilsa þeim og fá mér danskt smörrebröd. Oft var Guðbjörn þá að spila á harmóník- una úti á veröndinni á Kaffi Lísu. Guðbjörn var ákaflega músíkalsk- ur og spilaði á harmóníkuna eftir eyranu og einu sinni spilaði ég á gítarinn með honum á útiskemmt- un um verslunarmannahelgina fyrir fólkið á Hjalteyri og þá var bæði sungið og dansað í þúfunum á eyrinni. Við Guðbjörn áttum gott samtal um lífið og tilveruna í Kaffi Lísu sumarið 2016 og kvaddi ég hann og Önnu Lísu innilega þá. Við hittumst síðast á ættarmóti síðastliðið sumar. Guð blessi minningu Guðbjörns Axelssonar. Eyþór Rafn Gissurarson. Já, við náðum að brúa kyn- slóðabilið, ég og Guðbjörn og við áttum eftir að tengjast órjúfanleg- um vináttuböndum, ekki bara á Hjalteyri heldur líka þegar þau hjónin voru búin að selja Kaffi Lísu og komu sjaldnar til Hjalt- eyrar. Leið mín lá oft í Sóltúnið til þeirra heiðurshjóna og þar var ávallt tekið vel á móti mér. Nú eru ekki nema tæp tvö ár síðan Guð- björn missti eiginkonu sína hana Önnu Lísu en hún lést í október 2016 eftir skammvinn veikindi. Þetta reyndist mikið áfall fyrir Guðbjörn og mér fannst hann ekki verða samur eftir þetta, hún var hans stoð og stytta og setti hann ávallt í fyrsta sæti. Við Guðbjörn hittumst fyrst á Hjalteyri fyrir all- mörgum árum en þar byggðu þau sér sælureit í húsinu við sæinn, þar leið þeim best og þar vildu þau alltaf vera. Það tókst strax með okkur Guðbirni mikil og góð vin- átta, vinátta sem aldrei gleymist. Ekki löngu eftir að Anna Lísa dó þá fluttist Guðbjörn úr Sóltúninu á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar fékk hann snotra íbúð til afnota og þar leið honum ágætlega. Það var fyr- ir nokkrum dögum að ég heimsótti Guðbjörn en þá var ég á leið norð- ur á Hjalteyri, ekki grunaði mig að þetta yrði í síðasta skipti sem okkar leiðir lægju saman, hann var hress og kátur og spurði inni- lega frétta að norðan. Hann var iðulega með hugann fyrir norðan á fallegu eyrinni, Hjalteyri, staðn- um sem hann átti svo ljúfar minn- ingar um. Í minningu geymi ég mynd af traustum og hugljúfum manni sem klappaði mér á bakið og óskaði mér góðs gengis með það sem ég var að gera hvert sinn, ég er þakklátur fyrir að hafa notið þess að að kynnast Guðbirni og vera hluti af lífi hans, hann var vel gerður maður og vandaður til orðs og æðis. Fjölhæfur var hann og vann að margbreytilegum verk- efnum um ævina hvort heldur var til sjós eða lands. Hann var ekki alltaf margmáll og flíkaði tilfinn- ingum sínum lítt en gat verið manna skemmtilegastur þegar hann naut sín sem best og eðli sagnamannsins var honum áskap- að. Hann var með hugann fyrir norðan fram á síðasta dag og þeg- ar ég hringdi í hann að norðan þá var hann mjög áhugasamur um tíðindi þaðan. Minn trausti vinur er nú farinn til móts við hana Önnu Lísu sem var eina ástin hans í lífinu, hún mun taka vel á móti honum þar sem hún er. Minningin lifir um einstakan vin. Fjölskyldu Guðbjörns sendum við Alma okk- ar innilegustu samúðarkveðjur með þakklæti fyrir allt og allt. Guð veri með ykkur öllum. Björgvin og Alma Björk. Guðbjörn Axelsson ✝ Elínborg Krist-jánsdóttir fæddist á bænum Eiði í Eyrarsveit á Snæfellsnesi 13. júlí 1933. Hún andaðist á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, 28. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru Kristján Sigurður Jónsson, f. 1901, d. 1969, og Guðrún Guðný Elísdóttir, f. 1901, d. 1972. Hún var þriðja í röð sjö systkina en eldri voru Guðmundur, f. 1928, d. 1995, Jón Jóhann, f. 1929, d. 2010, Rúrik, f. 1934, Arnór Páll, f. 1935, Jónína Guðrún, f. 1937, Kristný Lóa, f. 1940, lést í frumbernsku, og auk þess átti hún eina uppeldissyst- ur, Jóhönnu Kristínu, f. 1947. Þann 29. október 1955 giftist Elínborg Trausta Jónssyni, f. 8. ágúst 1930, frá Hellnum á Snæ- fellsnesi, d. 14. febrúar 2014. Foreldrar hans voru Elínborg Sigurðardóttir, f. á Stakkhamri í Miklaholtshreppi 1889, d. 1988, og Jón Kristjánsson, f. á Hellis- sandi 1878, d. 1948. Börn Trausta og Elínborgar Indíana Rós og Ólafur Ernir. 3) Sigrún, f. 12.9. 1958, maki Guð- mundur Árnason. Börn þeirra: a) Elínborg, f. 1976, maki Kjart- an Þorsteinsson. Börn þeirra eru Thelma Björk, Eygló Sunna og Íris Ósk. b) Snorri, f. 1978, maki Ína Dóra Ástríðardóttir. Börn þeirra eru Nökkvi, Andri og Fríða. c) Sigríður. f. 1982, dætur hennar eru Ronja, Bella og Ísa- dóra. 4) Dröfn, f. 21.4. 1968, maki Þorsteinn Bárður Sigur- geirsson. Börn þeirra: a) Sigrún Lóa, f. 1993, maki David Soller, f. 1984, dóttir þeirra er Sophia. b) Magnús, f. 1997. c) Sigurgeir, f. 1999. Elínborg ólst upp hjá foreldr- um sínum á Eiði. Að loknu skyldunámi lá leiðin í Hús- mæðraskólann á Staðarfelli í Dölum. Að því loknu vann hún eitt ár á símstöðinni í Grund- arfirði. Þá réð hún sig sem hús- hjálp hjá sr. Sigurði Einarssyni og frú í Holti undir Eyjafjöllum og vann í Skógaskóla einn vetur. Elínborg og Trausti hófu bú- skap á Akranesi árið 1954 og bjuggu alla tíð á Akranesi. El- ínborg vann við fiskvinnslu sam- hliða húsmóðurstörfum og barnauppeldi. Árið 1973 byrjaði hún að vinna á Sjúkrahúsi Akra- ness sem starfsstúlka og lauk sinni starfsævi þar árið 2003. Útför Elínborgar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 21. júní 2018, og hefst athöfnin kl. 13. eru: 1) Jón Kristján, f. 19.1. 1955, maki Sigríður Þórarins- dóttir. Börn þeirra: a) Þórarinn Ægir, f. 1976, maki Björg Bjarnadóttir. Þeirra börn eru Björgvin Þór og Sigríður Sól. b) Trausti Freyr, f. 1979, maki Helena Rut Steinsdóttir. Þeirra börn eru Jón Karl Krist- ján, Tristan Freyr og Kara Líf. c) Jökull Þór, f. 1982, maki El- ísabet Stefánsdóttir. Börn þeirra eru Hafdís Ylfa, Írena Mjöll, Stefán Þórarinn og Þórunn Alda. d) Sigurður Sveinn, f. 1984, hans börn eru Maron Reynir, Melkorka Emilía og Styrmir Trausti. 2) Kristný Lóa, f. 26.4. 1956, maki Ólafur Ósk- arsson. Börn þeirra: a) Jón Trausti, f. 1974, maki Edda Björk Kristjánsdóttir. Þeirra börn eru Diljá Björk, Arnar Ingi og Hildur Karitas. b) Jóhanna, f. 1977. Hennar börn eru Elvar Már og Harpa Kristný. c) Karit- as Ósk, f. 1987, maki Arnór Már Guðmundsson. Þeirra börn eru Við fráfall ástkærrar móður okkar leita margar minningar á huga okkar. Hún var kletturinn í okkar uppvexti þar sem pabbi var oft fjarverandi í langan tíma, sér- staklega þegar við vorum ung, hann á vertíð hjá Hval hf. eða á síld og seinna þegar hann var í siglingum á sementsflutninga- skipinu Freyfaxa var mamma ávallt skipstjórinn á skútunni í landi. Góðar minningar eigum við um útilegur um allt land eftir að for- eldrar okkar eignuðust bíl. Þá var bíllinn hlaðinn, skottið fyllt og toppgrind sett á bílinn svo allt kæmist með. Tjaldað var við fal- legt vatn eða á, þar sem hægt var að renna fyrir fisk og prímusinn sá um að hita tjaldið. Mamma var mikil húsmóðir og handavinnukona. Það sást að hún lærði margt í húsmæðraskóla til viðbótar því sem hún lærði í upp- vextinum af móður sinni, því ekk- ert vafðist fyrir henni þegar kom að eldamennsku eða handavinnu. Allt var saumað í Husquarna-vél- inni og peysur prjónaðar, það var ekki hlaupið út í búð til að kaupa nýtt í þá daga. Oftar en ekki byrj- aði hún að sauma þegar börnin voru farin að sofa en það var hennar næðisstund. Ekki aðeins saumaði hún og prjónaði á börnin sín og sjálfa sig, heldur nutu aðrir góðs af og eftir hana liggja lopa- peysur, rósasokkar og vettlingar í flestum heimsálfum sem sendir hafa verið sem gjafir til vina og kunningja okkar barnanna. Hún var mikil fjölskyldukona og þau pabbi fylgdust náið með hvað börnin og barnabörnin tóku sér fyrir hendur, glöddust þegar vel gekk og stóðu við bakið á þeim sem þurftu á stuðningi að halda. Mamma var líka bóngóð með ein- dæmum, alltaf var pláss fyrir þá sem þurftu að gista eina og eina nótt og alltaf hægt að bæta við gestum í mat. Öll langömmu- börnin fengu hekluð rúmteppi frá lang-Ellu eins og þau kölluðu hana og það er ekki lítið þegar við tölum um rúmteppi í fullri stærð og langömmubörnin orðin 29 tals- ins. Árið 1977 fengu foreldrar okk- ar afnot af landi skammt frá Akranesi þar sem þau komu sér upp sumarbústað og átti það hug þeirra alla tíð eftir það. Í byrjun var gömlu veiðihúsi sem þau keypu breytt í sumarbústað, byggt var við hann a.m.k. í tví- gang og að lokum reistur nýr bú- staður 1999 þegar ljóst var að þar rúmaðist ekki lengur ört vaxandi fjölskylda. Í Sjávarholti var tím- inn notaður til að planta trjám sem orðin eru vísir að skógi í dag. Vorið var heillandi tími í bústaðn- um, þar sem fylgst var með fugl- um í tilhugalífinu, hreiðurgerð og hve margir ungar komust á legg. Einnig nutu þau þess að ferðast saman og fóru í nokkrar utan- landsferðir til Kanarí og svo seinna að heimsækja yngstu dótt- ur sína sem búsett er í Danmörku. Eftir að pabbi dó 2014 fór að halla undan fæti og heilsan að gefa sig, hún flutti í Höfða, hjúkr- unar- og dvalarheimili fyrir réttu ári, þar leið henni vel og fannst gott að búa við öryggið sem þar var. Nú mun pabbi taka á móti henni í sumarlandinu þar sem þau ganga saman hönd í hönd eins og ávallt áður. Að leiðarlokum viljum við kveðja ástkæra móður með bæn- um sem hún kenndi okkur í æsku: Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gæskuríkur geymdu mig Guð í faðmi þínum. (Höf. ók) Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (H.P.) Elsku mamma. Minning þín lif- ir í hjörtum okkar að eilífu. Hvíl í friði og hjartans þökk fyrir allt og allt. Kveðja, Jón Kristján, Kristný Lóa, Sigrún, Dröfn og tengdabörn. Nú er komið að kveðjustund og minningarnar streyma fram svo margar og svo góðar. Hugmyndin um ömmu og afa sameinuð á ný kallar fram ljúft bros og hlýju í hjartað. Amma naut þess alla tíð að eiga stóran og samrýndan hóp í kringum sig sem oftar en ekki sótti hana og afa heim í sumarbú- staðinn þeirra. Að koma til ömmu og afa í sumarbústaðinn lét dag- ana líða, þar var alltaf nóg að gera, fylgjast með flóði og fuglum, rölta um holtið, veiða síli eða að- stoða við verkefni dagsins ásamt svo mörgu öðru skemmtilegu. Við áttum saman margar einstakar stundir og ljúft samband sem við nú geymum í huga og hjarta. Við eigum fallegar minningar um yndislega ömmu með stórt hjarta, opinn faðm og hlýtt bros. Minn- ingar sem við og börnin okkar geymum og gleðjumst yfir að eiga. Með þessum línum viljum við kveðja þig elsku amma: Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð og bros þitt mun fylgja mér alla tíð uns hittumst við aftur heima. (Höf. ókunnur) Jón Trausti, Jóhanna, Karitas Ósk og fjölskyldur. Elínborg Kristjánsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.