Morgunblaðið - 21.06.2018, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
VIÐAR
HÁGÆÐA VIÐARVÖRN
Fáanleg í PALLAOLÍU, TRÉVÖRN,
GRUNNMÁLNINGU, HÁLFÞEKJANDI
og ÞEKJANDI viðarvörn.
Litirnir eru fjölmargir og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
Komdu til okkar og spurðu um VIÐAR!
Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík • Dalshrauni 11, Hafnarfirði • Hafnargötu 54, Reykjanesbæ
Gleráreyrum 2, Akureyri • Sími 588 8000 • Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Katrín Ýr Óskarsdóttir er 37ára söngkona sem búsetter í London í Bretlandi. 15ára gömul útskrifaðist
hún úr Árbæjarskóla og eftir eitt ár í
Iðnskólanum í Reykjavík fluttist hún
til Bandaríkjanna þar sem hún bjó í
nokkra mánuði. Eftir heimkomuna
frá USA ákvað hún að drífa sig að
klára skóla. Eftir að hafa lokið námi
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti
fluttist hún aftur til Bandaríkjanna í
tvö ár, þaðan sem hún fór svo til
Bretlands til að læra söng.
„Ég hef sungið alla tíð, var í
Söngskólanum í Reykjavík og var
þess á milli að spila á stöðum eins og
Hressó og Celtic, en langaði alltaf að
gera eitthvað meira. Frændi minn
fór til London í gítarnám og ég ákvað
að fara og skoða skólann sem hann
var í. Það reyndist örlagaferð,“ sagði
Katrín Ýr sem nokkrum mánuðum
síðar var sjálf flutt til London. „Ég
ætlaði mér í fyrstu að taka eins árs
diplómanám við The Institute of
Contemporary Music (ICMP) og
koma svo heim. En þegar því lauk þá
ákvað ég að taka 3ja ára BMus-nám
og þá varð eiginlega ekki aftur snúið.
Nú hef ég búið hérna í London síð-
astliðin 12 ár og kenni hér tónlist og
söng.“
Langaði alltaf að gera meira
Katrín Ýr hefur alltaf verið við-
loðandi söng. Tók þátt í öllum
söngvakeppnum í grunnskóla og
tvisvar í Söngvakeppni framhalds-
skólanna og var í öllum söngleikjum
Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Að
námi loknu hóf hún að spila á hinum
ýmsu skemmtistöðum, svo sem
Hressó, Celtic Cross, Dubliners og
fleiri stöðum, sem og í einkapartíum,
en alltaf blundaði í henni að gera eitt-
hvað meira.
„Ég hef verið búsett hérna í
London í rúman áratug núna, en hef
verið að vinna að söng og tónlist í um
15 ár á Íslandi. Ég spila mikið í brúð-
kaupum, fyrirtækjapartíum, afmæl-
um og svo framvegis hérna í Bret-
landi, auk þess sem ég tek stundum
gigg á veitingastöðum, börum og
fleiri stöðum,“ segir Katrín Ýr.
En hvernig skyldi hefðbundinn
dagur vera í lífi þessarar atorku-
miklu konu? „Það fer allt eftir degi,
viku eða jafnvel mánuði. Ég er að
kenna söng í University of West
London einn dag í viku, kenni við
The Institute of Contempoary Music
hálfan dag í viku og í Tring Park
School for the Performing Arts einn
dag í viku,“ segir Katrín Ýr sem að
auki rekur hóp sem kallast VOX Col-
lective, en í honum er tónlistarfólk,
allt frá söngvurum og gítarleikurum
til strengjasveita og plötusnúða.
„Mitt verk er að setja saman hljóm-
sveitir og sýningar fyrir einkapartí
og skemmtistaði. Allt frá þema-
kvöldum til live partíbands með DJ.
Ég er í miklum samskiptum við þau
sem ráða okkur til þess að gera
kvöldið fullkomið.“
Setja saman sýningar og gigg
Með VOX Collective hefur
Katrín Ýr sett upp matarsýningar
sem hefur selst upp á.
„Ein vinsælasta sýningin var
OUTKAST, þar heiðruðum við goð-
sagnakenndu hipphopp-grúppuna
sem gaf út lög eins og Hey Ya, Ms.
Jackson, Rosa Parks, So Fresh So
Clean, og fleiri. Við höfum sömuleið-
is heiðrað Carole King og Madonnu,
það voru tvær mismunandi sýningar
með þremur söngkonum og
strengjasveit. Nú svo höfum við tek-
ið Nirvana-klassík með live bandi og
16 söngvurum, held að það hafi verið
í fyrsta skipti sem ég sá svokallað
„crowd surf“ á kórtónleikum.“
Katrín Ýr hefur því í nægu að
snúast. „Ég þarf oft að setja saman
sýningar og gigg fyrir VOX Collec-
tive, útsetja lög og setja saman
hljómsveitir. Ég vinn einnig við að
taka upp fyrir fólk þannig að suma
daga er ég í stúdíói.“ Ofan á þetta
allt saman hefur Katrín Ýr einnig
verið að raddþjálfa söngvara og ver-
ið með bæði vinnustofur og kennslu
bæði í Bretlandi sem og annars stað-
ar í heiminum.
Veltir fyrir sér
tónleikum á Akureyri
Og hvað skyldi svo vera á döf-
inni hjá Katrínu Ýri? „Ég er að
vinna mikið með VOX Collective og
er svona að skoða það að koma heim
til Íslands með eitthvað af þeim sýn-
ingum sem við höfum sett upp hérna
úti. Við munum spila á tónlistarhátíð
hérna í Bretlandi með Madonnu--
sýninguna okkar og svo erum við
sömuleiðis að bóka fleiri gigg í Lond-
on. Nú svo hef ég sett upp tvo Adele-
heiðurstónleika á Íslandi sem seldist
upp á, ég er að skoða dagsetningar
fyrir fleiri slíka tónleika, jafnvel
norður á Akureyri. Og á sumrin er
alltaf nóg að gera við að spila í brúð-
kaupum, afmælum og fyrirtækjap-
artíum,“ segir Katrín Ýr að lokum.
Tónlistarkona sem lifir fyrir listina
Hún lifir og hrærist í listalífinu í London. Katrín Ýr
Óskarsdóttir hefur sungið alla sína tíð og lætur nú að
sér kveða í heimsborginni. Katrín kemur víða fram
með ýmsum listamönnum sem hún hefur hug á að
kynna fyrir Íslendingum.
Ljósm/Aðsend
Músík Söngurinn er eins og rauður þráður í gegnum allt líf Katrínar Ýrar
sem hefur fest rætur í Lundúnum og starfað þar með ýmsum listamönnum.
Ljósm/Aðsend
Gleði Nóg að gera við að spila í
brúðkaupum og afmælum.
Í miklum samskiptum
við þau sem ráða okkur
til þess að gera kvöldið
fullkomið.
„Nú þegar HM stendur yfir og Íslend-
ingum gengur vel er áhugi á knatt-
spyrnu. Langt fram á kvöld er líf og
fjör á fótbolta- og sparkvöllum hér í
bænum og krakkarnir að deyja úr
spenningi,“ segir Kristinn Jónasson,
bæjarstjóri í Snæfellsbæ.
Fyrir nokkrum dögum var endur-
bættur knattspyrnuvöllur í Ólafsvík
tekinn í notkun. Þetta er keppnis-
völlur í löglegri stærð, 105 metrar x
68 metrar, með gervigrasi, öflugri
lýsingu, vökvunarkerfi og áhorfenda-
stúkum fyrir 550 manns. Samanlagt
leggur Snæfellsbær 165 milljónir kr. í
þetta verkefni sem verktakar úr Snæ-
fellsbæ höfðu að stærstum hluta
með höndum en fyrirtækið Metratron
sá um að leggja grasið. „Nú erum við
komin með fína aðstöðu sem nýtist
fyrir fótboltann væntanlega frá því í
apríl og fram í nóvember. Og þetta er
fyrir alla, hingað til hafa aðeins
meistaraflokkar karla og kvenna
mátt vera á aðalvellinum sem nú er
sem nýr. Allt hefur þetta líka mikið að
segja fyrir bæjarbraginn og eins
hvernig karlaliði Víkings, sem spilar í
1. deild, vegnar. Þess vegna teljum
við framkvæmd þessa þarfa,“ segir
Kristinn bæjarstjóri.
Endurbættur knattspyrnuvöllur í Ólafsvík í notkun
Í fótbolta langt fram á kvöld
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Opnun Gylfi Scheving, til vinstri, og Gunnar Gunnarsson, þekktir fótbolta-
kappar frá fyrri tíð í Ólafsvík, klipptu á borðann með góðri aðstoð.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Ólafsvík Knattspyrna kætir krakka.
Í kvöld, fimmtudaginn 21. júní, verður
efnt til sólstöðugöngu í Viðey í tilefni
af því að nú er sólargangur lengstur
hér á norðurhveli jarðar. Þór Jakobs-
son, veðurfræðingur og einn af upp-
hafsmönnum þessarar göngu, mun
segja frá sólstöðum og hefðum
tengdum þeim. Gerður Kristný verður
með hugvekju í göngunni sem Guð-
brandur Benediktsson, safnstjóri
Borgarsögusafns, fer fyrir.
Gengið verður um sögulegar slóðir
á vesturhluta Viðeyjar og staðnæmst
í fjöruborðinu við varðeld. Gönguleið-
in er hæfileg og að mestu á sléttu
undirlagi. - Siglt verður frá Skarfa-
bakka kl. 20:00 og til baka ekki
seinna en kl. 23.
Sumarsólstöðuganga í Viðey
Hugvekja og
varðeldur
Morgunblaðið/Ómar
Viðey Regnboginn á óskastund.
Fimmtánda lands-
mót Fornbíla-
klúbbs Íslands
verður á Selfossi
um helgina. Mótið
verður sett á
föstudagskvöld
en skv. venju
verður laugardag-
urinn helgaður
kynningum á bíl-
um og þá verður
markaður með handverk, vöfflur,
varahluti og fleira. Tjaldsvæðið á Sel-
fossi verður allt frátekið fyrir félaga
fornbílaklúbbsins þessa helgi. Upp-
lýsingar um dagskrá og mótið er að
finna á: www.fornbill.is og á www.fa-
cebook.com/fornbill/.
Fornbílamót á Selfossi
Bílar til sýnis
Fornbíll Mikil
glæsikerra.