Morgunblaðið - 05.07.2018, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Við erum blönduð fjölskylda, ég á fimm ára
stelpu og tíu ára strák og maðurinn minn á 6 ára
tvíburastráka. Við verðum öll saman í fjórar vikur,
bæði heima og svo erum við fara í frí saman og ég
kvíði því töluvert, því strákarnir virðast þurfa lítinn
svefn og ekki vanir rútínu eins og mín börn. Stelpan
mín þolir illa rask á svefnvenjum og verður mjög erf-
ið ef hún fær ekki sína 10 tíma. Hún tekur þvílík
skapköst og er algjörlega óviðráðanleg stundum.
Manninum mínum finnst þetta ekkert mál, segir að
ég sé að gera of mikið úr þessu, en þetta stressar
mig mjög.
Sæl, ég skil vel að þetta stressi þig og þá er
nauðsynlegt að þið ræðið þetta og finnið lausnir.
Svefn er ótrúlega mikilvægur og gegnir marg-
víslegu hlutverki. Þó er alveg ljóst að svefnþörf
einstaklinga er mismunandi. Þegar börn eru ung
skiptir rútína og rammi ákaflega miklu máli, svo
barnið nái að þróa með sér heilbrigðar og hollar
svefnvenjur. Þegar þær venjur eru orðnar nokk-
uð fastmótaðar má líka kenna sveigjanleika, sem
er ekki síður mikilvægur.
Ég býst við að þið öll 6 hafið nokkuð ólíkar
svefnþarfir og því ólíklegt að allir fari alltaf að
sofa á sama tíma og vakni á sama tíma. Það væri
eiginlega óeðlilegra en hitt.
Uppeldi felst líka í því að kenna barninu okkar
að þekkja sig, þekkja þarfir sínar og setja orð á
tilfinningar. Það er svo gott að vita hvað lætur
mér líða illa og ekki síður, hvað get ég gert til þess
að mér líði vel.
Stelpan þín er orðin nógu stór til þess að hægt
sé að spjalla við hana um svefn, líðan og tilfinn-
ingar. Nú veit ég ekki hvort hún sé treg að fara að
sofa eða ekki, en hvort sem er þá er dýrmætt að
tengja svefn við allt það sem er jákvætt. Kenna
þeim að njóta þess að slaka á og vita að svefn er
vinur. Sé daman treg til þess að fara að sofa má
hafa í huga mikilvægi þess hvernig við nálgumst
háttatímann.
Það er munur á því hvort við gefum fyrirmæli
„farðu að sofa, annars verður þú svo erfið á morg-
un“ eða „langar þig að fara upp í rúm og hlusta á
eða skoða bók, svo þú hafir ofurkraft til að gera
e-ð skemmtilegt á morgun“? Börnum finnst oft
gott að sjá tilgang með því sem þau eiga að gera
og skilja hvernig það gagnast þeim. Ekki bara
hvað það gagnast okkur langbest að þau sofni
snemma, eru svo falleg sofandi þessi yndi.
Börn sem þrífast best í rútínu eiga að fá að
halda henni eins og þau þurfa, svo ef þú mögulega
getur leyft henni að halda sinni svefnrútínu á
meðan þið eruð heima er það frábært. En líklega
riðlast rútínan eitthvað í útlöndum og hún þarf að
læra að höndla slíkt.
Mikilvægast er að gefa henni verkfæri til þess
að takast á við þær aðstæður. Hugsanir okkar
hafa mikil áhrif á hvernig okkur líður, ef við
undirbúum barnið ekki fyrir breytingar eða rask
á annars þægilegri rútínu, getum við búist við erf-
iðri hegðun því barnið kann ekki endilega að tak-
ast á við þessar nýju aðstæður. Öll hugsun og
hegðun er í raun eins og vegur í heilanum og því
oftar sem heilinn „keyrir“ þann veg því öflugri
verður hann. Ef við kennum hegðun ekki mark-
visst gæti þreytt barn búið til braut sem er hvorki
holl né hjálpleg. Það er aldrei hollt að leyfa börn-
um að komast upp með erfiða hegðun bara vegna
þess að þau eru „þreytt“ eða „svöng“, hvorugt af-
sakar skapofsakast eða fýlu.
Það er alveg dásamlega hjálplegt að nota dag-
bækur, með texta og myndum til þess að kenna
nýja hegðun og ýta undir færni til þess að takast á
við nýjar aðstæður. Spjall við börn skilar miklu
meiri árangri ef við notum líka myndir eða bara
einfaldar teikningar, broskalla t.d.
Alla hegðun þarf að æfa og óvíst að æskileg
hegðun verði til á einu kvöldi á Tenerife. Svo um
að gera að æfa dömuna líka heima, áður en þið
farið út. Svo má gera skemmtilega og einfalda
sögu, með myndum! Eins og t.d. „Í kvöld ætlum
við að fara á veitingastað, ég má taka liti/bíl/phony
hest með mér. Ég ætla að panta mér spagettí og
fá ís í eftirmat. Þegar ég er búin að borða má ég
hlusta á sögu, fara í ipad eða lita mynd. Ef ég verð
þreytt má ég kúra hjá mömmu/pabba. Ég er orð-
in svo stór að ég veit að stundum verð ég leið ef ég
er þreytt, en það er allt í lagi því við erum öll sam-
an í fríi og á morgun get ég hvílt mig. Ég elska að
ferðast með fjölskyldunni minni og hlakka til að
segja ömmu og afa frá hvað við gerðum.“
Þessar leiðir virka líka vel á okkur fullorðna
fólkið, æfðu þig í að keyra hjálplegar heilabrautir
og taka eftir því sem gengur vel hjá þér, henni og
yndislegu fjölskyldunni ykkar.
Móðir í samsettri fjölskyldu kvíðir fríinu
Ljósmynd/Thinkstock
Fjölskyldulífið Líf og ferðalög í fjölskyldum er oft flókið þar sem þarfir fólks eru ólíkar.
Spurt og svarað
1 Umvefjum börnin okkar skilyrðislausri ást frá fyrstadegi og segjum þeim oft á hverjum degi hve heitt við
elskum þau.
2 Hrósum þeim fyrir það sem vel er gert og þegarþau leggja sig fram, hvetjum þau og örvum af kost-
gæfni.
3 Setjum skýran ramma um til hvers er ætlast oghvernig framkoma, framganga, og t.d. umhirða er
ákjósanleg og ásættanleg – einkum með því að leitast
sjálf við að vera sæmilega góðar fyrirmyndir. Ef ekki
liggur fyrir skýr rammi er hætt við að börnin verði óör-
ugg og vaklandi.
4 Hugum vel að hollu mataræði og lifnaðarháttum oghöldum börnunum upplýstum að gildi næringar og
mögulegum fylgifiskum óhollustunnar.
5 Fylgjumst vel með og styðjum þau í námi ogfylgjumst með gangi námsins og ekki síður líð-
an þeirra í skólanum, á námskeiðum, í frístundum
og þeim félagsskap sem þau standa andspænis.
Leggjum áherslu á tónlist, íþróttir og skapandi
greinar. Brýnum fyrir þeim hvað virðing skiptir
miklu máli, hvort sem það er fyrir umhverfi, hlut-
um eða fólki. Fyrst og síðast þó, enn og aftur: Ást,
ást, ást!
Þessar áherslur höfum við foreldrarnir verið
ákaflega sammála um og samstiga við. Fleira kann
að koma til sem ekki rúmast í liðum 1-5. Við telj-
um okkur alltént afar heppin og sátt, gætum í
raun ekki verið ánægðari með dætur okkar tvær –
þessar dýrmætustu perlur lífsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jakob Frímann Magn-
ússon, tónlistar- og at-
hafnamaður, deilir hér
með lesendum Fjölskyld-
unnar fimm af sínum
bestu uppeldisráðum en
hann á tvær ungar dætur
með konu sinni Birnu
Rún Gísladóttur, þær
Jarúnu 11 ára og Katrínu
Borg 5 ára.
5
UPPELDISRÁÐ
Jakobs Frímanns
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
Hringdu og bókaðu skoðun
Sigurður Lögg. fs. 899-1987 eða Ingimar Lögg. fs. 612-2277
Gerplustræti 31-37 – 270 Mosfellsbær
*Aðeins 9 íbúðir eftir* Nýtt 40 íbúða
fjölbýlishús á fallegum útsýnisstað. Vel
skipulagðar íbúðir, ásamt bílastæði í
bílageymslu, í lyftuhúsi í Helgafells
hverfi. Íbúðirnar skilast fullbúnar með
innréttingum frá Axis, án megingólfefna.
Gólf í baðherbergjum/þvottahúsum
verða flísalögð. Afhending júlí 2018.
4ra herbergja íbúðir. V. 44,5 m. – 58,9 m.
5 herbergja íbúðir. V. 53,9 m. – 54,9 m.
Ástu-Sólliljugata – 270 Mosfellsbær
*Laust strax* Falleg og vel skipulögð
raðhús einni hæð við ÁstuSólliljugötu
í Mosfellsbæ. Afhendast fullbúin án
megingólfefna, baðherbergisgólf verða
flísalögð, en þvottahúsgólf og bílskúr
með epoxi. Lóð frágengin með
hellulögðu bílastæði.
ÁstuSólliljugata 14A = 176,5m2. V. 75,9 m.
ÁstuSólliljugata 16 = 176,5m2. V. 75,9 m.
ÁstuSólliljugata 16A = 184m2. V. 78,9 m.
Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080 // fastmos@fastmos.is // fastmos.is
Atvinna
Spurningum sem berast
Fjölskyldunni á mbl.is
svarar SÓL sálfræði- og
læknisþjónusta en þar starfar hópur fagfólks
sem leggur metnað sinn í að veita börnum,
ungmennum og fjölskyldum þeirra góða
þjónustu. Nánari upplýsingar á www.sol.is