Morgunblaðið - 05.07.2018, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 05.07.2018, Qupperneq 54
54 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 Myndin er ekki af tilboðsdemanti Carat Color Clarity Cut Polish Symmetry Certificate 0.76 H VVS2 Good Very good Good Shape Roundbrilliant GIA Tilboð á lausum steini: 460.000 kr.* *Tilboðið gildir í tvær vikur SÉRFRÆÐINGAR Í DEMÖNTUM Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 demantar@jonogoskar.is I www.jonogoskar.is Við útvegum allar stærðir og mismunandi slípanir demanta í mörgum gæðaflokkum, veitum ráðgjöf og gefum tilboð í sérsmíði. Ég ætla að halda garðpartí í góða veðrinu heima hjá mér í Kópa-vogi; er búin að liggja á bæn og biðja Guð og góðar vættir umbongóblíðu,“ segir Lára Gyða Bergsdóttir galvösk og án þess að hika, en hún á 50 ára afmæli í dag. Lára Gyða er flugfreyja hjá Icelandair, hún hefur starfað þar frá 1995 og ferðast um allan heim: „Ég er yfirleitt alltaf á flandri og hef komið til u.þ.b. 60 landa og er enn að safna áfangastöðum. Ég er örugglega í skemmtilegasta starfi í heimi, hreinlega elska það." Lára Gyða hefur einnig verið í veitingarekstri ásamt manni sínum, Níels Hafsteinssyni, en þau, ásamt meðeigendum, eiga og reka Steik- húsið og Rauða ljónið og sjá um veitingarekstur í golfskálanum á Sel- tjarnarnesi: „Við erum að íhuga viðskiptatækifæri á Tenerife. Níels er þar núna og verður því fjarri góðu gamni á afmælinu.“ Níels varð sjálfur fimmtugur á mánudaginn: „Við vorum saman á fæðingardeildinni í júlí 1968 og ég hef ekki losnað við hann síðan.“ Börn þeirra eru Hafsteinn og Kamilla Ása. Og áhugamálin? „Skíði, dans, golf, garður, píanóleikur, músík, leikhúsferðir, vinir og að halda veislur og vera innan um fólk … Ætti ég ekki frekar að telja upp það sem mér finnst ekki gaman? Ég hef verið lengi á skíðum en byrjaði í golfi í vor. Kvenleggur skíðahópsins fór í golfferð til Spánar, ég kolféll fyrir sportinu, dró kallinn í þetta og við gáfum hvort öðru golfsett í tilefni afmælisins.“ Fjölskyldan Lára Gyða og Níels með Kamillu og Hafsteini úti í Flatey. Ást við fyrstu sýn á fæðingardeildinni Lára Gyða Bergsdóttir er fimmtug í dag B aldvin Þór Bergsson fæddist í Reykjavík 5.7. 1978 og ólst upp í Hafnarfirði til 13 ára aldurs. Hann var auk þess eitt sumar í sveit á Stóra- Núpi í Gnúpverjahreppi. Baldvin var í Lækjarskóla í Hafnarfirði og síðasta grunn- skólaárið í Álftamýrarskóla, lauk stúdentsprófi frá MR, BA-prófi í stjórnmálafræði frá HÍ, lauk MA- prófi í mannauðsstjórnun frá HÍ og síðar MSc-prófi í International Political Theory frá Edinborg- arháskóla. 2009. „Ég var nokkuð virkur í félags- lífinu í MR, tók m.a. þátt í Herra- nótt og var síðan í háskólaráði HÍ fyrir Vöku. Leiklistaráhuginn er ættgengur. En þrátt fyrir að ég hafi sjálfur Baldvin Þór Bergsson, dagskrárstjóri hjá RÚV – 40 ára Háttatími Baldvin í nógu að snúast við að koma dætrunum í svefninn, þeim Soffíu Sigríði og Erlu Margréti. Byrjaði tólf ára á RÚV Hjónarómantík Baldvin með eiginkonu sinni, Helgu Margréti hjartalækni. Kópavogur Eyþór Sindri Guð- mundsson fæddist 30. apríl 2018 kl. 11.16. Hann vó 3.630 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Björg Eyþórsdóttir og Guðmundur Birkir Jóhannsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.