Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 35
35
Á (2)6 2. fundi samþykkti kirkjuráð leyfi til handa Orkustofnunar vegna nýtingar jarðhita
og til handa RARIK vegna lagningar jarðstrengja á landi Reykholts í Borgarfirði.
Á (2)64 . fundi sam þykkti kirkjuráð erindi Stefáns og Jóns Tr. Guðmunds sona þar sem ósk-
að var eftir að fá að taka jörðina Hraun gerði á leigu til eins árs gegn leigu gjaldi sem nemi
3% af fasteigna mati jarðarinnar fyrir yfir standandi ár. Kirkjuráð fól jafnframt fasteigna-
sviði að undir búa sölu jarðarinnar.
Á (2)65. fundi var samþykktur samningur við Ölkeldubændur um leigu á túnum prests-
setursjarðarinnar að Staðastað. Þá samþykkti kirkjuráð að gera samstarfssamning við
HS Orku um endurheimt votlendis á allt að 10 ha. landssvæði vegna fyrirhugaðrar
Brúarvirkjunar. Fram kom að verkefnið væri án kostnaðar fyrir Kirkjumálasjóð. Kirkjuráð
samþykkti jafnframt samstarf við Auðlind, náttúrusjóð um sambærilegt verkefni.
Á (2)66. fundi samþykkti kirkjuráð erindi varðandi skráningu landeignarinnar Þorgilsreitur
í fasteignaskrá en hún er hluti Hofs í Vopnafirði og er eigninni afsalað sem lóðar undir
safnaðarstofu.
Á (2)67. fundi var ákveðið að veiðihlunnindi sem fylgja Hofi í Vopnafirði verði undanskilin
í auglýsingu um sóknarprestsembætti Hofsprestakalls. Kirkjuráð samþykkti tillöguna en
ályktaði að sú ákvörðun verði endurskoðuð þegar starfshópur kirkjuráðs sem kirkjuþing
2015 ályktaði að skipaður yrði til að skoða slík mál í tengslum við stefnumörkun
þjóðkirkjunnar um eignir og eignastýringu skilar niðurstöðu sinni.
Á (2)68. fundi voru til umfjöllunar Reykhólar, málefni prestbústaðar, leigusamningur um
húsnæði. Lögð fram skýrsla verkfræðistofunnar Verkís með viðhalds- og kostnaðarmati
prestbústaðarins að Reykhólum. Þá var lagður fram leigusamningur við Brynju,
hússjóð Öryrkjabandalags Íslands um 52,7 m2 íbúð við Barmahlíð í Reykhólahreppi.
Leigusamningurinn er til ársloka 2017 með heimild til framlengingar. Íbúðin verður nýtt
sem aðstaða fyrir sóknarprestinn á Reykhólum þar til ákvörðun hefur verið tekin um
framtíðarfyrirkomulag prestþjónustu í prestakallinu. Kirkjuráð ályktar að leggja til við
komandi kirkjuþing að prestbústaðurinn verði settur á söluskrá og húsið selt í núverandi
ástandi.
Á (2)69. fundi var tekið fyrir málið Kálfafellsstaður, ósk um liðveislu í dómsmáli. Lagt var
fram erindi lögmannsstofunnar Lögmenn Höfðabakka með ósk um leiðveislu í dómsmáli.
Einnig lögð fram stefna til réttargæslu í máli Héraðsdóms Austurlands nr. E- 36/2007,
eigendur Borgarhafnar gegn eigendum Kálfafellsstaðar og gagnsök. Kirkjuráð ályktaði að
fela fasteignasviði að bregðast við stefnunni með viðeigandi hætti. Þá samþykkti kirkjuráð
að óska eftir nýju verðmati á jörðinni Hraungerði í Flóahreppi vegna uppsagnar ábúðar.
Á (2)70. fundi var tekið fyrir málið Fellsmúli, beiðni um leyfi fyrir lagningu hitaveitulagnar.
Lagt var fram erindi Rangárbús ehf. vegna lagningar hitaveitulagnar frá fiskeldisstöð
Matorku í landi Fellsmúla. Kirkjuráð samþykkti erindið. Þá var tekið fyrir málið Reykholt,
endurnýjun á samningi um skógrækt. Lagt var fram erindi sóknarprestsins í Reykholti
varðandi endurnýjun samnings við Skógræktarfélag Borgarfjarðar um skógrækt í
Reykholti. Kirkjuráð samþykkti erindið.