Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 18

Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Fækkaðu hleðslu- tækjunum á heimilinu, skrifstofunni eða sumar- bústaðnum. Tengill með USB HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Bergþór Grétar Böðvarsson, Reykvíkingur ársins, landaði fyrsta laxinum í blíðviðri í Elliða- ánum. „Ég er ekki mikill veiði- maður og þetta er fyrsti laxinn sem ég veiði. Það gekk samt furðu vel að landa honum. Þetta tók bara fimm mínútur, og sem betur fer, ég hafði miklar áhyggjur af því að mæta seint í vinnuna,“ seg- ir Bergþór og hlær. Bergþór Grétar segir það hafa verið skrýtna tilfinningu að verða Reykvíkingur ársins, en hann er úr Kópavogi: „Ég er fæddur og uppalinn í Kópavogi, og hef taugar þangað, og brá aðeins þegar ég fékk símtalið um að ég væri Reyk- víkingur ársins. En það má víst telja mig Reykvíking, ég hef búið hér í 20 ár,“ segir Bergþór og skellihlær. Fótboltadraumur rættist Bergþór hefur hlotið viðurkenn- ingu fyrir ötult starf sitt sem tals- maður fyrir geðsjúka, en hann hlaut hvatningarverðlaun ÖBÍ í flokki einstaklinga fyrir að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri um- ræðu um geðsjúkdóma á Íslandi. Bergþór ólst upp í vesturbæ Kópavogs og æfði og spilaði fót- bolta með Breiðabliki fram til 15 ára aldurs. Í dag er hann þjálfari knattspyrnuliðsins FC Sækó en starfar hjá batamiðstöðinni hjá Landspítalanum við Klepp. Berg- þór segir það gamlan draum að spila í fótboltadeild, en liðið spilar í utandeild og æfir nokkrum sinn- um í viku. Ákveðnir fordómar til staðar FC Sækó er knattspyrnulið sem hófst sem samstarfsverkefni Hlut- verkaseturs, Velferðarsviðs og geðsviðs LSH en er í dag sjálf- stætt íþróttafélag. Er tilgangur þess að efla og auka virkni fólks með geðraskanir, sem og draga úr fordómum, segir á vefsíðu fót- boltafélagsins. Bergþór segir að starfsemi félagsins hafi vakið ein- hverja athygli frá því að hann var útnefndur Reykvíkingur ársins. „Það er aðeins búið að spyrjast út og fólk hefur verið að spyrja hvort það megi vera með. En svo hefur maður einnig heyrt af því að nafn- ið fæli einhverja frá, það eru ákveðnir fordómar til staðar. En það er það sem við erum að reyna að brjóta niður líka.“ Þá hefur liðið vakið athygli utan landsteinanna. Evrópska knatt- spyrnusambandið hefur m.a. sýnt því áhuga og munu fulltrúar þess koma til landsins eftir að HM lýk- ur til að fjalla um grasrótarverk- efni í fótbolta í Evrópu. „Það er mikil viðurkenning fyrir mig og okkur að þeir skuli tala beint við okkur,“ segir Bergþór og bætir við að FC Sækó sé öllum opið og allir séu velkomnir á æfingu. Reykvíkingur ársins landaði laxinum  Talsmaður uppbyggilegrar umræðu um geðsjúkdóma Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Maríulax Bergþór Grétar Böðvarsson, Reykvíkingur ársins, landaði fyrsta laxinum í Elliðaánum í morgun. Þetta er fyrsti laxinn sem hann veiðir. Ljósmynd/FC Sækó Ástríða Bergþór æfði lengi fótbolta og þjálfar í dag FC Sækó. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Já, þetta er óneitanlega glæsileg sveit. Það er gaman að geta sent okkar besta lið út og ég veit að þeir gera sitt besta til að ná góðum árangri,“ segir Gunnar Björns- son, forseti Skák- sambands Ís- lands, sem í fyrsta sinn í meira en tvo ára- tugi sendir ein- göngu stórmeist- ara á ólympíu- mótið í skák. Mótið fer fram við strendur Svarta- hafsins, í Batumi í Georgíu, dagana 24. september til 5. október. Helgi Áss Grétarsson, sem varð Íslands- meistari í skák fyrir skemmstu, teflir á sínu fyrsta ólympíuskákmóti í 16 ár. Jóhann Hjartarson gefur kost á sér en þrátt fyrir að vera ekki atvinnuskákmaður hefur Jó- hann teflt töluvert síðustu misseri og er núverandi Norðurlandameist- ari í skák. Auk þeirra eru atvinnuskák- mennirnir Héðinn Steingrímsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Hannes Hlífar Stefánsson í liðinu, sem telur fimm manns. Liðsstjóri verður sjötti stórmeistarinn, Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskólans, sem jafnframt valdi liðið. Gunnar segir að Helgi verði með landsliðsæfingar í sumar og haust en allir skákmennirnir muni halda sér í formi með þátttöku á skákmót- um erlendis næstu vikurnar. Íslenska kvennalandsliðið á mótinu var tilkynnt á þriðjudaginn, kvennadaginn 19. júní sl. Það skipa eftirtaldar: Lenka Ptácníková, Guð- laug Þorsteinsdóttir, Nansý Davíðs- dóttir, Jóhanna Björg Jóhanns- dóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir. Nansý, sem er 16 ára, er að tefla á sínu fyrsta ólymp- íuskákmóti. Allar hinar eru hins vegar þrautreyndar landsliðskonur. Liðsstjóri verður FIDE-meistarinn Björn Ívar Karlsson. Íslendingar tóku fyrst þátt í þriðja ólympíuskákmótinu, sem haldið var í Hamborg 1930. Íslensk- ir skákmenn höfðu þá ekki áður teflt á alþjóðlegu móti. Sveitin var skipuð Eggert Gilfer, Ásmundi Ás- geirssyni, Einari Þorvaldssyni og Jóni Guðmundssyni. Hún lenti í 15. sæti af 18. Morgunblaðið/Ómar Skák Norðurlandameistarinn Jóhann Hjartarson hugsi yfir næsta leik á Reykjavik Open fyrr á þessu ári. Hann verður í liðinu á mótinu í Batumi. Bara stórmeistar- ar á ólympíumótið  Helgi Áss með í fyrsta sinn í 16 ár Gunnar Björnsson Umsóknarfrestur um stöðu skóla- meistara við Framhaldsskólann á Húsavík og Verkmenntaskóla Aust- urlands rann út hinn 11. júní. Tvær sóttust eftir stöðu skólameistara á Húsavík en ein í Neskaupstað, segir á mbl.is. Þær Herdís Þ. Sigurðar- dóttir, settur skólameistari, og Val- gerður Gunnarsdóttir skólameist- ari sóttust eftir stöðunni við Framhaldsskólann á Húsavík. Mennta- og menningarmálaráðu- neytinu barst ein umsókn um stöðu skólameistara við Verkmennta- skóla Austurlands frá Lilju Guð- nýju Jóhannesdóttur framhalds- skólakennara. Miðað er við að skipað verði í embættið til fimm ára frá og með 1. ágúst næstkomandi. Þrjár sóttu um skólameistarastöður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.