Morgunblaðið - 21.06.2018, Side 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Hágæða
umhverfisvænar
hreinsivörur
fyrir bílinn þinn
Glansandi
flottur
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.
stimpilinn „engin dýr voru sköðuð
við framleiðslu myndarinnar“. Síðar
hefur þó komið í ljós að stimpillinn
er gjörsamlega þýðingarlaus, eins
og flestir aðrir stimplar er varða
velferð dýra, og hver skandallinn á
fætur öðrum hefur komið upp. Sem
dæmi má nefna kvikmyndina Life of
Pi frá 2012 en tígrisdýrið sem sjá
má í þeirri mynd var nær dauða en
lífi við tökur myndarinnar eftir að
hafa verið trekk í trekk hent út í
vatnstank svo það mætti ná mynd af
því á svamli. Við gerð kvikmyndar
Peters Jacksons The Hobbit: An
Unexpected Journey frá 2012 dráp-
ust einnig tuttugu og sjö dýr vegna
vanrækslu, þar á meðal kindur,
geitur og hestar. Þá má nefna Pira-
tes of the Caribbean: The Curse of
the Black Pearl sem kom út sama
ár, en fjölda sjávardýra skolaði á
land eftir ítrekaðar djúpsjávar-
sprengingar sem festar voru á
filmu.
Allar þessar myndir fengu full-
nægjandi stimpil frá AHA – „engin
dýr voru sköðuð við framleiðslu
myndarinnar“. Það er nefnilega svo,
að til þess að fá stimpilinn þarf
framleiðslan aðeins að standast þær
kröfur að engum dýrum var vísvit-
andi slátrað við gerð myndarinnar
og slátrunin fest á filmu. Þetta er
náttúrlega gjörsamlega fáránlegt og
stimpill sem er einungis gerður til
að slá ryki í augu þeirra sem láta
velferð dýra sig varða. Bob Ferber,
sem gegndi starfi saksóknara í
dýraníðsmálum í Kaliforníu í meira
en áratug í kringum aldamótin,
bendir einnig á að það er nær ekk-
ert gagnsæi við gerð Hollywood-
mynda og AHA gefur mjög svo tak-
markaðar upplýsingar, í samráði við
kvikmyndaframleiðendur, um hag
dýra á setti.
Enn eitt myrka
leyndarmálið í Hollywood
Bandarískar kvikmyndir eru að
sjálfsögðu ekki einar um þennan
viðbjóð, en sjálfur varð ég til að
mynda mjög vonsvikinn þegar ég
komst að því að Park Chan-wook,
leikstjóri suðurkóresku myndar-
innar Oldboy – sem var í miklu
uppáhaldi hjá mér – lét aðalleikara
myndarinnar tæta í sig fjóra lifandi
kolkrabba, sem börðust fyrir lífi
sínu allt fram á síðustu stundu, til
þess að ná nokkrum raunverulegum
skotum. Daninn Lars von Trier lét
líka slátra asna í kvikmyndinni
Manderlay frá árinu 2005, en sagan
segir að leikaranum John C. Reilly
hafi verið svo ofboðið að hann vék
frá myndinni í fússi. Jean-Luc God-
ard slátraði líka dýrum í myndum
„Engin dýr voru sköðuð við
framleiðslu myndarinnar“
Svaml Tígrisdýrið sem leikur stórt hlutverk í kvikmyndinni Life of Pi frá árinu 2012 var nær dauða en lífi við tökur
myndarinnar eftir að hafa verið trekk í trekk hent út í vatnstank svo það mætti ná mynd af því á svamli.
Kramin John Waters lét kremja hænur til dauða við gerð Pink Flamingos.Vanræksla Við gerð The Hobbit: An Unexpected Journey drápust 27 dýr vegna vanrækslu, þ.á m. geitur og hestar.
»Ég gat því ekki ann-að en kafað ofan í
það hvort slíkt sé sið-
ferðilega rétt, enda
nokkuð augljóst að þeg-
ar tökum er lokið fara
dýrin ekki upp í svítu
eins og aðrar kvik-
myndastjörnur og skála
í kampavíni – heldur
fara þau oftast beinustu
leið inn í búr þar sem
þeim er haldið nær alla
sína ævi.
AF KVIKMYNDUM
Davíð Már Stefánsson
stefanssondavidmar@gmail.com
Dýr eru yndisleg. Það verður ekki
dregið í efa. Það er yndislegt að um-
gangast þau, fylgjast með þeim og
læra af þeim. Bandarískur leikstjóri
bað mig hins vegar nýlega að skrifa
kvikmyndahandrit þar sem elsku
dýrin spila stóra rullu. Ég gat því
ekki annað en kafað ofan í það hvort
slíkt sé siðferðilega rétt, enda nokk-
uð augljóst að þegar tökum er lokið
fara dýrin ekki upp í svítu eins og
aðrar kvikmyndastjörnur og skála í
kampavíni – heldur fara þau oftast
beinustu leið inn í búr þar sem þeim
er haldið nær alla sína ævi. Kenna
mátti ýmissa grasa um leið og
stækkunarglerið var tekið upp.
Tígrisdýri næstum drekkt
Til að átta sig á vandamálinu þarf
maður kannski að skilja að dýraníð
hefur verið hluti af Hollywood allt
frá fyrsta degi. Nashyrningar voru
drepnir hver á fætur öðrum í göml-
um Tarzan-myndum og fjölda hesta
var slátrað í kúrekamyndum. Þegar
vakin var athygli á því að slíkt væri
nú kannski ekki alveg eðlilegt var
batteríinu American Humane Asso-
ciation, eða AHA, hrundið af stað –
en samtökin áttu, og eiga enn í dag,
að sjá til þess að dýr séu óhult með-
an á tökum stendur. Samtökin eru
kannski þekktust fyrir að gefa