Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 65
65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 Secret Solstice 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Secret Solstice-hátíðin er byggð að mestu upp á sama hátt og í fyrra Það verða 140 mismunandi atriði ýmist stakir listamenn eða hljóm- sveitir. Íslenskir listamenn eru með 90 tónlistarviðburði og erlendir með 50,“ segir Jón Bjarni Steinsson, einn af aðalskipuleggjendum Secret Sol- stice, sem byrjar í kvöld og stendur fram á sunnudag. Hátíðin er nú hald- in í fimmta sinn. Jón Bjarni segir að miðað við dag- skrána sem gestir hafa búið sér til og hlaðið niður í þar til gert app þá megi búast við að vinsælustu viðburðirnir verði Stormzy, Cucci Mane, Bonnie Tyler, George Clinton og Parlament Funkadelic og hljómsveitin Clean Bandit frá Bretlandi sem slegið hef- ur hvert metið á fætur öðru. „Ég vona að rokkarar nýti tæki- færið og fjölmenni á Slayers- tónleikana,“ segir Jón Bjarni. Sundlaugarpartí í Hreppslaug Auk viðburða á hátíðinni sjálfri hafa fyrirpartí verið haldin meðal annars á Kaffi Laugalæk, Dillon og Hlemmi Square. „Við höldum áfram með hliðar- viðburði og bjóðum upp á ferðir á Langjökul og í Rauðhólahelli eins og áður. Við bætum við sundlaugar- partíi með DJ Lee Burridges, í Hreppslaug, í Skorradal á föstudag- inn,“ segir Jón Bjarni og jafnframt að bætt hafi verið við annars konar viðburðum en tónlist á hátíðarsvæð- inu. Má þar nefna BMX-hjólasýn- ingu og víkingadagskrá. „Við verðum að sjálfsögðu með bar þar sem hægt er að horfa á HM og svo verður leikur Íslands og Níg- eríu sýndur á aðalsviðinu á föstudag- inn kl. 15.00,“ segir Jón Bjarni. Að sögn hans er aðsókn að tónlist- arhátíðinni svipuð og í fyrra. Hann segir veðrið og hátt gengi krónunnar ekki hjálpa til. „Bretunum hefur fækkað en Bandaríkjamönnum fjölgað og svo kaupa margir Íslendingar ekki miða fyrr en í rétt fyrir hátíðina,“ segir Jón Bjarni og bætir við að 25 til 30% gesta séu útlendingar og landinn 65 til 70% gestanna. Að sögn Jóns Bjarna er tilgangur Secret Solstice að vera þekkt alvöru sumartónlistarhátíð á alþjóðlegan mælikvarða og það hefur tekist að hans mati. Teymi sérfræðinga í hreinsun „Við erum ung hátíð og verðum betri og skipulagðari með hverju árinu. Í fyrra var kvartað yfir sorp- málum á svæðinu. Við réðum erlent teymi sérfræðinga til þess að halda svæðinu hreinu í ár,“ segir Jón Bjarni. Secret Solstice er 800 til 1.000 manna vinnustaður meðan á hátíð- inni stendur að sögn Jóns Bjarna og um 100 til 200 sjálfboðaliðar leggja hönd á plóg, flestir erlendir. Secret Solstice hefst í dag  Silvía Erla fyrst á svið  Ísland og Nígería á stóra sviðinu  800 til 1.000 manna vinnustaður  Bonnie Tayler, Slayer, Stormzy, Clean Bandit, Aron Can Ljósmynd/Sarah Koury Vinsæll Joey Christ nær vel til áhorfenda og endurtekur leikinn um helgina. Ljósmynd/Secret Solstice Secret Solstice Myndin fangar vel stemninguna á bjartri sumarnótt. Morgunblaðið/Hanna Fjölbreytni Bonnie Tyler er ein af fjölmörgum erlendum tónlistarmönnum sem fram koma og skemmta á Secret Solstice-hátíðinni í ár. Hátíðaropnun fimmtudag: Bonnie Tyler, Jet Black Joe, Steve Aoki, JóiPé&Króli, Sylvía Erla, Charlotte de Witte, Cos- mic Bullshit. Föstudagur: Gucci Mane, Dream Wife, Dubfire, Sweaty Records, Maher Daníel, Gold- link, IAMDD, Aron Can, Hildur, Mó- krókar, Floni, Alvia, For A Minor Ref- lacton, Pink Street Boys, Bjarki Valdimar, Ása, Marco Faraone, Skrattar, Johnny And The Rest, Captain Syrup, Mushy, Ern, Röskva, Andrea Jóns, Gísli Pálmi, We Maid God, Fox Train Safari, Teitur Magn- ússon, Vio, Rythmatik, Vicky, Casio Fatso, Indigo Theory, Mike The Jac- ket, PJ Glaze, Colin Perkins. Laugardagur: Slayer, Agent Fresco, EARTHGANG, Sturla Atlas, Kiló, J.Philip, Holmar, HAM, Une Misére, J.I.D, Birnir, Joey Christ, Young Karin, Logi Pedro, Hos- ted by Ali Love, Reykjavíkurdætur, Ragga Holm, Yung Nigo Drippin, DJ Karítas, J.Philp, Huginn, Elli Grill, Fe- ver Dream, Dino Gardiakos, Cole, Carla Rose, Droog, Death From Above, Matt Tolfrey, Skream, DJ Frí- mann, CasaNova, Orang, Nitin. Volante, Daníel Jack, Skream. Sunnudagur: Stormzy, Stuðmenn, Högni, Úlfur Úlf- ur, Egyptian Lover, Grúska Babúska, Clean Bandit, Get Funky DJs, Art- work, 6LACK, J Hus, Masego, Gen- telman’s Dub Club, GKR, Cell7, Sha- des of Reykjavík, Sprite Zero Klan, MARBS, Maxxi Soundsystem, Anton Fitz, Matin Loose-Cuts, Martin Mar- son, Just William, Georg Clinton&- Parlament Funkadelic, Masego, JFDR, GDRN, Kollektiv Turmstrasse, Birgir, Between Mountains, Ateria, Mighty Bear, Una Stef, Skaði. Nánari dagskrá á secretsolstice.is. Dagskráin í stórum dráttum Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt ICQC 2018-20 Myndlistarmennirnir Einar Gari- baldi og Ósk Vilhjálmsdóttir eiga bæði verk á sýningunni Einskis- mannsland: Ríkir þar fegurðin ein? í Hafnarhúsinu. Þau verða með leiðsögn um sýninguna í kvöld kl. 20. Þar er sjónum beint að verkum sem endurspegla tengsl Íslendinga við víðerni landsins og breytilegt verðmæta- mat gagnvart náttúrunni. Á undan leiðsögninni kl. 19 mun Ósk kynna nýútkomna bók sína Land undir fót. Bókin var unnin samtímis innsetningu Óskar á sýn- ingunni, og þar er texti ásamt rúmlega eitt hundrað stillum úr myndbandsupptökum sem Ósk tók við Hálslón við Kárahnjúka. Íslendingar og víðerni landsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Listræn Ósk Vilhjálmsdóttir kynnir bók og myndlistarverk um íslenska víðáttu. Rauða skáldahúsið held- ur í kvöld fimmtu sýningu sína, en hópurinn fagnar nú eins árs afmæli. Fer sýningin fram í Iðnó frá kl. 20-23. Rauða skáldahúsið er blanda af ljóðakvöldi, leikhúsi og kabarett, þar sem ljóðskáld selja gest- um einkalestra í náinni umgjörð. Þema sýningarinnar er Draumur á Jónsmessunótt og verða tvö aðalskáld að þessu sinni; Hall- grímur Helgason sem les upp úr þýðingum sínum á Shakespeare og austur- ríska skáldið Cornelia Travnicek sem fer með ljóð á þýsku sem verða líka flutt í enskri þýðingu Meg Matich. Einnig verður boðið upp á lifandi tónlist, dans, burlesque, sirkusatriði, töfrabrögð og tarot-spá. Svo verður barinn vitaskuld opinn. Fjölbreytt skemmtikvöld í Iðnó Gaman Ljóð, sirkus, tarot, leikhús og kabarett.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.