Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Lífrænar mjólkurvörur
í fimmtán ár
Í fimmtán ár hefur Biobú framleitt lífrænar mjólkurvörur sem notið hafa mikilla vinsælda. Vöruflokkum hefur fjölgað ár frá ári
og sífellt bætast við spennandi og girnilegar nýjungar. Öll mjólk í okkar afurðir kemur frá tveimur búum, þ.e. Búlandi í Austur
Landeyjum og Neðra Hálsi í Kjós. Framleiðsla Biobú fer fram samkvæmt ströngustu reglum um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Kynnið ykkur vöruúrvalið á heimasíðu okkar, www.biobu.is.
Lífrænar
mjólkurvörur
www.biobu.is298.1
23
/0
5.
18
Fyrir 35 árum stóð
sjö ára stelpuskott og
tilkynnti þeim sem
heyra vildu að hún ætl-
aði sko að verða ljós-
móðir þegar hún yrði
stór. Ekki búðarkona
eða klippingakona, nei
ljósmóðir. Stefnan var
sett. Rúmum 20 árum
síðar varð draumurinn
að veruleika. Með sex
ára háskólanám í farteskinu réð
stelpuskottið, sem ekki var svo
mikið skott lengur heldur gift
tveggja barna móðir, sig til starfa.
Ljósmóðurstarfið er einstakt.
Ólíkt öllu öðru. Að vera við upphaf
lífs. Að sjá barn draga andann í
fyrsta skipi er upplifun í hvert ein-
asta skipti og fyllir þá sem hjá
standa einskærri gleði og trú á líf-
ið.
Enda gleypti starfið hina nýút-
skrifuðu ljósmóður. Starfsánægjan
var svo mikil að skítalaun skiptu
ekki miklu máli fyrstu mánuðina.
En svo fór raunveruleikinn að bíta.
Í lífinu er ekkert gefið. Systurnar
gleðin og sorgin sýna sig. Með auk-
inni þekkingu og reynslu kom líka
aukin ábyrgð. Ábyrgðin svo mikil á
stundum og svo þung að stúlkan
var við að sligast. Álagið yfirdrifið.
Jól og áramót, páskar og helgar
svo ekki sé talað um næturnar sem
vakað er meðan aðrir sofa. Hægt
og rólega upplifði ljósmóðirin að
framlagið og ábyrgðin eru engan
veginn metin til launa.
Það vantar ljós-
mæður til starfa.
Svarið er ekki að
fjölga útskrifuðum
ljósmæðrum þegar
einungis þriðjungur
þeirra sem útskrifast
sér sér fært að hefja
störf eftir nám. Það
eru liðin rúm 12 ár
síðan ljósmóðirin hóf
störf. Hinn 30. júní
vinnur hún sína síð-
ustu vakt. Hinn 1.
júlí tekur uppsögn hennar og 12
annarra ljósmæðra gildi. Nú er
kjörið tækifæri fyrir ríkisstjórn
Katrínar Jakobsdóttur að standa
við stóru orðin um leiðréttingu
launamunar kynjanna og fylgja lög-
um og hvar betra að byrja en á
hreinni kvennastétt sem hefur bar-
ist fyrir launum sínum í 267 ár!
Ljósmóðirin á lítið sjö ára stelpu-
skott. Hún tilkynnti móður sinni á
dögunum að hún ætlaði sko að
verða ljósmóðir þegar hún yrði
stór. Ég berst því ekki bara fyrir
mínum launum heldur líka fyrir
dóttur mína, sem á skilið sömu laun
fyrir sambærilega vinnu og bræður
hennar þrír.
Við ljósmæður segjum hingað og
ekki lengra!
Draumur sem
varð að veruleika
– eða hvað?
Eftir Guðrúnu
Pálsdóttur
»Hinn 1. júlí taka
uppsagnir
ljósmæðra gildi.
Guðrún Pálsdóttir
Höfundur er ljósmóðir.
Rannsóknir staðfesta
að hreyfing er einn af
lykiláhrifaþáttum heil-
brigðis á öllum ævi-
skeiðum.
Það er mikilvægt
verkefni að sporna gegn
kyrrsetulíferni og stuðla
að því að sem flestir
landsmenn, á öllum
aldri, hreyfi sig í sam-
ræmi við ráðleggingar
um hreyfingu. Það er
gert með því að horfa til þeirra fjöl-
mörgu þátta sem hafa áhrif á daglega
hreyfingu, m.a. í tengslum við ferða-
máta, vinnu og skóla, frítíma og heim-
ilisverk. Ganga er góð hreyfing og er í
senn bæði einföld og ódýr. Auðvelt er
að fara í daglegar gönguferðir út frá
heimili eða vinnustað og víða má finna
góða göngustíga í nærumhverfinu.
Gönguferðir úti í náttúrunni og til
fjalla eru gefandi og skemmtilegar og
fjallgöngur eru meira krefjandi og
auka þol og þrek göngufólks til muna.
Það er frábær tilfinning að standa á
fjallstindi eftir góða göngu. Finna
fjallaloftið fylla lungun, njóta fjöl-
breytilegs og stórbrotins útsýnis,
finna fyrir einhvers konar sigurtilfinn-
ingu eftir krefjandi göngu og ekki síst
njóta þessa alls í góðum félagsskap.
Þannig eru áhrifin af góðri gönguferð
margvísleg, bæði á líkama og sál. Mik-
ilvægt er þó að muna eftir því að byrja
ávallt hægt og rólega og byggja smám
saman upp þrek og styrk.
Regluleg hreyfing hefur fjölþættan
ávinning fyrir heilsuna eins og vís-
indarannsóknir staðfesta. Þeir sem
hreyfa sig reglulega minnka meðal
annars líkurnar á að fá krans-
æðasjúkdóma, heilablóðfall, sykursýki
af tegund 2, sumar tegundir krabba-
meina, stoðkerfisvandamál og geð-
röskun. Umfram allt eykur regluleg
hreyfing líkurnar á að
fólk lifi lengur og við
betri lífsgæði en annars.
Takmörkuð gögn
liggja fyrir um hreyf-
ingu Íslendinga í áranna
rás og því er erfitt að
segja til um hvernig
þróunin hefur verið á
síðustu árum og áratug-
um. Kannanir benda þó
til að meirihluti fullorð-
inna hreyfi sig ekki í
samræmi við ráðlegg-
ingar um hreyfingu og
ýmsar vísbendingar eru
um að kyrrseta hafi aukist í daglegu
lífi landsmanna. Má þar nefna vaxandi
ofþyngd meðal fólks og stóraukna
bílaeign. Hreyfing minnkar með
hækkandi aldri, stúlkur hreyfa sig
minna en drengir, taka síður þátt í
íþróttastarfi og detta fyrr út úr slíku
starfi. Ungmenni af báðum kynjum
hreyfa sig minna um helgar en á virk-
um dögum og langvarandi kyrrseta
við afþreyingu við sjónvarps- og tölvu-
skjái er áhyggjuefni.
Hollt mataræði er hluti af heil-
brigðum lifnaðarháttum Góð næring
og dagleg hreyfing er nauðsynleg
undirstaða heilbrigðs lífs. Hollur mat-
ur, hæfilegt magn og reglulegar mál-
tíðir eru grundvöllur góðra mat-
arvenja. Þar er mikilvægt að velja
fjölbreytta fæðu í hæfilegu magni og
þá fyrst og fremst matvæli sem eru
rík af næringarefnum, svo sem græn-
meti, ávexti, gróft kornmeti, belgjurt-
ir, fituminni mjólkurvörur, fisk,
þorskalýsi, magurt kjöt og fleira. Góð-
ar matarvenjur eru svo aftur und-
irstaða þess að fólk hafi orku og löng-
un til þess að hreyfa sig.
Góð heilsa íbúa er forsenda sjálf-
bærs velferðarkerfis. Vegna sam-
félagslegra og lýðfræðilegra viðfangs-
efna er nauðsynlegt að efla aðgerðir á
sviði lýðheilsu, m.a. til að koma í veg
fyrir langvinna sjúkdóma og heilsu-
tjón. Góð lýðheilsa hefur jákvæð áhrif
á samkeppnishæfi landa, hagvöxt og
nýsköpun. Stjórnvöld á Íslandi og þar
með talin heilbrigðisyfirvöld hafa
mikil ónýtt tækifæri í samstarfi við
fjölmörg félagasamtök og grasrótina
til að efla hreyfingu landsmanna og
stuðla þannig að bættri heilsu land-
ans. Hiklaust ætti að setja meira fjár-
magn í forvarnarstarf sem myndi
leiða til stóraukinnar hreyfingar og
heilbrigðari lífsstíls fólks.
Heilsa og vellíðan fólks er nátengd
góðu umhverfi. Tækifæri til fjöl-
breyttrar útivistar og aðgengi að
grænum svæðum eru þættir sem
hafa áhrif á vellíðan fólks. Það eykur
einnig skilning á þeim aðgerðum og
atferlisbreytingum sem þróun í átt að
sjálfbærni krefst. Á fáum stöðum í
heiminum er eins gott aðgengi að
náttúrunni og á Íslandi. Enda er það
svo að sífellt fleiri stunda gönguferðir
sér til heilsubótar.
Góð heilsa er eitt það mikilvægasta
sem hver einstaklingur á. Því þurfum
við að hugsa vel um okkur, hreyfa
okkur mikið og reglulega, borða hollt
og ástunda heilbrigðan lífsstíl. Láttu
matinn verða meðalið þitt og meðalið
vera matinn, var setning sem Hippó-
krates, faðir læknisfræðinnar, sagði
fyrir meira en tvö þúsund árum.
Þannig getum við sjálf valið heil-
brigðan lífsstíll til að stuðla að góðri
heilsu og vellíðan.
Sjálfbær heilsa
Eftir Pál
Guðmundsson » Það er mikilvægt
verkefni að sporna
gegn kyrrsetulíferni og
stuðla að því að sem
flestir landsmenn, á öll-
um aldri, hreyfi sig
reglulega.
Páll
Guðmundsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
FÍ.