Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 39
39
Á (2)60. fundi var bókasafn Skálholtsstaðar til umfjöllunar og jafnframt hugmyndir um
kaup á utanaðkomandi sérfræðiráðgjöf vegna uppbyggingar í Skálholti.
Á (2)61. fundi var síðan ákveðið að kjör til vígslubiskups Skálholtsumdæmis hæfist hinn
15. ágúst 2017.
Á (2)64. fundi var tekið fyrir erindi kjörstjórnar þjóðkirkjunnar þar sem lagt var til að
rafræn tilnefning til vígslubiskups í Skálholti standi yfir dagana 23. til 28. ágúst nk. og
kjörgögn verði send út, þ.e. að póstkosningin hefjist þann 28. september nk. Kirkjuráð
samþykkti erindið.
Á (2)66. fundi voru lögð fram drög að samstarfssamningi við ráðgjafarfyrirtækið ALTA.
Kirkjuráð samþykkti að vísa málinu til stjórnar Skálholts og vígslubiskups og taka það
fyrir að nýju eftir umfjöllun þeirra.
Á (2)68. fundi var lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skálholt, sveitarfélaginu
Bláskógabyggð, greinargerð, skilmálar og umhverfisskýrsla, unnið af arkitektastofunni
Landslag ehf. landslagsarkitektum.
Á (2)69. fundi var tekið fyrir verkefni Verndarsjóðs Skálholtsdómkirkju, gluggaverkefni.
Á fundinum samþykkti kirkjuráð að verkefnið verði hafið með því að láta taka niður fimm
glugga í kirkjunni og flytja þá á verkstæði Stefan Oidtmanns í Þýskalandi til viðgerðar
enda lá fyrir að verndarsjóðurinn hefur safnað framlögum sem nægja fyrir kostnaði við
viðgerðina. Þá var á fundinum kynnt tillaga að deiliskipulagi fyrir Skálholt.
Á (2)70. fundi var staða Skálholtsbúsins til umræðu og þar var jafnframt kynnt afstaða
stjórnar Skálholts til fyrirhugaðrar biblíusýningar í Þorláksbúð í Skálholti. Kirkjuráð
ályktaði að vandséð væri að umbúnaður Þorláksbúðar væri slíkur að óhætt væri að að
sýningin færi þar fram. Kirkjuráð væri hins vegar tilbúið til að beita sér fyrir því að
sýningunni yrði fundinn staður í byggingum Skálholts.
Önnur mál sem kirkjuráð fjallaði um á kirkjuþingsárinu og rétt þykir að gera
kirkjuþingi grein fyrir
Á (2)57. fundi samþykkti kirkjuráð svohljóðandi ályktun: Kirkjuráð vísar til skýrslu
innanríkisráðherra frá maí 2014 um fjárhagsleg málefni þjóðkirkjunnar og safnaða
hennar sbr. einnig minnisblað sem innanríkisráðherra lagði fram á fundi ríkisstjórnar
hinn 5. september sama ár. Kirkjuráð leggur til að ákvæði gildandi laga nr. 91/1987 um
sóknargjöld o.fl. komi að fullu til framkvæmda á ný frá og með næsta ári. Á sama fundi
fjallaði kirkjuráð um tvo úrskurði úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar og eitt erindi frá
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Á (2)64. fundi fjallaði kirkjuráð um ársreikninga Jöfnunarsjóðs sókna og Kristnisjóðs.
Jöfnunarsjóður skilaði 83,3 m.kr. tekjuafgangi á árinu. Eignir hans í árslok námu 344,8
m.kr. og eigið fé var 330,6 m.kr. Kristnisjóður skilaði 102,6 m.kr. tekjuafgangi á árinu.
Eignir hans í árslok voru 108,4 m.kr. og eigið fé var 102,7 m.kr. Ársreikningarnir
voru samþykktir og áritaðir. Þá voru á fundinum lögð fram drög að umhverfisstefnu
þjóðkirkjunnar og áætlun um umhverfismat í söfnuðum. Gert var ráð fyrir að stefnan