Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 69
69
14. mál kirkjuþings 2017
Flutt af löggjafarnefnd
Starfsreglur
um breytingu á starfsreglum um val og veitingu
prestsembætta nr. 144/2016, með síðari breytingum
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verður á 7. gr. starfsreglnanna:
a. 1. mgr. orðast svo:
Kjörnefnd prestakalls er kosin á aðalsafnaðarfundi eða safnaðarfundi á fjögurra ára
fresti. Sóknarnefnd ber að kanna fyrir hvern aðalsafnaðarfund eða safnaðarfund,
ef svo ber undir, hvort einhver sóknarmaður í kjörnefnd hafi flutt lögheimili sitt úr
sókninni eða misst kjörgengi sitt af öðrum ástæðum. Ef svo er ber að kjósa nýja fulltrúa
í kjörnefnd svo sú nefnd verði á öllum tímum skipuð til samræmis við 11. mgr. Sama
gildir ef fleiri en ein sókn er í prestakalli. Í kjörnefnd skulu einungis sitja sóknarmenn
úr þeirri sókn sem kýs kjörnefnd viðkomandi prestakalls. Sama gildir ef fleiri en ein
sókn er í prestakalli.
b. lokamálsliður 2. mgr. orðast svo:
Varamenn hverrar kjörnefndar skulu aldrei vera færri en ellefu. Þó er heimilt að kjósa
allt að sama fjölda varamanna og fjöldi aðalmanna er í kjörnefnd.
c. 11. mgr. orðast svo:
Sóknarnefndir skulu sjá til þess að fulltrúar í kjörnefndir séu kosnir samkvæmt starfs-
reglum þessum og að jafnan sé til staðar sá fjöldi aðalmanna og varamanna sem áskilinn
er. Sóknarnefndum ber að upplýsa prófasta árlega, sbr. 1. mgr., um stöðu á skipun
kjörnefnda svo prófastar geti gengið úr skugga um að kjörfundir megi verða löglegir.
Kjör telst ekki gilt nema kjörnefnd sé skipuð að lágmarki tveimur þriðju fulltrúa á
fundi þar sem kosið er til prestsembættis.
2. gr.
10. mgr. 8. gr. starfsreglnanna orðast svo:
Sá umsækjandi telst hafa hlotið kosningu í prestsembætti sem hlýtur meirihluta gildra
atkvæða, miðað við fullskipaða kjörnefnd, í leynilegri atkvæðagreiðslu á kjörnefndarfundi.
Atkvæði skal meta ógilt ef kjörseðill er auður. Ef enginn fær meirihluta gildra atkvæða,
skal kosið að nýju um þá tvo sem fengu flest gild atkvæði. Kjósa má milli þeirra tveggja
svo oft sem þurfa þykir.
3. gr.
Við 9. gr. starfsreglnanna bætast tvær nýjar málsgreinar:
Hafi enginn umsækjenda hlotið meirihluta gildra atkvæða, miðað við fullskipaða
kjörnefnd, er biskupi heimilt að skipa í embættið þann sem hann metur hæfastan,
framlengt umsóknarfrest eða ákveðið að auglýsa embættið að nýju.