Morgunblaðið - 05.07.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.07.2018, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Úrskurður Karolinsku stofnunar- innar (Karolinska Institutet – KI) vegna plastbarkamálsins svonefnda hefur vakið viðbrögð í Svíþjóð. Úr- skurðurinn var birtur 25. júní sl. og hefur verið greint frá honum í Morgunblaðinu og á mbl.is. Gagn- rýnendur segja m.a. að KI reyni að bjarga eigin skinni í úrskurðinum, hann veki margar spurningar og að viðbrögð KI gagnvart uppljóstr- urum málsins kunni að kippa fót- unum undan frekari uppljóstrunum í framtíðinni. Uppljóstrarinn ásakaður Karolinska stofnunin reynir að bjarga eigin skinni í plastbarkamál- inu með úrskurði sínum, að mati Karls-Henriks Grinnemos, skurð- læknis og aðstoðarprófessors við KI. Hann er í hópi sex vísinda- manna, þar á meðal íslensks læknis, sem KI sakaði um misferli í rann- sóknum vegna plastbarkamálsins, auk ítalska skurðlæknisins Paolos Macchiarinis. Grinemo er einnig einn fjögurra uppljóstrara sem ásökuðu Macchi- arini árið 2014 vegna gruns um vís- indalegt misferli. Sænska lækna- blaðið (Läkartidningen) birti viðtal við Grinnemo 25. júní. Grinnemo er mjög gagnrýninn á ákvörðun KI og segir að yfirlýsingin sé enn eitt skrefið í refsimenningu KI. Hann telur að þar á bæ reyni menn að bjarga eigin skinni með því að hjóla í þá sem vöktu athygli á misferli Macchiarinis. Grinnemo var einn meðhöfunda greinarinnar í Lancet 2011. Hann kvaðst hafa skrifað skýrsluna þegar sjúklingurinn sem um ræðir útskrif- aðist eftir mánaðardvöl á Karolinska háskólasjúkrahúsinu. Grinnemo segir að sú samantekt sé rétt. Grein- in hafi verið send til New England Journal of Medicine. Síðan var hún send til Lancet og þá hafi Macchi- arini breytt texta sjúkrasögunnar samkvæmt því sem Grinnemo taldi að væri rétt. Sjúklingurinn dvaldi þá á Íslandi og Grinnemo kvaðst ekki hafa haft hugmynd um hvernig hon- um leið, en treysti því að Macchi- arini færi með rétt mál. Það var ekki fyrr en Grinnemo og aðrir uppljóstr- arar skoðuðu málið 2013 að þeir sáu að þetta stemmdi ekki. Aðspurður hvernig hann telur að KI hefði átt að bregðast við segir Grinnemo að KI hefði ekki átt að ákvarða um málið. Það sé eins og að láta þjálfara andstæðingsins í knatt- spyrnuleik ákvarða hvort um víti sé að ræða eða ekki. KI hafi sýnt að stofnunin hafi ekki verið til þess bær að taka eina einustu skynsamlega ákvörðun í þessu máli. Grinnemo kveðst ekki vita hvernig sé hægt að áfrýja þessu, en síðasta orðið hafi ekki verið sagt í málinu. Vekur margar spurningar Carl-Magnus Hake, vísindarit- stjóri hins sænska Dagens Medicin (DM), segir að það hafi ekki komið á óvart að Ole Petter Ottersen, rektor KI, hafi að lokum hafnað vísinda- greinunum sem lýstu plastbarka- aðgerðum Paolos Macchiarinis á Karolinska háskólasjúkrahúsinu. Ábyrgð meðhöfunda hans sé um- deildari. Allir beri þeir einhverja ábyrgð en spurningin sé hvar mörk misferlisins liggi. Þetta kemur fram í skoðanapistli sem Hake skrifar 29. júní í DM um að úrskurður Karolinsku stofnunar- innar (KI) í Macchiarini málinu veki margar spurningar. Hann segir m.a. að rannsókn DM á málinu sýni að gegnumgangandi gagnrýni á meint- ar ósanngjarnar tímasetningar hafi verið röng, sem ætti að fría vissa meðhöfunda frá ásökunum. Fleira veki spurningar. Álitsgerðin ein- kennist af eftirávisku. Meðhöfundar séu gagnrýndir fyrir að hafa ekki brugðist við harðri gagnrýni frá rit- rýnum New England Journal of Me- dicine sem hafnaði handriti vísinda- greinarinnar. Vissulega hefði það átt að hringja viðvörunarbjöllum. Þetta hafi þó ekki verið í fyrsta sinn sem þetta virtasta læknatímarit heimsins hafnaði handriti að grein. Sú ástæða ein hefði ekki verið ástæða til að meðhöfunda færi að gruna að um vísindalegt misferli væri að ræða. Þá veki það athygli að í úrskurð- inum sé ekki minnst á meintar blekkingar Macchiarinis og þannig dregið úr ábyrgð meðhöfundanna. Ítalski skurðlæknirinn hafi jú verið ráðinn sem „stjörnuvísindamaður“ við KI og því enn síður ástæða til að draga niðurstöður hans í efa. Af hálfu KI hafi frá upphafi ríkt sú hugsun að gera ætti aðgerðir af þessu tagi en ekki sé minnst á þessa afstöðu í úrskurðinum. Þá veki það spurningu að ekki sé ljós skilgreiningin á því um hvers konar vísindalegt misferli úrskurð- urinn fjalli. Það auki hættuna á geð- þóttaákvörðun, ekki síst hvað varðar ábyrgð meðhöfundanna. Skilaboð til uppljóstrara Johan Thyberg, læknir og pró- fessor við KI sem kominn er á eftir- laun, spyr í grein í Dagens Nyheter 28. júní hvaða skilaboð sé verið að senda uppljóstrurum framtíðarinnar með úrskurði KI í plastbarkamál- inu. Hann bendir m.a. á að KI hafi ákveðið að láta alla höfunda greinar bera ábyrgð á innihaldinu. Það eigi sér stoð í sumum reglum en í reynd sé mjög erfitt að standa við þá af- stöðu. Til dæmis séu 28 höfundar að greininni í Lancet 2011, en hún gegnir lykilhlutverki í málinu. Sum- ir þeirra séu ekki læknar og hafi lagt lítið af mörkum til heildarinnar. Hann rekur sögu tveggja sjúkl- inga sem Macchiarini gerði plast- barkaaðgerðir á. Þar ræðir um ann- ars vegar Andemariam Teklesenbet Beyene, sem bjó hér á landi, og hins vegar unga tyrkneska konu. Þau eru bæði látin. Uppljóstrararnir fjórir unnu á þeirri deild Karolínska há- skólasjúkrahússins þar sem sjúkl- ingarnir dvöldu vegna fylgikvilla og gat ekki annað en ofboðið það sem þeir sáu. Þeim hafi borið skylda til að vara við, þó ekki væri nema til þess að koma í veg fyrir fleiri að- gerðir af þessu tagi. Í framhaldinu hafi þeir farið ná- kvæmlega í gegnum sex greinar þar sem aðgerðunum var lýst og borið þær saman við sjúkraskýrslurnar. Ástand sjúklinganna hafi verið sagt mun betra í greinunum en raunin var. Það hafi leitt til tilkynningar til rektors KI í ágúst 2014 um grun um vísindalegt misferli. Þeim sem til- kynntu málið hafi verið hótað upp- sögnum og öðrum refsiaðgerðum vegna meintrar óleyfilegrar upp- flettingar í sjúkraskrám. Thyberg segir að í raun hafi þáverandi rektor KI reynt að sópa málinu undir tepp- ið. Svo hafi verið ákveðið í ágúst 2015 að leysa Macchiarini undan grun um vísindalegt misferli. Eftir nýjar rannsóknir hafi KI staðfest að uppljóstrararnir höfðu rétt fyrir sér, nærri fjórum árum eftir að ásakanirnar komu fram. Með úrskurðinum sé staðfest að vís- indalegt misferli hafi átt sér stað. Því miður sé það svo að einstakl- ingar sem höfðu takmarkaða sýn á verkefnið séu einnig dæmdir. Úrskurður Karolinska gagnrýndur  Stofnunin sökuð um að vilja sópa plastbarkamálinu undir teppið  Einn uppljóstrara málsins ósáttur við að vera borinn sökum  Spurt er hvaða áhrif viðbrögð Karolinska hafa á uppljóstrara Ljósmynd/ki.se/Ulf Sirborn Karolinska stofnunin Hefur notið virðingar og deilir m.a. út Nóbelsverðlaunum í læknisfræði. Úrskurður um plastbarkamálið hefur vakið viðbrögð. Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is Úrval af íslenskri hönnun Unicorn hálsmen frá 5.400,- SEB köttur - gylltur frá 18.600,- Alda hálsmen frá 9.600,- Birki armbands spöng frá 24.900,-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.