Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
a
595 1000
GRAN CANARIA
að
ve
rð
ge
tur
br
e
st
án
fyr
irv
a
11. OKTÓBER Í 18 NÆTUR Frá kr.
135.075
Frá kr.
97.725
ALLTAÐ25.000KR. AFSLÁTTURÁMANN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Stjórnsýslan dálítið lokuð“
Stjórnarandstaðan í Reykjavík leggur til birtingu á dagskrá ráða og nefnda
borgarinnar fyrir fundi Tillögunni tekið með jákvæðni en varkárni
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Þetta er liður í því að opna stjórn-
sýsluna hjá Reykjavíkurborg. Hún
er dálítið lokuð,“ sagði Eyþór Arn-
alds, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, um sameigin-
lega tillögu stjórnarandstöðu-
flokkanna sem rædd verður á
borgarráðsfundi í dag. Í henni er
lagt til að dagskrá í ráðum og nefnd-
um á vegum borgarinnar verði gerð
aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar
fyrir fundi.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Eyþór vonast til að samstaða næðist
um tillöguna með stjórnarflokkunum
í Reykjavík enda hefðu þeir mikið
talað um gagnsæi í málflutningi sín-
um.
Spurð um tillöguna sagðist Þórdís
Lóa Þórhallsdóttir, formaður borg-
arráðs, fagna tillögum um gagnsæi
og sagði umræðu um slíkt tímabæra
á Íslandi. Lagði hún þó áherslu á að
ræða yrði tillöguna í borgarráði og
taka tillit til allra sjónarmiða, meðal
annars sjónarmiða um persónu-
vernd. Dóra Björt Guðjónsdóttir,
forseti borgarstjórnar, tók í svipað-
an streng og sagðist myndu hlusta á
rök með og á móti tillögunni. „Við
viljum auðvitað halda þessum góða
tóni, þessari góðu samvinnupólitík
sem hefur verið í borginni.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg er sá vaninn í til-
felli tillagna frá stjórnarandstöðu að
umsögn sé fengin frá réttum emb-
ættismönnum til að geta unnið mál
áfram. Allar upplýsingar verði að
hafa á borðinu svo hægt sé að taka
ákvarðanir.
Bjarg íbúðafélag, sem stofnað var af
ASÍ og BSRB, hyggst byggja um
1.400 leiguíbúðir á næstu fjórum ár-
um. Leiguverð á tveggja herbergja
íbúðum, sem verða að meðaltali 45
fermetrar, verður samkvæmt áætl-
unum á bilinu 96.000 til 130.000
krónur. Meðalleiguverð á fermetra
á höfuðborgarsvæðinu var í mars
um 2.750 krónur eða um 124.000 á
mánuði fyrir 45 fermetra íbúð.
Stefnt er á að fyrstu íbúðir verði af-
hentar um mitt næsta ár.
Meðalstærð þriggja herbergja
íbúða verður um 70 fermetrar og
fjögurra herbergja íbúða um 85 fer-
metrar. Leiguverð íbúðanna verður
misjafnt á milli staðsetninga en fé-
lagið hefur gert áætlanir fyrir íbúðir
sínar á Móavegi, Akranesi og Urð-
arbrunni.
Áætlað leiguverð þriggja her-
bergja íbúðar er frá 128.000 til
169.000 og á bilinu 146.000 til
200.000 fyrir fjögurra herbergja
íbúðir. Greiðslubyrði leigu miðað við
lágmarkslaun gæti orðið frá 55.000
fyrir tveggja herbergja íbúð upp í
99.000 fyrir fjögurra herbergja íbúð
þegar tekið er tillit til húsnæðis-
bóta. Leiguverð 76 fermetra þriggja
herbergja íbúðar á stúdentagörðun-
um, Eggertsgötu, er um 131.000 til
samanburðar og leiguverð 36 fer-
metra stúdíóíbúðar á sama stað er
um 91.000.
Úthlutun geta þeir einir hlotið
sem hafa verið fullgildir félagsmenn
aðildarfélaga ASÍ eða BSRB sl. 24
mánuði miðað við úthlutun og eru
virkir á vinnumarkaði. Fullgildir fé-
lagsmenn sem eru tímabundið frá
vinnu, í allt að 12 mánuði, vegna
fæðingarorlofs eða veikinda halda
réttindum sínum. Þá er þess krafist
að umsækjendur séu undir
ákveðnum tekju- og eignamörkum
við upphaf leigu. Þegar hefur verið
opnað fyrir umsóknir á vef Bjargs
íbúðafélags.
Fyrstu íbúðir ASÍ og BSRB
afhentar um mitt næsta ár
Von á 1.400 leiguíbúðum á næstu fjórum árum
Ljósmynd/Bjarg íbúðafélag
Leiguíbúðir Fjölbýlishús á vegum
Bjargs rís m.a. við Móaveg.
Sveini Rúnari
Gunnarssyni, lög-
reglumanni á
Sauðárkróki, var
tilkynnt í fyrradag
að hann fengi inn-
göngu í lögreglu-
nám Háskólans á
Akureyri. Honum
hafði áður verið
hafnað vegna þess
að sveinspróf hans
í húsasmíði teldist ekki til stúdents-
prófs eða sambærilegrar menntunar.
„Eftir að allt fór í háaloft sótti ég
um að málið yrði endurskoðað og
sendi inn öll gögn; meðmæli frá yfir-
lögregluþjóni, staðfestingu á radar-
réttindum, staðfestingu á þeim nám-
skeiðum sem ég hef lokið hjá Lands-
björg o.fl.,“ segir Sveinn Rúnar, sem
sendi einnig staðfest afrit af sveins-
prófinu sínu.
Hann segist ekki hafa búist við því
að endurskoðun umsóknarinnar
myndi leiða til þess að hann fengi inn-
göngu í námið en er engu að síður afar
ánægður með niðurstöðuna. „Háskól-
inn fær lof fyrir að hafa endurskoðað
mál mitt en aftur á móti er þetta sér-
stakt og örugglega sárt fyrir marga
aðra.“
Sveinn segist spenntur fyrir því að
hefja nám í haust og vill þakka öllum
þeim sem vöktu athygli á máli hans á
síðustu vikum.
HA mat
sveinspróf-
ið að lokum
Sveinn Rúnar
Gunnarsson
Lögreglumaður
kemst í lögreglunám
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í
gær Guðmund Jónsson lögmann til
tveggja ára fangelsisvistar fyrir fjár-
drátt í opinberu starfi og peninga-
þvætti sem hann framdi þegar hann
var skipaður skiptastjóri dánarbús.
Auk þess var hann dæmdur til þess að
greiða dánarbúi mannsins skaðabætur
sem nema þeirri fjárhæð sem hann
dró sér auk vaxta og málskostnaðar.
Guðmundur færði, með sex milli-
færslum, samtals tæpar 53,7 milljónir
af reikningi dánarbúsins á fjárvörslu-
reikning lögmannsstofu sinnar, LGJ
ehf., og notaði í eigin þágu.
Dæmdur í
tveggja ára
fangelsi
Blásið var til leiks á N1-móti KA á Akureyri í há-
deginu í gær, en þar etja um 1.700 strákar í 5.
aldursflokki kappi í fótbolta þangað til síðdegis á
laugardag. Myndin er úr leik FH og Fjölnis.
Mótið hefur aldrei verið fjölmennara en um
2.000 manns eru beinir þátttakendur því þjálf-
arar og fararstjórar eru um 300. Alls keppa 188
lið frá 47 félögum á mótinu og telja KA-menn að
vel á fimmta þúsund manns hafi komið til bæjar-
ins til þess að keppa eða fylgjast með, því for-
eldrar, systkini eða aðrir ættingjar eru gjarnan
með í för. Þurrt var í gær en heldur kalt miðað
við það sem Akureyringar hafa átt að venjast
síðustu vikur. Einhverri úrkomu er spáð í dag en
annars ætti veðrið að verða vel bærilegt.
Fótboltahátíð í höfuðstað Norðurlands
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Enn eitt N1-mótið hafið hjá KA-mönnum á Akureyri