Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
listamönnum, en á síðasta ári
áskotnaðist því úrvalssafn 97 teikn-
inga og prentverka frá 1945-1975
eftir 48 þekkta bandaríska lista-
menn sem kenndir hafa verið við af-
strakt-expressjónisma, minímal-
isma, geómetríska afstraksjón og
popplist og má þar nefna Jackson
Pollock, Mark Rothko, Helen
Frankenthaler, Donald Judd, Agnes
Martin, Josef Albers, Jo Baer og
Andy Warhol. Safnið tilheyrði áður
Washington Arts Consortium
(WAC) en tilurð þess má rekja til
auðugs timburbaróns, Prentice
Bloedel, sem stofnaði árið 1969 lista-
Voldugt Hafþór og greinarhöfundur eru hér undir hinu stóra verki Isamu Noguchi, „Skyviewing Sculpture“.
samræmi við áherslu safnsins á að
auka gagnvirka samfélagslega þátt-
töku. Að sögn Hafþórs telja nem-
endur og starfsfólk sem umgangast
listasafnið um 17 þúsund auk þess
sem um 40 þúsund manns heim-
sækja safnið árlega, en fyrstu bekkir
grunnskóla og eldri borgarar eru
þar fastagestir. Komið hefur verið á
fót starfsnámi fyrir nemendur, þver-
faglegum samræðuvettvangi innan
fræðasamfélagsins, þar sem tekið er
á málefnum sem varða t.d. róttækar
kennsluaðferðir, list frumbyggja og
jafnréttismál út frá möguleikum
safneignarinnar, auk þess sem í
burðarliðnum eru styrkir til rann-
sókna framhaldsnemenda í listfræði
og sýningarstjórnun á safneigninni
og birtingar þeirra. Safnið hefur
rannsóknarskyldu á safneigninni og
Hafþór segir frá viðamiklum og
spennandi rannsóknarverkefnum,
sýningarhaldi og útgáfu sem eru í
farvatninu og tengjast útilista-
verkum Nancy Holt, Isamu Noguchi
og Donalds Judd en að því koma list-
fræðingar í Western Washington-
háskóla og sérfræðingar frá öðrum
stofnunum. Hafþór leggur jafnframt
áherslu á að safnið leitist ávallt við
að draga fram starf listamannsins og
listsköpun hans í tilteknu list-
sögulegu og þjóðfélagslegu sam-
hengi.
Hlúð að vaxtarsprotum
Sýningarsalur Western Gallery
gegnir fjölbreyttu hlutverki en þar
eiga nemendur í myndlistardeild
skólans kost á að sýna verk sín og
það hefur einnig verið sýningarvett-
vangur starfandi svæðisbundinna
listamanna. Tvær sýningar sem
haldnar hafa verið undanfarin tvö
sumur vekja athygli greinarhöf-
undar en þar var leitað að snertiflöt-
um milli skúlptúrsafnsins og safns
teikninga og prentverka sem Virg-
inia Wright kom á fót. Sú fyrri
hverfðist um hugmyndina um til-
raunastofu og alls kyns skapandi
viðbrögð og túlkun á skúlptúrsafn-
inu út frá listsögulegum hugtökum
naumhyggju og síðnaumhyggju.
Opnuð var rannsóknarmiðstöð innan
sýningarrýmisins þar sem nem-
endum bauðst að skoða og ræða um
listsöguleg gögn sem vörpuðu ljósi á
tilurð valinna verka sem til sýnis
voru. Sýningin Pointing beindi sjón-
um að ákveðnum útilistaverkum sem
benda út fyrir sjálf sig og með vali
verka var leitast við að draga fram
hvernig slíkar áherslur birtast einn-
ig í teikningum listamannanna. Og
þar er einnig komið að því markmiði
Western Gallery að þjóna háskóla-
samfélaginu og samfélaginu í stærra
samhengi en Hafþór segir starfsemi
listasafnsins beinast að því að auka
enn á hin gagnvirku samfélags-
tengsl, bæði við menningarlíf svæð-
isins og á landsvísu. Sérstaða lista-
safnsins gerir að verkum að það
hefur alla burði til þess, enda geymir
það óteljandi möguleika til skapandi
framhaldslífs.
sjóð í nafni dóttur sinnar, Virginiu
Wright, sem hefur, ásamt eigin-
manni sínum heitnum, Bagley
Wright, verið mikilvægur velunnari
lista og drifkraftur í menningar-
starfi í Washington-ríki og m.a.
kostað verk úr sjóðnum og gefið í
skúlptúrsafn Western Gallery.
Sem safnstjóri heldur Hafþór ut-
an um miðlun safneignarinnar og
mótar áherslur varðandi rannsóknir,
fræðslu, sýningarhald og ýmsa við-
burði. Á vandaðri heimasíðu lista-
safnsins má m.a. lesa ljóð og aðra
þanka sem sprottnir eru af samneyti
nemenda og einstakra skúlptúra í
Tröppur „Stadium Piece“ eftir Bruce Nauman setur svip á háskólasvæðið.
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Gullsmiðir
Sérfræðingar í trúlofunar
& giftingarhringum
Skoðaðu úrvalið á www.acredo.is
14k hvítagull með demanti
140.274,-
14k hvítagull með demöntum
220.559,-
14k hvítagull með demöntum
300.870,-
14k hvítagull með demöntum
286.983,-
14k hvítagull með demöntum
miðjusteinn 0,40 ct 542.185,-
14k gull með 0,25 ct demanti
204.266,-
14k gull með demanti
137.349,-
14k gull með demöntum
249.981,-
14k gull með demöntum
355.234,-
14k gull með demanti
97.075,-
14k gull með demöntum
120.567,-
14k gull með demöntum
miðjusteinn 0,30 ct 408.454,-
14k gull með demöntum
170.887,-
14k hvítagull með demöntum
238.708,-
14k gull með 0,40 ct demanti :
168.334 kr
14k hvítagull með 0,50 ct demanti
238.008,-
14k gull og hvítagull með demöntum
miðjusteinn 0,25 ct 187.397,-
14k hvítagull með demöntum
miðjusteinn 0,15 ct 162.115,-