Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Forseti hæstaréttar Póllands, Mal- gorzata Gersdorf, mætti til vinnu í gær þrátt fyrir gildistöku umdeildra laga sem kveða á um að hún og aðrir dómarar réttarins láti af störfum þegar þeir ná 65 ára aldri, en ekki 70 ára eins og verið hefur. Gersdorf sak- ar þjóðernissinnaða íhaldsflokkinn Lög og rétt (PiS), sem er með meiri- hluta á pólska þinginu, um að hafa sett lögin með það að markmiði að „hreinsa til“ í hæstarétti landsins í pólitískum tilgangi. Ríkisstjórn Laga og réttar segir að lögin séu liður í þeirri stefnu henn- ar að koma á umbótum á dómskerf- inu til að gera það skilvirkara og upp- ræta spillingu. Andstæðingar laganna segja þau í andstöðu við stjórnarskrá landsins en stjórnin neitar því. Endurspeglar spennu innan Evrópusambandsins Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins sendi pólsku stjórninni formlega tilkynningu á mánudaginn var um að hún teldi lögin ganga í ber- högg við sáttmála ESB og grafa und- an sjálfstæði dómstólanna og þrí- skiptingu ríkisvaldsins. Pólska stjórnin fékk mánuð til að svara til- kynningunni formlega og hugsanlegt er að framkvæmdastjórnin í Brussel höfði mál gegn Póllandi fyrir Dóm- stóli Evrópusambandsins. Hún hafði áður hótað að svipta Pólland at- kvæðisrétti innan sambandsins vegna laganna. Ólíklegt er þó að ESB geti beitt slíkri refsingu þar sem hin aðildarríkin þyrftu öll að samþykkja hana og stjórn Ungverja- lands er andvíg því að Pólland verði svipt atkvæðisréttinum. Deilan endurspeglar vaxandi spennu innan ESB milli ríkja í Vestur-Evrópu og fyrrverandi kommúnistalanda í austanverðri álfunni, m.a. vegna deilna um innflytjendamál og sjálf- stæði fjölmiðla. Mateusz Morawiecki, forsætisráð- herra Póllands, varði lögin í ræðu á Evrópuþinginu í gær og sagði að pólska stjórnin hefði rétt til að koma á umbótum á dómskerfinu. „Sér- hvert ríki hefur rétt til að þróa dóms- kerfi sitt í samræmi við eigin hefðir,“ sagði hann. Mikil óánægja með dómskerfið Pólska stjórnin hefur sagt að nauðsynlegt sé að koma á umbótum á dómskerfinu vegna þess að það sé of hægvirkt og losna þurfi við dómara sem voru skipaðir í dómstólana áður en kommúnistastjórnin í Póllandi féll árið 1989. Forystumenn flokksins segja að gamlir kommúnistar og samstarfsmenn þeirra séu enn of áhrifamiklir í dómskerfinu. Bent hef- ur þó verið á að sá þingmaður stjórn- arflokksins sem hefur beitt sér mest fyrir lögunum, Stanislaw Piotrowicz, var saksóknari á valdatíma kommún- ista og framfylgdi þá meðal annars herlögum sem voru í gildi frá desem- ber 1981 til júlí 1983. Nýleg skoðanakönnun í Póllandi bendir til þess að rúm 80% Pólverja telji að koma þurfi á umbótum á dómskerfinu vegna seinvirkni þess og spillingar. Þátttakendur í könn- uninni voru þó ekki spurðir hvort þeir styddu breytingar stjórnarinn- ar. Ef marka má aðra könnun telja 44% Pólverja að breytingar stjórn- arinnar auki áhrif stjórnmálamanna á dómstólana og aðeins 14% voru á öndverðum meiði. Frjálslynda dag- blaðið Gazeta Wyborcza gagnrýndi nýju lögin í forystugrein og lýsti þeim sem „nauðgun á hæstarétti Pól- lands“. Tuttugu og sjö af sjötíu og þremur dómurum hæstaréttar landsins eru orðnir 65 ára. Skv. lögunum geta þeir beðið forseta landsins um undanþágu frá aldursmörkunum en hann getur samþykkt eða hafnað beiðnunum án þess að gefa skýringu á ákvörðun sinni. Að sögn pólskra fjölmiðla hafa sextán dómarar óskað eftir því að fá að halda áfram störfum í réttinum. Vill verja réttarríkið Malgorzata Gersdorf er ekki þeirra á meðal og mætti til vinnu í gær eftir að lögin tóku gildi, þótt hún sé orðin 65 ára. Hún sagði að mark- miðið með lögunum væri að „hreinsa til í hæstarétti undir því yfirskini að verið sé að koma á umbótum á dóms- kerfinu“. „Ég er ekki í stjórnmála- baráttu; ég geri þetta til að verja réttarríkið og segja sannleikann um línuna milli þess að virða stjórnar- skrána og þess að brjóta hana.“ Gersdorf segir að samkvæmt stjórnarskrá landsins eigi hún að vera forseti hæstaréttar til ársins 2020 en kveðst þó ætla að „fara í frí“ eftir að hafa mætt til vinnu í gær. Hún fól öðrum dómara, Józef Iwulski, að taka við störfum forseta réttarins til bráðabirgða. Talsmaður forseta Póllands sagði hins vegar að Gersdorf hefði verið „leyst af störfum fyrir aldurs sakir“ og Józef Iwulski hefði verið skipaður forseti réttarins til frambúðar. Sögð „hreinsa til“ í hæstarétti  Stjórn Póllands sökuð um að vega að sjálfstæði dómstóla undir því yfirskini að verið sé að koma á um- bótum á dómskerfinu  Stjórnin segir markmiðið að auka skilvirkni dómstóla og uppræta spillingu AFP Lögunum mótmælt Fólk safnaðist saman fyrir utan dómhús hæstaréttar Póllands í Varsjá í gær til að láta í ljós stuðning við Malgorzötu Gersdorf, forseta réttarins, og mótmæla nýjum lögum um aldursmörk dómara. Forseti réttarins Malgorzata Gers- dorf á leið í dómhúsið í gær. „Frjálsa dómstóla!“ » Nokkur þúsund Pólverjar söfnuðust saman við hús hæstaréttarins í Varsjá í gær- morgun til að láta í ljós stuðn- ing við Malgorzötu Gersdorf, forseta réttarins, þegar hún mætti til vinnu. » „Frjálsa dómstóla!“ og „Verjum stjórnarskrána!“ hrópaði mannfjöldinn. » Tugir þúsunda Pólverja hafa tekið þátt í mótmælum gegn stefnu ríkisstjórnar landsins frá því hún komst til valda árið 2015, meðal annars ströngum fóstureyðingarlögum. Drengirnir sem fundust í djúpum helli eftir mikla leit á Taílandi æfðu sig í gær að anda með köf- unargrímur fyrir vitunum. Sú leið sem talin er vænlegust til árang- urs við björgun þeirra er að kenna þeim að kafa og koma þeim þannig út úr hellinum þar sem þeir eru enn innlyksa. Vand- inn er þó meðal annars sá að drengirnir eru fæstir taldir synd- ir. Ekki var talið líklegt að reynt yrði strax að kafa með drengina til baka, að sögn ríkisstjóra Chi- ang Rai-héraðs, þar sem hellinn er að finna. „Við verðum að vera hundrað prósent viss um að engin hætta sé á ferðum áður en við förum með drengina,“ sagði hann í samtali við blaðamenn í gær. „Við hugsum um þá eins og þeir séu okkar eigin börn.“ Ef reynt verður að kafa með drengina til að bjarga þeim er líklegt að farið verði með þá smám saman. Enn er verið að flytja birgðir, m.a. mat og lyf, til þeirra í hellinum. Fréttamenn á staðnum segja að köfunarleiðin sé mjög áhættusöm og útfærsla hennar tæknilega flókin. Þá séu berggangarnir sem fara þyrfti um þröngir, dimmir og fullir af drullugu vatni. Vatnið sé auk þess straumþungt á kafla. AFP Innlyksa í helli Fjölmiðlar í Taílandi hafa birt nýtt myndskeið þar sem drengirnir sjást í hellinum. Þeir virðast vera við nokkuð góða heilsu. Æfðu köfun í hellinum Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.