Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018  Við erum blönduð fjölskylda, ég á fimm ára stelpu og tíu ára strák og maðurinn minn á 6 ára tvíburastráka. Við verðum öll saman í fjórar vikur, bæði heima og svo erum við fara í frí saman og ég kvíði því töluvert, því strákarnir virðast þurfa lítinn svefn og ekki vanir rútínu eins og mín börn. Stelpan mín þolir illa rask á svefnvenjum og verður mjög erf- ið ef hún fær ekki sína 10 tíma. Hún tekur þvílík skapköst og er algjörlega óviðráðanleg stundum. Manninum mínum finnst þetta ekkert mál, segir að ég sé að gera of mikið úr þessu, en þetta stressar mig mjög. Sæl, ég skil vel að þetta stressi þig og þá er nauðsynlegt að þið ræðið þetta og finnið lausnir. Svefn er ótrúlega mikilvægur og gegnir marg- víslegu hlutverki. Þó er alveg ljóst að svefnþörf einstaklinga er mismunandi. Þegar börn eru ung skiptir rútína og rammi ákaflega miklu máli, svo barnið nái að þróa með sér heilbrigðar og hollar svefnvenjur. Þegar þær venjur eru orðnar nokk- uð fastmótaðar má líka kenna sveigjanleika, sem er ekki síður mikilvægur. Ég býst við að þið öll 6 hafið nokkuð ólíkar svefnþarfir og því ólíklegt að allir fari alltaf að sofa á sama tíma og vakni á sama tíma. Það væri eiginlega óeðlilegra en hitt. Uppeldi felst líka í því að kenna barninu okkar að þekkja sig, þekkja þarfir sínar og setja orð á tilfinningar. Það er svo gott að vita hvað lætur mér líða illa og ekki síður, hvað get ég gert til þess að mér líði vel. Stelpan þín er orðin nógu stór til þess að hægt sé að spjalla við hana um svefn, líðan og tilfinn- ingar. Nú veit ég ekki hvort hún sé treg að fara að sofa eða ekki, en hvort sem er þá er dýrmætt að tengja svefn við allt það sem er jákvætt. Kenna þeim að njóta þess að slaka á og vita að svefn er vinur. Sé daman treg til þess að fara að sofa má hafa í huga mikilvægi þess hvernig við nálgumst háttatímann. Það er munur á því hvort við gefum fyrirmæli „farðu að sofa, annars verður þú svo erfið á morg- un“ eða „langar þig að fara upp í rúm og hlusta á eða skoða bók, svo þú hafir ofurkraft til að gera e-ð skemmtilegt á morgun“? Börnum finnst oft gott að sjá tilgang með því sem þau eiga að gera og skilja hvernig það gagnast þeim. Ekki bara hvað það gagnast okkur langbest að þau sofni snemma, eru svo falleg sofandi þessi yndi. Börn sem þrífast best í rútínu eiga að fá að halda henni eins og þau þurfa, svo ef þú mögulega getur leyft henni að halda sinni svefnrútínu á meðan þið eruð heima er það frábært. En líklega riðlast rútínan eitthvað í útlöndum og hún þarf að læra að höndla slíkt. Mikilvægast er að gefa henni verkfæri til þess að takast á við þær aðstæður. Hugsanir okkar hafa mikil áhrif á hvernig okkur líður, ef við undirbúum barnið ekki fyrir breytingar eða rask á annars þægilegri rútínu, getum við búist við erf- iðri hegðun því barnið kann ekki endilega að tak- ast á við þessar nýju aðstæður. Öll hugsun og hegðun er í raun eins og vegur í heilanum og því oftar sem heilinn „keyrir“ þann veg því öflugri verður hann. Ef við kennum hegðun ekki mark- visst gæti þreytt barn búið til braut sem er hvorki holl né hjálpleg. Það er aldrei hollt að leyfa börn- um að komast upp með erfiða hegðun bara vegna þess að þau eru „þreytt“ eða „svöng“, hvorugt af- sakar skapofsakast eða fýlu. Það er alveg dásamlega hjálplegt að nota dag- bækur, með texta og myndum til þess að kenna nýja hegðun og ýta undir færni til þess að takast á við nýjar aðstæður. Spjall við börn skilar miklu meiri árangri ef við notum líka myndir eða bara einfaldar teikningar, broskalla t.d. Alla hegðun þarf að æfa og óvíst að æskileg hegðun verði til á einu kvöldi á Tenerife. Svo um að gera að æfa dömuna líka heima, áður en þið farið út. Svo má gera skemmtilega og einfalda sögu, með myndum! Eins og t.d. „Í kvöld ætlum við að fara á veitingastað, ég má taka liti/bíl/phony hest með mér. Ég ætla að panta mér spagettí og fá ís í eftirmat. Þegar ég er búin að borða má ég hlusta á sögu, fara í ipad eða lita mynd. Ef ég verð þreytt má ég kúra hjá mömmu/pabba. Ég er orð- in svo stór að ég veit að stundum verð ég leið ef ég er þreytt, en það er allt í lagi því við erum öll sam- an í fríi og á morgun get ég hvílt mig. Ég elska að ferðast með fjölskyldunni minni og hlakka til að segja ömmu og afa frá hvað við gerðum.“ Þessar leiðir virka líka vel á okkur fullorðna fólkið, æfðu þig í að keyra hjálplegar heilabrautir og taka eftir því sem gengur vel hjá þér, henni og yndislegu fjölskyldunni ykkar. Móðir í samsettri fjölskyldu kvíðir fríinu Ljósmynd/Thinkstock Fjölskyldulífið Líf og ferðalög í fjölskyldum er oft flókið þar sem þarfir fólks eru ólíkar. Spurt og svarað 1 Umvefjum börnin okkar skilyrðislausri ást frá fyrstadegi og segjum þeim oft á hverjum degi hve heitt við elskum þau. 2 Hrósum þeim fyrir það sem vel er gert og þegarþau leggja sig fram, hvetjum þau og örvum af kost- gæfni. 3 Setjum skýran ramma um til hvers er ætlast oghvernig framkoma, framganga, og t.d. umhirða er ákjósanleg og ásættanleg – einkum með því að leitast sjálf við að vera sæmilega góðar fyrirmyndir. Ef ekki liggur fyrir skýr rammi er hætt við að börnin verði óör- ugg og vaklandi. 4 Hugum vel að hollu mataræði og lifnaðarháttum oghöldum börnunum upplýstum að gildi næringar og mögulegum fylgifiskum óhollustunnar. 5 Fylgjumst vel með og styðjum þau í námi ogfylgjumst með gangi námsins og ekki síður líð- an þeirra í skólanum, á námskeiðum, í frístundum og þeim félagsskap sem þau standa andspænis. Leggjum áherslu á tónlist, íþróttir og skapandi greinar. Brýnum fyrir þeim hvað virðing skiptir miklu máli, hvort sem það er fyrir umhverfi, hlut- um eða fólki. Fyrst og síðast þó, enn og aftur: Ást, ást, ást! Þessar áherslur höfum við foreldrarnir verið ákaflega sammála um og samstiga við. Fleira kann að koma til sem ekki rúmast í liðum 1-5. Við telj- um okkur alltént afar heppin og sátt, gætum í raun ekki verið ánægðari með dætur okkar tvær – þessar dýrmætustu perlur lífsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jakob Frímann Magn- ússon, tónlistar- og at- hafnamaður, deilir hér með lesendum Fjölskyld- unnar fimm af sínum bestu uppeldisráðum en hann á tvær ungar dætur með konu sinni Birnu Rún Gísladóttur, þær Jarúnu 11 ára og Katrínu Borg 5 ára. 5 UPPELDISRÁÐ Jakobs Frímanns Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Hringdu og bókaðu skoðun Sigurður Lögg. fs. 899-1987 eða Ingimar Lögg. fs. 612-2277 Gerplustræti 31-37 – 270 Mosfellsbær *Aðeins 9 íbúðir eftir* Nýtt 40 íbúða fjölbýlishús á fallegum útsýnisstað. Vel skipulagðar íbúðir, ásamt bílastæði í bílageymslu, í lyftuhúsi í Helgafells­ hverfi. Íbúðirnar skilast fullbúnar með innréttingum frá Axis, án megingólfefna. Gólf í baðherbergjum/þvottahúsum verða flísalögð. Afhending júlí 2018. 4ra herbergja íbúðir. V. 44,5 m. – 58,9 m. 5 herbergja íbúðir. V. 53,9 m. – 54,9 m. Ástu-Sólliljugata – 270 Mosfellsbær *Laust strax* Falleg og vel skipulögð raðhús einni hæð við Ástu­Sólliljugötu í Mosfellsbæ. Afhendast fullbúin án megingólfefna, baðherbergisgólf verða flísalögð, en þvottahúsgólf og bílskúr með epoxi. Lóð frágengin með hellulögðu bílastæði. Ástu­Sólliljugata 14A = 176,5m2. V. 75,9 m. Ástu­Sólliljugata 16 = 176,5m2. V. 75,9 m. Ástu­Sólliljugata 16A = 184m2. V. 78,9 m. Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080 // fastmos@fastmos.is // fastmos.is Atvinna Spurningum sem berast Fjölskyldunni á mbl.is svarar SÓL sálfræði- og læknisþjónusta en þar starfar hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra góða þjónustu. Nánari upplýsingar á www.sol.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.