Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 20

Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Kæra á þessum tímapunkti hefur nú þegar haft miklar fjárhagslegar af- leiðingar fyrir HS Orku og sett allt verkefnið í hættu. Verkefni sem mun bæta orkuöryggi á svæðinu og efla ör- yggisviðbúnað á Suðurlandi og há- lendinu. Verkefni sem sátt hefur verið um í sveitarstjórn, meðal landeigenda og hafði farið án mikilla athugasemda í gegnum umhverfismat og skipulags- ferli,“ segir Ásgeir Margeirsson, for- stjóri HS Orku, um stöðu áforma um Brúarvirkjun í efrihluta Tungufljóts. Fyrirtækið hefur í mörg ár undir- búið Brúarvirkjun í Biskupstungum en hún á að verða 9,9 MW rennslis- virkjun. Hefur félagið átt um það gott samstarf við landeigendur sem eru Skógrækt ríkisins vegna jarðarinnar Haukadals og bændur á bænum Brú. Samið um mótvægisaðgerðir Vegna þess að virkjunin er undir 10 MW afli þarf hún ekki að fara í um- hverfismat. HS Orka ákvað eigi að síður í upphafi að fara þá leið, í þeim tilgangi að vanda til verka við und- irbúning, opna aðkomu fyrir alla hagsmunaaðila og bregðast við þeim athugasemdum sem fram gætu kom- ið. Niðurstaða umhverfismats var sú að framkvæmdin myndi hafa talsvert neikvæð áhrif vegna þess að eyða þurfi birkiskógi á um fjórum hektur- um lands og raska votlendi. Einnig voru talsvert neikvæð áhrif á ásýnd frá frístundabyggð á bökkum Tungu- fljóts. HS Orka brást strax við þeim atrið- um sem hægt var. Samdi við Skóg- ræktina um að rækta birkiskóg í stað- inn fyrir trén sem þurfa að víkja og um að endurheimta votlendi. Þá var samið við Náttúrufræðistofnun um vöktun á straumöndum. Fyrsta skóflustungan tekin Umhverfismat og skipulagsferli hefur tekið langan tíma og var kynnt opinberlega á ýmsum stigum en eng- ar efnislegar athugasemdir komu fram. HS Orka hefur því undirbúið framkvæmdir í góðri trú og aflað allra nauðsynlegra leyfa. Meðal ann- ars hefur Orkustofnun gefið út virkj- analeyfi og Heilbrigðiseftirlit Suður- lands starfsleyfi. Síðasta leyfið er framkvæmdaleyfi sem sveitarfélagið Bláskógabyggð gefur út. Fyrirtækið fékk leyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum snemma vors á síðasta ári, án athuga- semda, og er þeim framkvæmdum lokið að mestu. Ásgeir segir að þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við framkvæmdaleyfi undirbúnings- framkvæmda hafi HS Orka metið stöðuna þannig að almenn sátt væri um framkvæmdina og hóf útboðsferli innkaupa og mannvirkjagerðar. HS Orka sótti um leyfi til fram- kvæmda í byrjun september og sam- þykkti sveitarstjórn það í október. Kayakklúbburinn og Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðurlands sameiginlega kærðu útgáfu leyfisins. Sveitarstjórn ákvað þá að afturkalla leyfið, bæta úr þeim ágöllum í máls- meðferð sem bent var á, og gaf leyfið út að nýju í byrjun febrúar síðastlið- ins. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði frá kærum á fyrra framkvæmdaleyfið þar sem það hafði verið afturkallað. Þegar seinna leyfið hafði verið gef- ið út hófust framkvæmdir með því að Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, tók fyrstu skóflustungu að byggingu virkjunarinnar. Frétt um þann at- burð í Morgunblaðinu varð til þess að Landvernd og Náttúruverndarsam- tök Suðurlands kærðu sameiginlega útgáfu seinna framkvæmdaleyfisins og kröfðust þess jafnframt að fram- kvæmdir yrðu stöðvaðar. Sakna rannsókna Samtökin krefjast ógildingar fram- kvæmdaleyfisins, meðal annars vegna þess að ekki hafi verið sýnt fram á að brýnir almannahagsmunir krefjist framkvæmdarinnar, eins og þurfi að gera þegar náttúruminjum sem njóta verndar, eins og birkiskóg- um og votlendi, er eytt. Þá telja sam- tökin að Bláskógabyggð hafi brotið rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar með því að fullnægja ekki rannsókn- arskyldu á mögulegum áhrifum fram- kvæmdarinnar á eitt helsta vatnsból sveitarfélagsins. Telja þau að jarð- fræðirannsóknir séu afar takmarkað- ar, meðal annars um hugsanleg áhrif á grunnvatnskerfi Geysissvæðisins. Þá telja þau framkvæmdina vera í al- gerrri andstöðu við ákvæði gjafabréfs Kristian Kirk sem ánafnaði Skóg- rækt ríkisins jörðina Haukadal til friðunar og skógræktar. Óleyfilegt sé að eyða fimm hekturum af birkiskógi þar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála taldi ekki ástæðu til að stöðva framkvæmdir en efnisatriði kærunnar eru enn til umfjöllunar hjá nefndinni. Það kemur Ásgeiri Margeirssyni spánskt fyrir sjónir að náttúruvernd- arsamtökin færi það fram sem rök fyrir kröfu um stöðvun framkvæmda að það hefði komið þeim á óvart að framkvæmdir væru hafnar. Bendir á í því sambandi að samtökin hafi kært fyrra framkvæmdaleyfið nokkrum vikum fyrr og útboð framkvæmd- anna hefðu verið auglýst opinberlega. Landvernd hafi einnig vitað um um- hverfismatið en kosið að tjá sig ekki um það. Þá telur hann að þau rök fyrir ógildingu framkvæmdaleyfisins að rannsóknir skorti bendi til að kær- endur hafi ekki kynnt sér þann fjölda rannsókna og gagna frá ótal sérfræð- ingum sem liggi til grundvallar út- gáfu framkvæmdaleyfisins. Öll gögn málsins séu aðgengileg. „Erfitt er að meta hvað liggur að baki þessari kæru en fagmennska er ekki fyrsta orðið sem kemur upp í hugann,“ segir Ásgeir. Gegn grunnsjónarmiðum Ásgeir telur að þetta ferli og al- menn umgjörð framkvæmda sé um- hugsunarefni. „Það er undarlegt að hægt sé að kæra framkvæmd með til- heyrandi kostnaði fyrir fram- kvæmdaraðila, án haldbærs rök- stuðnings. Ekki virðist heldur vera gerð sú lágmarkskrafa til kærenda að þeir kynni sér fyrirliggjandi gögn sem unnin hafa verið á undirbúnings- tímanum. Langt og ítarlegt ferli er í skipulagslögum og lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda til að hagsmunaaðilar geti komið með athugasemdir á undirbúningstíman- um. Sú aðferð að hreyfa ekki neinum andmælum á kynningarstigi gefur til kynna að viðkomandi aðilar séu sam- þykkir ferlinu eða framkvæmdunum. Það að koma með kærur á lokastigi mats- og skipulagsferlis, fram- kvæmdaleyfið, gengur gegn grunn- sjónarmiðum um kynningu og sam- ráð sem lögin byggjast á,“ segir Ásgeir og telur ljóst að þessu fyrir- komulagi þurfi að breyta. HS Orka hefur haldið áfram und- irbúningi. Framkvæmdaleyfi er í fullu gildi svo og önnur leyfi sem þarf til verksins. Fyrirtækið skoðar nú hvort framkvæmdum skuli haldið áfram þótt um það ríki fjárhagsleg óvissa vegna kærunnar. Kærur á lokastigi valda usla  Kærur vegna framkvæmdaleyfis sveitarfélagsins valda töfum á Brúarvirkjun þótt öll leyfi séu í höfn  Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, segir að ferill málsins sýni að breyta þurfi fyrirkomulaginu Tungufljót Brúarvirkjun er tiltölulega lítil rennslisvirkjun í efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum, á milli jarðanna Haukadals og Brúar. Rafmagnið verð- ur leitt í Reykholt og getur því nýst garðyrkjubændum og öðrum stórnotendum á svæðinu. Það er talið auka afhendingaröryggi raforku á svæðinu. Framkvæmdir Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra tók fyrstu skóflustung- una. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, kynnir verkefnið. Ármúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.