Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 17

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 17
17 Setningarræða forseta kirkjuþings, Magnúsar E. Kristjánssonar Kirkjuþing 2017 er sett. 56. kirkjuþing íslensku þjóðkirkjunnar. Verið öll hjartanlega velkominn kirkjuþingsfulltrúar, starfsfólk og gestir. Já og verið velkomin í Garðabæ, hingað í Vídalínskirkju þar sem kirkjuþingið er nú haldið í fyrsta sinn. Vonandi mun ykkur öllum líða vel hér og aðbúnaður reynast viðunandi. Það er ánægjuefni að fá að bjóða sérstaklega velkomna hingað í dag dómsmálaráðherra, frú Sigríði Andersen. Þá vil ég bjóða velkomin bæjarstjóra Garðabæjar hr. Gunnar Einarsson. Á þriðjudaginn voru 467 ár frá því Jón Arason var hálshöggvinn, í gær voru 534 ár frá fæðingu Lúters, og í dag eru 99 ár frá lokum fyrir heimstyrjaldarinnar. Já tíminn líður og þetta minnir okkur á hvað sumir atburðir og sumt fólk hefur mikil áhrif á líf okkar löngu eftir þeirra tíma. Nú erum við saman komin á fjórða og jafnframt síðasta kirkjuþingi þessa kjörtímabils. Þau þrjú ár sem eru liðin frá upphafi þessa kjörtímabils er stuttur tími en þau hafa liðið ótrúlega hratt. Það er ágætt að staldra við og fara yfir það í huganum hvort okkur hafi miðað eitthvað á þessum þremur árum sem við höfum setið saman á kirkjuþingi. Var það aftur á bak, ellegar nokkuð á leið? Við þessu er ekki einhlítt svar og sjálfsagt eru skoðanir skiptar um það eins og annað. Við erum nefnilega ekki alltaf sammála, höfum mismunandi skoðanir og stundum ólíka hagsmuni að verja. Það væri líka furðulegt ef við í þjóðkirkjunni, um 70% íslensku þjóðarinnar, værum sammála um alla hluti. Eðlilega eru skoðanir mismunandi. Í lýðræðislegum samfélögum, samtökum og félögum ýmiskonar hefur fólk einmitt komið á samkomum s.s. Alþingi, kirkjuþingi, safnaðarfundum og aðalfundum, til þess að ræða, takast á um, greiða atkvæði, já komast að niðurstöðu í málum svo sátt geti orðið um ákvarðanir. Þetta fyrirkomulag er ekki fullkomið, getur aldrei orðið það fyrst og fremst því við erum ekki fullkomin. Þetta er bara minnst vonda aðferðin sem við þekkjum til að taka ákvarðanir fyrir fólk í skipulagsheildum þar sem þarf að ríkja sátt, ef ekki um niðurstöðuna þá að minnsta kosti um aðferðina sem notuð var til að ná niðurstöðu. En þá má velta því fyrir sér hvernig vinnubrögð á slíkum samkomum hafa þróast og hvort við hér á kirkjuþingi þurfum að bæta okkar. Á starf á þingum að vera keppnisgrein? Er markmiðið að vinna hina? Eða á markmiðið að vera að ná sátt sem flestra, og viðmiðið, að niðurstaðan sé sem hagstæðust fyrir sem stærstan hluta þeirra sem ákvörðun snertir. Við mótun kirkjuþingsins var Alþingi fyrirmyndin. Þingsköp og siðir voru mótuð eftir þeim hefðum sem fólk þekkti þaðan. Það má velta því fyrir sér hvort betra hefði verið að horfa til fleiri fyrirmynda því það er áleitin spurning hvort sá siður að vinna hina, eins og þekkist úr stjórnmálum sé sá siður sem samkomu sem kennir sig við kristni hentar best. Meirihluti og minnihluti. Nú ráðum við ekki þið. Á sá ræðumaður mest hól skilið sem ekki aðeins færir góð rök fyrir máli sínu heldu nær einnig að niðurlægja þá sem eru honum ósammála? Er sú eða sá sigurvegarinn? Eiga fundarsköpin að mótast af því að hver og einn geti, megi og eigi að koma í ræðustól, jafnvel þó það sé ekki til annars en að endurtaka það sem aðrir hafa sagt. Er það
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.