Morgunblaðið - 05.07.2018, Qupperneq 4
Malbikunarmenn hvíla hér lúin bein á meðan rigningarskúr dembist yfir í Ártúnsbrekkunni. Sól-
skini og þurrki er spáð á höfuðborgarsvæðinu í dag og gangi það eftir mun það vonandi létta
lund þeirra sem þurfa að vinna utandyra. Ætla má að ekki sé heiglum hent að vinna úti eins og
viðrað hefur í sumar. Íbúar Suðvesturlands hafa látið sig dreyma um sólardag frá því í vor.
Morgunblaðið/Eggert
Regnvotur hvíldartími í Ártúnsbrekkunni
Lundin ætti að léttast hjá fólki á höfuðborgarsvæðinu í dag, spáð er þurrki og sól með köflum
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Hágæða sláttutraktorar frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
Morgunblaðið/Þórður
Fjármálaráðuneytið Ráðuneytið
segir hækkunina hafa lítil áhrif.
Magnús Heimir Jónasson
Alexander Gunnar Kristjánsson
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-
málaráðuneytinu hefur launahækkun
forstöðumanna ríkisstofnana lítil
áhrif á ríkissjóð vegna þess hversu fá-
menn starfsstéttin er.
Kjararáð úrskurðaði 48 forstöðu-
mönnum ríkisstofnana um 10,8%
meðaltalshækkun í vikunni og gildir
hækkunin frá 1. desember í fyrra. Þá
er einnig gert ráð fyrir einhverjum
launahækkunum við fjárlagagerð en
stærð þess hóps sem launahækkanir
taka til skiptir þar einnig máli. „Það
er alltaf gert ráð fyrir einhverjum
hækkunum og hvað þetta er stór hóp-
ur skiptir líka alltaf einhverju máli,“
segir Anna Borgþórsdóttir Olsen hjá
fjármálaráðuneytinu spurð hvort
hækkanir forstöðumannanna hafi ein-
hver áhrif á fjárlagagerð. Hún segir
ráðuneytið ekki gefa upp launafor-
sendur sínar við fjárlagagerð. „Við
gefum ekki nákvæmlega upp hvaða
launaforsendur við notum vegna
áhrifa á samningsstöðu. En þetta er
nú ekki mjög umfangsmikið og ætti
að rúmast innan þeirra launafor-
sendna sem eru gefnar við fjárlaga-
gerð,“ segir Anna en verið er að móta
fjárlagavinnuna í þessum mánuði og
næsta.
Yfirvinnulaun forstöðumanna
nema allt að helmingi heildarlauna,
samkvæmt nýjum úrskurði kjararáðs
sem birtur var í gær. Úrskurðurinn
er birtur þremur dögum eftir að ráðið
var fellt niður en sagður vera frá
miðjum júní.
Yfirvinnukaup tvöfaldar launin
Ekki er auðvelt að ráða í heildar-
laun forstöðumanna út frá úrskurð-
inum enda er þeim undantekningar-
laust úthlutað fastri yfirvinnu með
svokölluðum „einingum“ sem ráðast
ekki af grunnlaunum þeirra. Hver yf-
irvinnueining jafngildir þess í stað
9.572 krónum á mánuði og hinir
launahæstu eiga það allir sammerkt
að fá ríflega af þessum einingum.
Forstöðumennirnir 48 sem úr-
skurðað var um fá á bilinu 12 til 135
yfirvinnueiningar á mánuði. Þannig
fær forstjóri Landspítalans 1.290.000
krónur í grunnlaun, en sömu upphæð
í yfirvinnu, þegar rýnt er í 135 „yfir-
vinnueiningar“ hans. Heildarlaun
hans eru því 2.580.000 krónur eða sem
nemur tvöföldum grunnlaunum hans.
Yfirvinnutímakaup fólks á vinnu-
markaði er jafnan greitt með 80%
álagi á hefðbundið tímakaup og því
má ætla að ráðið telji forstjóra Land-
spítalans vera í 155% starfi, eða sem
jafngildir 62 vinnustundum á viku.
Launahækkunin hefur lítil áhrif
Launahækkun forstöðumanna ríkisstofnana hefur ekki mikil áhrif á ríkissjóð 48 forstöðumenn
fengu um 10,8% hækkun Hækkunin rúmast innan forsendna fjármálaráðuneytisins við fjárlagagerð
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna
hefur ekki enn tekist að koma saman
til þess að ræða mál Hjartar Hjart-
arsonar, sem var sendur heim af
heimsmeistaramótinu í knattspyrnu
í Rússlandi 25. júní sl. að beiðni at-
vinnurekanda síns, Sýnar, vegna
óæskilegrar hegðunar. Þess megi þó
vænta á komandi vikum, segir Eirík-
ur Stefán Ásgeirsson, formaður
Samtaka íþróttafréttamanna, í sam-
tali við Morgunblaðið. Þegar Morg-
unblaðið ræddi við Eirík fyrir rétt
rúmri viku um sama mál hafði
stjórnin ekki komið saman vegna
þess að stór hluti
stéttarinnar var
þá við störf á
heimsmeistara-
mótinu í Rúss-
landi. Eiríkur
segir að það sé
ljóst að samtökin
muni taka á mál-
inu. Hefur mál af
þessu tagi ekki
komið upp á borð
áður hjá þeim.
Siðareglur þær sömu og hjá BÍ
„Ljóst er að siðareglur samtak-
anna eru þær sömu og hjá Blaða-
mannafélagi Íslands,“ segir Eiríkur
og tekur fram að samtökin muni ráð-
færa sig við Blaðamannafélagið um
næstu skref.
Hjörtur Hjartarson hefur verið
meðlimur í Samtökum íþróttafrétta-
manna frá árinu 2015. Hefur hann
óskað eftir því að láta af störfum hjá
vinnuveitanda sínum, Sýn, í kjölfar
þess að hann var sendur heim frá
HM í Rússlandi vegna óæskilegrar
hegðunar. Kom það fram í færslu
Hjartar á Facebook í síðustu viku. Í
færslunni segist hann skilja vel þau
hörðu viðbrögð sem komu fram
vegna hegðunar hans í Rússlandi.
Hyggst hann í framhaldinu einbeita
sér að því að bæta framkomu sína
gagnvart nákomnum og öðrum.
Ekki hefur tekist að taka
mál Hjartar til umræðu enn
SÍ mun leita ráða hjá Blaðamannafélaginu um næstu skref
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson