Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 86

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 86
86 87 kjörstjórnar og fulltrúi kirkjuráðs búa til og varðveita hvor sinn helming leyniorðsins meðan kosning varir. □Áður en talning atkvæða hefst koma fulltrúarnir hinu tvískipta leyniorði fyrir í afkóðunar hluta kosningakerfisins. □Að lokinni afkóðun atkvæða í kosningakerfinu skulu atkvæðin talin og niðurstöður kosningarinnar teknar saman í talningarhluta kerfisins. 14. gr. Niðurstöður kosninga. ■Þeir, sem flestir merkja við með atkvæði sínu, eru kjörnir aðalmenn í hverju kjördæmi fyrir sig og skal fjöldi atkvæða ráða röðun þeirra. Varamenn eru þeir sem næstir koma að atkvæðum eftir aðalmönnum og skal fjöldi atkvæða ráða röðun þeirra. Hafi tveir eða fleiri hlotið jafnmörg atkvæði og geta ekki báðir eða allir náð kjöri ræður hlutkesti. □Kjörstjórn staðfestir niðurstöður og birtir á vefsíðu þjóðkirkjunnar nöfn þeirra er kjörnir hafa verið svo fljótt sem verða má. 15. gr. Útgáfa kjörbréfa. ■Kjörstjórn gefur út kjörbréf til aðalmanna og varamanna og skal röð varamanna greind sérstaklega. 16. gr. Innköllun varamanna. ■Ef kirkjuþingsmaður andast á kjörtímabilinu, flyst úr kjördæminu eða forfallast tíma bundið eða varan lega, tekur varamaður hans sæti í þeirri röð sem hann er til kjörinn. Hafi kirkjuþings- maðurinn gegnt embætti forseta kirkjuþings, skal kirkjuþing kjósa til embættisins að nýju. □Varamaður tekur sæti aðalmanns í föstum þingnefndum og þarf ekki að kjósa að nýju um sæti aðalmannsins. 17. gr. Meðferð gagna eftir að talningu er lokið. ■Að kærufresti liðnum eða eftir að yfirkjörstjórn hefur kveðið upp úrskurð sinn varðandi kosninguna, hafi hún verið kærð, skal kjörstjórn sjá til þess að öllum atkvæðum, dulkóðuðum og afkóðuðum, rafrænni kjörskrá og afkóðunarlyklum verði eytt úr kosningakerfinu. Kjörstjórn tilkynnir kirkjuráði þegar eyðing gagnanna hefur átt sér stað. 18. gr. Uppstillingarnefnd. ■Kirkjuráð skipar uppstillingarnefnd þjóðkirkjunnar. Í uppstillingarnefnd þjóðkirkjunnar eru níu menn einn úr hverju prófastsdæmi. Kirkjuþing kýs í nefndina til fjögurra ára á þriðja reglulega kirkjuþingi eftir síðasta kjör til kirkjuþings. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega úr hópi nefndarmanna.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.