Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það sem þú gerir í vinnunni í dag
getur aukið tekjur þínar og bætt framtíð
þína með einhverjum hætti. Varastu að
grípa inn í mál sem þú þekkir lítið til.
20. apríl - 20. maí
Naut Samræður við yfirboðara af ein-
hverju tagi gætu skipt máli. Vertu ekki
hræddur við að taka málin í þínar hendur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur haft mikið að gera að
undanförnu og þarft því á hvíld að halda.
Ef þú ferð ekki vel með þig nýtist þú eng-
um.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Breytingar standa fyrir dyrum sem
gefa þér tækifæri til að sýna hvers þú ert
megnugur. Reyndu að taka ekki allar
heimsins áhyggjur inn á þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú væri réttast að hugsa um þá
stefnu sem líf þitt hefur tekið. Ekkert
hreinsunarátak er þér ofviða í dag og allt á
að ganga eins og smurt að þínu mati.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er kominn tími til að fara út,
hitta skemmtilegt fólk eða finna sér nýtt
áhugamál. Mundu samt að blanda ekki
saman atvinnu og einkalífi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst athygli annarra beinast að
þér í of ríkum mæli. Farðu varlega og
sýndu fólkinu í kringum þig sérstaka þol-
inmæði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vandkvæði í vinnunni koma
upp því þú hefur ekki áhuga á verkefninu
þínu. Forðastu illdeilur við aðra vegna
þessa.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er komið að því að þú verð-
ur að taka afstöðu til þeirra mála sem
skipta sköpum fyrir framtíðina. Ekki halda
aftur af þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sambönd eru ekki svo flókin
þegar þú veltir þeim fyrir þér. Láttu það
ekki slá þig út af laginu, þótt vinur þinn
virki mjög annars hugar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Tilfinningar þínar eru svo sterk-
ar og vilji þinn til að fela þær svo lítill að
þú ert eiginlega opin bók. Vertu óhræddur
við það því hamingjan er með þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú reynir á sveigjanleika í sam-
skiptum þínum við nákomna. Ekki útiloka
þá sem eru á öndverðum meiði.
Ákvennadaginn 19. júní áttikerlingin á Skólavörðuholtinu
afmæli og af því tilefni orti hún sér
þessa vísu:
Líð ég um sem ljúfur þytur,
lokkaflóð sem bráðið gull.
Körlum finnst ég klár og vitur
kynæsandi og þokkafull.
Svo ákvað hún að splæsa þessari
á sig líka en báðar eru vísurnar
sannar og réttar:
Glimrandi hef gáfur fínar,
gegnheilt þel og skinn,
undrar marga að ekkert dvínar
æskuljómi minn.
Ég hitti karlinn á Laugaveginum
og rétt náði að varpa á hann orði
áður en hann þaut upp Skólavörðu-
stíginn svo sönglandi:
Eru í henni artir fínar.
Ei er að slíku að gá.
Og ég sé að ekki dvínar
æskuljóminn sá!
Og hvorki kvaddi né leit um öxl.
„Ástríðugolfarinn“ er sérstök
manntegund sem þessi limra Helga
R. Einarssonar lýsir og við könn-
umst mörg við þó við sjáum ekki
sjálf okkur í henni!:
Rögnvaldur skildi’ ekki roluna
sem af ræfilsskap þoldi’ ekki goluna.
Kúluna sló
af kæti svo hló
því í höggi hún beint fór í holuna.
Anton Helgi Jónsson yrkir á
Boðnarmiði:
Ég skil vel að gleðjist nú gumar
við grillið með sveppi og humar
og kaldranann hér
þeir klæði af sér
því komið er hávaðasumar.
Guðmundur Arnfinnsson heyrði í
spjallþætti útvarpsins:
Betra er að gera það hratt en hægt,
ef hér á að fjölga sonum,
gerðu það annars, vinur, vægt,
viljirðu fjölga konum.
Sigurlín Hermannsdóttir segir
fréttir frá Rússíá:
Bolti vítt um völlinn fló
Volgugarðs á bökkum.
Messa-gutti og moskító
og menn að hlaupa á tökkum.
Guðmundur Arnfinnsson heldur í
vonina:
Í Volgógrað má venjast því,
vargurinn þó svekki,
að þetta er bara meinlaust mý,
en moskítóflugur ekki.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Afmæli kerlingar og
fréttir frá Rússíá
„ÞETTA ER HIMNARÍKI EÐA HELVÍTI –
EFTIR ÞVÍ HVERSU VILJUGUR ÞÚ ERT AÐ
AÐLAGAST BREYTTU UMHVERFI.“
„HÉRNA SÉRÐU, SONUR SÆLL, AÐ GRASIÐ
ER EKKI ALLTAF GRÆNNA HINUM MEGIN
GIRÐINGARINNAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að lifa í voninni!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
NÚ ER KOMIÐ AÐ HAGNÝTUM
HÚSRÁÐUM GRETTIS
ER ÍSKRANDI HURÐ
TIL LEIÐINDA?
GEFÐU KETTINUM
ÞÍNUM ÞÁ LASAGNA!
ÞJÓNN, ERTU VISS UM AÐ
ÞETTA SÉ NAUTAKJÖTSKÁSSA?
AÐ SJÁLFSÖGÐU!
HVÍ SPYRJIÐ ÞÉR
EIGINLEGA?
Íslenska karlalandsliðið í knatt-spyrnu hefur enn og aftur náð að
gleðja landann með glæsilegri
frammistöðu sinni gegn Argentínu á
heimsmeistaramótinu, sem nú fer
fram í Rússlandi. Raunar hafði
Víkverji spáð því að Íslendingar
gætu strítt Argentínumönnum, og í
„tippleik“ vinnustaðarins voru
grunsamlega margir sem höfðu spáð
nákvæmlega rétt um úrslitin.
x x x
Strákarnir okkar hafa sýnt aðþeim eru allir vegir færir, svo
lengi sem þeir vinna saman og halda
uppi öguðum varnarleik. Samstaða
og trú á verkefnið skipta ekki síður
máli og liðið allt berst saman sem
einn maður.
x x x
Landsliðið hefur hins vegar ekkifengið það hrós sem Víkverji tel-
ur það eiga skilið fyrir sóknarleik
sinn. Andstæðingar liðsins einblína
svo mjög á vörnina, að þeir átta sig
ekki á því að þegar strákarnir okkar
fá plássið fram á við geta þeir verið
skæðir. Liðið hefur til dæmis skorað
í öllum leikjum sínum á stórmóti til
þessa, og geri aðrir betur!
x x x
Argentínumenn fengu til að myndaað finna fyrir því, en augljóst
var af fagnaðarlátum þeirra, að þeir
töldu sig með unninn leik um leið og
Sergio Agüero náði að hamra hann
stórglæsilega upp í hornið. Annað
kom hins vegar á daginn, enda náðu
Íslendingar góðum takti í sókninni,
og hefðu jafnvel getað skorað fleiri.
x x x
Nígeríumenn eru síðan næstir ádagskrá, en sá leikur gæti farið
langt með að skera úr um það hvort
Ísland eigi möguleika á að komast
upp úr riðlinum.
x x x
Dagurinn í dag mun ekki síðurskipta máli hvað það varðar, en í
kvöld mætast Argentínumenn og
Króatar, og úrslitin í þeim leik geta
haft umtalsverða þýðingu upp á
framhaldið. Örlög Íslands eru hins
vegar alltaf í okkar höndum. Áfram
Ísland! vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn
kross og fylgir mér getur ekki verið
lærisveinn minn.“
(Lúkasarguðspjall 14.27)