Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Blaðsíða 46
46 47
Kristnisjóður og Jöfnunarsjóður sókna
Endurskoðaðir ársreikningar Kristnisjóðs og Jöfnunarsjóðs sókna voru lagðir fyrir 264.
fund kirkjuráðs og þar samþykktir og áritaðir því til staðfestingar.
Afkoma Kristnisjóðs var jákvæð og tekjuafgangur ársins 102,6 m.kr. Tekjur voru
ríkisframlag samkvæmt fjárlögum og samkvæmt fjáraukalögum, samtals 166,6 m.kr. Aðrar
tekjur voru 2,3 m.kr. Gjöld voru 66,5 m.kr., þar af styrkir og tilfærslur 45,4 m.kr. og önnur
gjöld 21,2 m.kr. Fjármagnstekjur að frádregnum vaxtagjöldum og fjármagnstekjuskatti
voru 216 þúsund krónur. Eignir voru 108,4 m.kr. skuldir 5,7 m.kr. og eigið fé 102,7 m.kr.
Afkoma Jöfnunarsjóðs var jákvæð og tekjuafgangur ársins 83,3 m.kr. Tekjur voru
hlutdeild í sóknargjöldum, samtals 373,6 m.kr. Gjöld voru 298,6 m.kr., þar af styrkir
281,4 sem skiptust þannig að styrkir til höfuðkirkna voru 47,5 m.kr. styrkir til annarra
sókna 218,5 m.kr., til annarrar kirkjulegrar starfsemi 15,3 m.kr. Þá var skrifstofu-
og stjórnunarkostnaður 17 m.kr. og annar kostnaður 272 þúsund krónur. Hreinar
fjármunatekjur voru 8,3 m.kr. Eignir voru 344,8 m.kr., skuldir voru 14,2 m.kr. og eigið fé
330,6 m.kr.
Rekstraráætlanir ársins 2018
Biskupsstofa
Gert er ráð fyrir að ríkissjóður standi að fullu við kirkjujarðasamkomulagið enda um
samningsbundið framlag að ræða. Framlag, eða endurgjald, ríkissjóðs verður þá skv.
reiknilíkani því sem notað er til að reikna það út 2.231,9 m.kr. Það skiptist þannig að til
greiðslu launakostnaðar eru 1.967,9 m.kr. og til greiðslu annars rekstrarkostnaðar eru 264
m.kr. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekjur verði samtals 2.335,3 m.kr., rekstrargjöld verði
2.251 m.kr. og tekjur umfram gjöld verði því 84,3 m.kr. Nú er í fyrsta sinn gerð sérstök
fjárfestingaáætlun samkvæmt hinum nýju lögum um opinber fjármál og nemur hún 11,8
m.kr. Tekjur umfram gjöld verða þannig 72,5 m.kr. samkvæmt áætluninni eða 3,1% af
veltu.
Kirkjumálasjóður
Í drögum að áætlun Kirkjumálasjóðs er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs verði 311,6
m.kr. en það er samkvæmt frumvarpi til fjárlaga ársins 2018. Aðrar tekjur Kirkjumálasjóðs
eru áætlaðar 77,2 m.kr. Gjöld eru áætluð 386,6 m.kr. Rekstrinum er skipt í almenna
starfsemi sjóðsins og starfsemi fasteignasviðs. Rekstrargjöld vegna almennrar starfsemi
sjóðsins eru áætluð 260 m.kr. og eru þau alfarið fjármögnuð af framlagi ríkissjóðs.
Rekstrargjöld fasteignasviðsins eru áætluð 126,6 m.kr. Af framlagi ríkissjóðs renna því 54
m.kr. til fasteignasviðsins en 72,6 m.kr. eru fjármagnaðar af sértekjum, þ.e. leigutekjum.
Samkvæmt þessu er því gert ráð fyrir jöfnuði í rekstri sjóðsins en sá jöfnuður fæst með
því að rekstrarkostnaður fasteigna sjóðsins er framreiknaður með áætlun Hagstofunnar
um 2% verðlagsbreytingar milli ára og mismunurinn er færður á viðhalds- og
stofnkostnaðarliðinn.